Morgunblaðið - 26.04.2018, Side 4

Morgunblaðið - 26.04.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2018 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fulltrúar félagsins Starrahæðar segja þeim fara fjölgandi sem vilja reka hótel sem félagið er að byggja á Selfossi. Áhuginn fari vaxandi. Starrahæð ehf. keypti lóðina undir fyrirhugað hótel í fyrravor. Það verður við Eyraveg 11-13, á ská á móti Hótel Selfossi. Lóðin var auð þegar Starrahæð keypti hana. Fulltrúar félagsins báðust undan viðtali. Hótelið verður fjögurra stjörnu. Mikið er lagt upp úr hönnun sem er á herðum Guðna Pálssonar arkitekts. Yfir 3.000 fermetrar Hótelið við Eyraveg verður fjórar hæðir auk kjallara. Á baklóð verða stæði fyrir 26 bíla. Tíu herbergi verða á fyrstu hæð en 20 herbergi á hæðum 2 til 4, samtals 70 herbergi. Hótelið verður um 3.100 fermetrar. Eyravegur er ein af aðalgötum Selfoss. Hönnunin er nútímaleg og mun hótelið setja svip á bæinn. Spa verður í hálfum kjallaranum. Morgunverðarhlaðborð verður á jarðhæð og verður mögulegt að opna þar veitingahús. Hótelið er steypt á staðnum. Uppsteypu á kjallara er lokið. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins kostar á annan milljarð að byggja svona hótel. Til saman- burðar kemur fram í kaupsamningi að kaupverð lóðar var 30 milljónir. Áformað er að hótelið verði tilbúið vorið 2019. Hótelherbergjum fjölgar Þjónustustigið í ferðaþjónustu fer hækkandi á Suðurlandi. Fyrir um tveimur árum var lokið við að stækka Hótel Selfoss. Þá er verið að leggja lokahönd á stækkun Hótels Arkar í Hveragerði. Með nýrri álmu á Hótel Örk bætast við 78 herbergi. Fyrir eru 79 herbergi og verða því alls 157 herbergi á hótel- inu. Með stækkun Hótels Selfoss fjölgaði herbergjum um 40 í 139. Ragnar Bogason, framkvæmda- stjóri Hótels Selfoss, segir ekki áformað að fjölga herbergjum að sinni. Hins vegar sé í skoðun að stækka veitingarými. Jakob Arnarson, hótelstjóri á Hótel Örk, segir nýju álmuna verða tekna í notkun mánaðamótin maí og júní. Hefur Örkin öll verið endur- nýjuð á síðustu misserum. Margir vilja reka hótel  Áformað að opna 70 herbergja hótel á Selfossi vorið 2019  Fulltrúar húsbyggjanda segja marga vilja reka hótelið Teikning/GP arkitektar. Drög að hóteli Lokahönnun hótelsins stendur nú yfir. Hótelherbergjum fjölgar mikið á Suðurlandi. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Aðalfundur Eflingar – stéttarfélags 2018 verður haldinn á Grand hóteli í kvöld. Fundurinn hefst kl. 20. Nýr formaður félags- ins, Sólveig Anna Jónsdóttir, mun taka við af Sig- urði Bessasyni, fráfarandi for- manni, á fund- inum. Sólveig Anna var í gær spurð hvort hún ætti von á því að mikl- ar breytingar yrðu hjá Eflingu við formanns- skiptin, t.d. á skrifstofuhaldi félags- ins: „Það verða ekki miklar breyt- ingar á skrifstofuhaldinu. Ég tek að vísu með mér gamlan félaga og samherja, Viðar Þorsteinsson, sem verður mín hægri hönd,“ sagði Sól- veig Anna í samtali við Morg- unblaðið. Sólveig Anna segist sjá það fyrir sér að starfið innan Eflingar, á skrifstofunni sem annars staðar, muni fara fram í sátt og samlyndi. „Ég er búin að hitta starfsfólkið og fara nokkrum sinnum í heimsókn á skrifstofuna og hef átt fundi með hinum og þessum, auk þess sem ég er búin að hitta allt starfsfólkið á skrifstofunni á fundi, sem gekk mjög vel,“ sagði Sólveig Anna. Sólveig Anna segir að vissulega hyggist hún koma inn í Eflingu með ýmsar nýjar áherslur, en þau Viðar muni gera sitt besta til þess að vinna að þeim í sátt og samlyndi við starfs- fólkið. „Það sem við hyggjumst leggja mesta áherslu á í upphafi er að fara mjög fljótlega í uppfærslu á heima- síðu félagsins og tryggja að allt efni á síðunni verði einnig aðgengilegt á ensku og pólsku, auk íslenskunnar, því helmingur félagsmanna er af er- lendu bergi brotinn. Við teljum að þar sé ýmislegt hægt að bæta og er- um þá að hugsa um að koma félag- inu aðeins inn í nútímann,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, nýr for- maður Eflingar – stéttarfélags. Koma félaginu inn í nútímann  Efni Eflingar líka á pólsku og ensku Sólveig Anna Jónsdóttir Menntastefna Reykjavíkur, sem nú er í smíðum, er unnin í nánu samstarfi við þúsundir starfsmanna leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila, fé- lagsmiðstöðva og skólahljómsveita, fulltrúa nemenda og foreldra í leik- og grunnskólum með aðkomu inn- lendra og er- lendra sérfræð- inga í menntamálum, að sögn Helga Grímssonar, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur. Jón Pétur Zimsen, skólastjóri Réttarholtsskóla, gagnrýndi í Morg- unblaðinu í gær borgina fyrir skeyt- ingarleysi í skólamálum og sagði þekkingu hafa verið ýtt til hliðar í menntastefnu borgarinnar, hún væri illa ígrunduð og þyrfti meiri vinnu. „Mikilvægt er að hafa í huga að hér er á ferð persónuleg sjónarmið eins stjórnanda í skólakerfinu en stefnan er sameign þúsunda aðila sem hafa lagt gjörva hönd á plóginn til að móta framsækna og skapandi mennta- stefnu sem dregur fram það besta í hverju barni,“ segir Helgi. Í menntastefnunni kemur fram að á komandi árum eigi að leggja aukna áherslu á: félagshæfni, sjálfsþekk- ingu, læsi, sköpun og heilbrigði í öllu skóla- og frístundastarfi. „Þegar svo margir koma að verki er eðlilegt að sjónarmið séu mörg en mikill sam- hljómur var milli fagfólks leikskóla, grunnskóla og frístundar um að þessi atriði ættu að fá meira vægi í skóla- og frístundastarfi framtíðarinnar. Í menntastefnunni er undirstrikað að áfram eigi að vinna samkvæmt nám- skrám og þung áhersla er lögð á læsi. Í nútíma samfélagi skiptir miklu máli að barn búi yfir hæfninni til að afla sér þekkingar og skapa þekkingu, ekki síður en að tileinka sér tiltekinn þekk- ingarforða sem segja má að hafa verið í forgangi í skólum á seinustu öld,“ segir Helgi. ingveldur@mbl.is Framsækin og skapandi stefna  Menntastefna borgarinnar í smíðum Helgi Grímsson Ljósmynd/GP arkitektar. Eyravegur 11-13 Fyrsta hæð hótelsins er tekin að mótast. Brunaeftirliti Slökkviliðs höfuðborg- arsvæðisins við Perluna lauk um tvö- leytið í fyrrinótt. Ljóst er að tjónið er töluvert en tæknideild lögreglu og fulltrúar tryggingafélaga hófu rann- sókn á brunanum þegar slökkvistarfi lauk. Eldur kom upp í einangrun á hitaveitutanki við inngang Perl- unnar á þriðja tímanum á þriðjudag- inn og er talið að eldsupptök megi rekja til iðnaðarmanna sem voru að störfum við tankinn. Þrír slökkviliðs- menn ásamt dælubíl vöktuðu svæðið á miðvikudagsnóttina til að tryggja að búið væri að slökkva allan eld. Jón Viðar Matthíasson slökkvi- liðsstjóri segir að slökkvistarf hafi gengið betur en búist var við í fyrstu. „Þetta var orðið frekar mikið undir þessum útsýnispalli en við þurftum að rífa okkur þar niður til að komast niður á klæðningu sem var yfir tanknum,“ segir Jón Viðar. Hann bætir við að slökkvistarfið hafi reynt á en þrengsli hafi verið á þeim svæð- um sem unnið var á og því tók tals- verðan tíma að ráða niðurlögum eldsins. Perlan verður áfram lokuð í dag en unnið er að því að ná bruna- lykt úr húsinu. „Við viljum ekki opna meðan það er lykt í húsinu. Lyktin hefur minnkað mjög mikið en við viljum að húsið sé 100% áður en við opnum,“ segir Gunnar Gunnarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Perlu norðursins. „Það er miklu meiri brunalykt en reykur. Við erum með vatnstjón en það er brunalyktin sem við erum að reyna ná út með fjörutíu blásurum og stefnum á opn- un föstudag eða laugardag.“ Eldsvoðinn olli tölu- verðu tjóni í Perlunni  Enn mikil brunalykt  Perlan opnuð að nýju um helgina Morgunblaðið/Valli Tjón Töluverður mannskapur aðstoðaði við tiltekt eftir brunann í Perlunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.