Morgunblaðið - 26.04.2018, Page 28

Morgunblaðið - 26.04.2018, Page 28
Starfshópur fer yfir lögin um Byggðastofnun Ráðherra samgöngu- og sveitar- stjórnarmála sagði frá því á ársfundi Byggðastofnunar sem haldinn var á Hótel Laugarbakka í Miðfirði í gær að hann hefði í hyggju að skipa starfshóp til að meta þörf fyrir end- urskoðun laga um Byggðastofnun. Lögin eru að verða tvítug og kvaðst Sigurður Ingi Jóhannsson telja eðli- legt að lagaumhverfið væri yfirfarið reglulega og tryggt að það styddi á hverjum tíma við hlutverk og gildi stofnunarinnar. Á fundinum var kynnt byggða- áætlun 2018-2024 sem er til umfjöll- unar á Alþingi, sagt frá niðurstöðum úr þjónustukönnun og kynnt var fyr- irhuguð rannsókn á orsökum bú- ferlaflutninga. Síðastnefnda rann- sóknin er þriggja ára verkefni, unnin undir forystu Þórodds Bjarnasonar, prófessors við HA. Ráðherra tilkynnti skipan stjórn- ar Byggðastofnunar. Illugi Gunnars- son, fv. alþingismaður, verður áfram formaður og Einar E. Einarsson, bóndi á Syðra-Skörðugili, er varafor- maður. helgi@mbl.is  Illugi Gunnarsson áfram formaður stjórnar stofnunarinnar Ljósmynd/Hjalti Árnason Landstólpinn Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, afhenti fulltrúum Sköpunarmiðstöðvar á Stöðvarfirði samfélagsviðurkenningu. 28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2018 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Árni Johnsen, blaðamaður og fyrr- verandi alþingismaður, hefur gefið út þrjú verk með tónlist sinni og ann- arra í ýmsum búningi. Það er fáheyrt að einn og sami listamaður sendi frá sér sjö geisladiska á einu bretti, eins og Árni gerir nú. Þrír ólíkir pakkar Fyrst er að nefna Sólarsvítuna, sem er pakki með þremur DVD- diskum. Þar er íslenska Sólarsvítan í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Úkra- ínu, undir stjórn Volodymyr Sirenko. Lögin eru eftir Árna við ljóð ýmissa skálda. Í Grísku sólarsvítunni leikur Grikkinn Panagiotis Stergiou einleik á bousouki með úkraínsku sinfón- íuhljómsveitinni. Ed Welch útsetti. Á þriðja DVD-diskinum syngur Karla- kórinn Þrestir Sólarsvítuna og Odd- geirssyrpu. Bara gaman inniheldur tvo geisla- diska með 110 helstu barna- og æskulýðslögum síðustu 50 ára. Flytj- endur eru Árni og Stúlknakór Reykjavíkur. Vilhjálmur Guðjónsson stjórnaði upptökunni og lék á gítar, Ingólfur Magnússon lék á kontra- bassa og gestasöngvari var Gylfi Sig- fússon. Við gluggann inniheldur tvo geisladiska sem geyma upptöku frá 70 ára afmælistónleikum Árna í Saln- um. Hann syngur og leikur á gítar og með honum spila Björn Thoroddsen, gítar, Magnús Kjartansson, píanó, Birgir Nielsen, trommur, Ingólfur Magnússon, kontrabassi og Úlfar Sigmarsson, harmonikka. Ötull laga- og textasmiður „Ég hef unnið lengi að þessum verkefnum. Svo var þetta tilbúið á svipuðum tíma. Þá var þessu öllu slegið saman í eina brók,“ sagði Árni. Hann sagði að plöturnar hafi verið 2-3 ár í smíðum. Árni fór ungur að semja lög og texta. Hann samdi m.a. lög við ljóð margra höfuðskálda þjóðarinnar. Fyrsta hljómplatan hans, Milli lands og Eyja, kom út árið 1971. Svo fylgdu margar í kjölfarið. Gítarinn hefur aldrei verið langt undan þar sem Árni er. Meðan hann stundaði kennslu var lagið oft tekið í kennslustofunni. Á blaðamennsku- og þingmannsárunum söng Árni á ótal stærri og smærri mannamótum. Auk þess stjórnaði hann stærsta kór Íslands við gítarundirleik í brekku- söngnum á Þjóðhátíð Vestmannaeyja ár eftir ár. Í pakkann vantar Stórhöfðasvít- una, sem einnig inniheldur lög Árna. Hann kvaðst hafa dálæti á henni. Nú gengur Stórhöfðasvítan í endurnýjun lífdaga suður í Grikklandi þar sem grískur bouzouki-leikari spilar með hljóðritun af flutningi Sinfón- íuhljómsveitar Íslands á Stórhöfða- svítunni. Von er á þeirri útgáfu fyrir haustið. En hvers vegna bouzouki, sem kalla má þjóðarhljóðfæri Grikkja? „Ég er hálfur Grikki,“ svaraði Árni. „Grikkjunum leist ekkert á þetta fyrst því þar er aldrei spilað á bouzouki með sinfóníuhljómsveitum. Svo urðu þeir himinlifandi og skildu ekkert í því hvers vegna þeim hefði ekki dottið þetta í hug! Það þurfti grískan Eyjapeyja til að gera þetta. Þegar Grikkirnir heyrðu lögin þótt- ust þeir kenna í þeim grískan und- irtón. Bouzouki-leikarinn og upptök- umaðurinn sögðu að það væri eins og þessi lög væru samin fyrir bouzuouki og bouzouki smíðað fyrir þessi lög!“ Eyjapeyinn sem kom Grikkjum á lagið  Árni Johnsen gefur út 3 mynddiska og 4 hljóðdiska Ljósmynd/Friðþjófur Helgason Söngvaskáld Árni Johnsen hefur samið fjölda laga og texta og gefið sumt af því út á plötum. Hér er lifir hann sig inn í sönginn í hljóðveri í Grikklandi. Sólarsvítan Þrír mynddiskar með töfrandi myndefni og tónlist. Við gluggann Upptaka frá 70 ára afmælistónleikum Árna Johnsen. Bara gaman Tvöfaldur hljóðdiskur með 110 vinsælum barnalögum. Alls hafa 670 manns frá 60 löndum víðsvegar um heiminn útskrifast frá Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. 24 nemendur til viðbótar eru nýlega mættir til landsins eða á leiðinni til náms í ár. Skólinn fagnar 40 ára afmæli ár, en hann var stofnaður í desember 1978 og árið eftir komu fyrstu tveir nem- endur skólans til náms á Íslandi í jarðhitafræðum. Af því tilefni verður haldin afmælishátíð í Hörpu í dag, fimmtudag, og fer hún fram í tengslum við Jarðhitaráðstefnuna IGC 2018. Í dag verða tvær fyrir- lestraraðir um starfsemi Jarðhita- skólans í Rimasal Hörpu, og hefst dagskráin kl. 8:45 með ávarpi Þórdís- ar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, ráð- herra atvinnuvega og nýsköpunar. Síðan flytja starfsmenn skólans kynningar um starfsemi hans í fortíð og nútíð og stöðu hans til framtíðar. Áhrif í þróunarlöndum Einnig verða flutt nokkur erindi um áhrif Jarðhitaskólans á þróun jarðhitanýtingar hjá nokkrum af helstu samstarfsaðilum í þróunar- löndunum. Þau eru flutt af fimm er- lendum heiðursgestum, fyrrverandi nemendum skólans, sem nú eru í for- ystuhlutverki í jarðhitamálum í heimalandi sínu og koma sérstaklega til Íslands vegna þessa viðburðar. Seinni fyrirlestraröðin er níu stutt- ar kynningar meistara- og doktors- styrkþega á rannsóknarverkefnum í jarðhitavísindum eða -verkfræði, sem unnin eru við Háskóla Íslands og Há- skólann í Reykjavík. Á afmælishátíðinni verður einnig undirritaður samningur milli Jarð- hitaskólans og jarðhitafyrirtækisins LaGeo (sem er hluti af CEL – lands- virkjun El Salvador) um áframhald- andi samstarf vegna diplómanáms í jarðhitafræðum á spænsku fyrir Rómönsku Ameríku, sem haldið hef- ur verið síðustu ár við Háskóla El Salvador. Þá liggja fyrir drög að vilja- yfirlýsingu um áframhaldandi sam- starf við KenGen og GDC, tvö helstu jarðhitafyrirtæki Kenía. Fertugasta starfsár Jarðhitaskól- ans hófst með skólasetningu 17. apríl. Skólinn býður upp á sex mánaða þjálfun fyrir starfsfólk í jarðhitageir- anum í þróunarlöndum auk styrkja sem hann veitir til meistara- og dokt- orsnáms við HÍ og HR og árlegs námskeiðahalds í þróunarlöndunum fyrir jarðhitafólk. Þeir 24 nemendur sem hófu nám við JHS í ár koma frá 14 löndum. Í ár komu nemarnir frá: Bólivíu (2), Djí- bútí (1), Ekvador (1), El Salvador (1), Eþíópíu (2), Filippseyjum (1), Ind- landi (1), Indónesíu (3), Kenía (5), Kína (2), Nevis (1), Sankti Lúsíu (1), Tansaníu (2), og Sambíu (1). Þetta er í fyrsta skipti sem nemandi frá Sankti Lúsíu hefur nám hjá skólanum. Flestir frá Afríku og Asíu Nemendur skólans til þessa hafa skipst á heimshluta þannig að frá Afríku hafa komið 39%, Asíu 35%, Rómönsku Ameríku og Karíbahafs- eyjum 14%, Austur- og Mið-Evrópu 11% og 1% frá Eyjaálfu. Hlutur kvenna eykst stöðugt og er það markviss stefna JHS að ýta undir þá þróun. aij@mbl.is 670 nemendur frá 60 löndum Tveir skólastjórar » Lúðvík Georgsson hefur ver- ið skólastjóri Jarðhitaskólans frá árinu 2013. » Ingvar Birgir Friðleifsson var fyrsti skólastjóri JHS og leiddi starfið til ársins 2013. » Fjárveitingar til Jarðhita- skólans eru hluti af framlagi Ís- lands til þróunaraðstoðar.  40 ára afmæli Jarðhitaskólans Jarðhitaskólinn Nemendur við mælingar á koltvísýringi í jarðvegi. 2 1FYRIR Yoyo ís Kynntu þér Vinahópinn á olis.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.