Morgunblaðið - 26.04.2018, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 26.04.2018, Qupperneq 39
Íbúar í sveitarfélögunum á Vestfjörðum eru samtals 6.994 Stærsta sveitarfélagið er Ísafjarðarbær, en þar búa 3.707 manns Fæstir íbúar eru í Árneshreppi, fámennasta sveitarfélagi landsins, 43 talsins Í kosningunum 26. maí munu 53 frambjóðendur taka sæti í hreppsnefndum, sveitarstjórnum og bæjarstjórnum á Vestfjörðum MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2018 „Ef þetta laxeldi kæmi yrðum við orðnir nokkuð sáttir í bili,“ segir Kristján Jón Guðmundsson í Bol- ungarvík. Hann var nýbúinn að hífa bát sem hann á ásamt öðrum á flot og var að skoða ástand kjal- arins er blaðamann og ljósmynd- ara Morgunblaðsins bar að garði. „Við nennum alveg að vinna ef við fáum vinnu og við getum al- veg bjargað okkur ef við fáum leyfi til þess. Þetta felst í því að það séu einhver tækifæri fyrir menn hérna, því að við erum ým- islegt að hugsa. Þetta er það brýnasta sem er í deiglunni.“ Kristján segir Óshlíðargöngin hafa aukið samvinnu Bolvíkinga og Ísfirðinga og sér fyrir sér að hún aukist enn. „Við höfum verið eins og aðrir, lifað í hrepparíg og svona, en núna er það bara búið. Það er frístundarúta á milli Bol- ungarvíkur og Ísafjarðar, sem er gífurleg breyting fyrir fólk sem er með börn í íþróttum. Þó að maður verði alltaf Bolvíkingur vil ég að Ísafjörður lifi vel, því að ef Ísafjörður lifir illa, þá lifum við líka illa,“ segir Kristján Jón. Við höfnina í Bolungarvík Morgunblaðið/Eggert Strandveiðar Taka þurfti bátinn á land þar sem eftirlitsmenn voru væntanlegir til að taka út ástand kjalarins eftir vetrarlegu í höfninni. Aukin samvinna sveitarfélaganna Bolvíkingur Kristján Jón Guðmundsson á bryggjunni. Vestfirðir skiptast í raun í þrjú atvinnusvæði, allavega yfir vetrar- mánuðina, sem aðskilin eru af mis- góðum vegum. Góð og áreiðanleg hringtenging Vestfjarða var viðmæl- endum á norðanverðum Vestfjörð- um ofarlega í huga, en það var á því svæði sem Morgunblaðið stakk nið- ur fæti og tók púlsinn. „Mér finnst mikilvægast að við fáum jákvæðari umfjöllun út á við og sterkari innviði,“ segir Kristín Guð- munda Pétursdóttir, sem rekur gistiheimilið Litlabýli á Flateyri. „Svo er það náttúrlega atvinnulífið. Það þyrfti að vera áhugaverðara að koma hingað og vinna. En mér finnst núna vera fullt af verkefnum í gangi sem eru mjög heillandi.“ Nefnir Kristín þar fyrst Lýðhá- skólann á Flateyri, en þar verða fyrstu nemendurnir teknir inn í haust, og einnig laxeldisáform í Ísa- fjarðardjúpi, sem hafa verið í um- ræðunni um nokkurt skeið. „Það yrði rosa lyftistöng fyrir þessi bæj- arfélög varðandi atvinnu. Þetta er svo keðjuverkandi. Þjónustan er meiri eftir því sem það er meira að gerast,“ segir Kristín. Hún segir þó að það þurfi kannski ekki að setja öll eggin í sömu körfuna og vísar þar til laxeldisáformanna. Vill gera meira út á lífsgæðin Kristínu finnst sveitarfélögin á Vestfjörðum mega gera meira í því að markaðssetja þau lífsgæði sem felist í því að búa í fjórðungnum. „Ég held að það megi gera að- eins meira út á þau. Þú hefur ein- hvern veginn meiri tíma, það er allt innan þessa hálftíma ramma, hvort sem þú ert að fara á Þingeyri, Suð- ureyri, Ísafjörð, Bolungarvík eða Súðavík,“ segir Kristín. Sveitarfélagið Ísafjarðarbær varð til árið 1996 með sameiningu sex sveitarfélaga í eitt. Kristín telur mikilvægt að minni byggðarlögin eigi sér allavega einn fulltrúa hvert í sveitarstjórn eftir kosningar. „Ég held að mörgum finnist við skilin dálítið útundan, en ég held að við þurfum bara að vinna betur sam- an,“ segir Kristín. „Þú valdir að búa hérna“ „Mannsæmandi vegir eru ofar- lega á lista held ég hjá okkur flest- um,“ segir tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson í Súðavík. Hann segir blaðamanni frá því að þessa dagana fari starfsmaður Vegagerð- arinnar nokkrum sinnum á dag með- fram hinni snarbröttu Súðavíkurhlíð og ýti grjóti sem fallið hafi á veginn út fyrir veg. Svo lokist Súðavíkur- hlíðin einnig oft á veturna og það geti verið óþægilegt fyrir íbúa. „Maður hefur verið hræddur, við erum með tvo stráka hérna og þetta eru stundum tveir til þrír dag- ar. Ef einhver dettur og meiðir sig eða eitthvað gerist, þá er það óþægi- leg tilfinning. En svo á ég frænda sem er helvíti skemmtilegur og hann segir: „Þú valdir að búa hérna,“ og það er punktur á eftir því,“ segir Örn Elías og hlær. Íbúar í Súðavík eru rúmlega 130 og tæplega 200 í Súðavíkur- hreppi öllum. Örn Elías segir ekki barist um að taka að sér það sam- félagslega hlutverk að sitja í sveit- arstjórn. „En það eru nokkrir sem hafa greinilega samfélagið sem áhugamál, þetta er greinilega ákveð- in týpa, svona formaður-húsfélags- ins-týpa, sem fer í þetta. Þetta er náttúrlega bara stórt húsfélag,“ seg- ir Örn. Hann segir smæð sveitar- félagsins vera mikinn kost, boðleiðir séu stuttar á milli fólks og hægt að koma hlutum fljótt í framkvæmd. Það geti þó einnig verið galli. „Þetta er allt of nálægt og stundum vantar fagaðila eða eitt- hvert lengra ferli í einhverjar ákvarðanatökur,“ segir Örn, sem vill þó ekki nefna sérstakt dæmi um slíkt. „Ég kem mér í svo mikinn vanda, maður. Þá kemst ég ekki í kaffi uppi í kaupfélagi.“ Háþrýstiþvottur Bátur þveginn á bryggjunni í Bolungarvík.  Bolvíkingurinn Kristín Helga Hag- barðsdóttir og Ísfirðingurinn Hákon Ernir Hrafnsson frá Ísafirði eru í for- svari fyrir nemendafélag Mennta- skólans á Ísafirði, gjaldkeri og formað- ur. Þau eru sammála um að fyrirhugað laxeldi í Ísafjarðardjúpi sé mikilvæg- asta hagsmunamál sveitarfélaga sinna. „Það er langmikilvægasta málið,“ segir Hákon Ernir. „Það skapast svo mikil atvinna í kringum þetta,“ segir hann og bætir við að lengi hafi það verið hugsunin á Ísafirði að ekki þyrfti að stækka skólana né bæta innviði samfélagsins, þar sem búist hafi verið við því að fólki myndi fækka. Fiskeldið sé forsenda þess að hægt sé að horfa til framtíðar með það í huga að bærinn sé að fara að stækka. Kristín Helga nefnir að sálfræði- þjónustu sé verulega ábótavant á svæðinu og Hákon samsinnir því. „Nú er enginn sálfræðingur hér, ég á vinkonu sem þarf á sálfræðiþjónustu að halda og hún þarf að borga 16 þús- und fyrir hvern tíma og þá þarf sál- fræðingur að koma að sunnan,“ segir Kristín Helga. „Þetta eru samt kannski ekki vandamál sem snerta endilega sveit- arstjórnarkosningarnar, en þetta er eitthvað sem bærinn þarf að berjast fyrir og þeir sem eru að leiða bæinn þurfa að vera sýnilegir í umræðunni,“ segir Hákon Ernir. Morgunblaðið/Eggert Nemar Hákon Ernir og Kristín Helga í miðrými Menntaskólans á Ísafirði. Menntskælingar leggja áherslu á laxeldi og sálfræðiþjónustu  Næst verður komið við á Norð- urlandi vestra og fjallað um það sem þar er efst á baugi fyrir sveit- arstjórnarkosningarnar í maí. Á laugardaginn Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan GÆÐA BAKKAMATUR Sjá heimasíðu www.veislulist.is Veislulist afgreiðir hádegismat í bökkum alla daga ársins, bæði fyrir fyrirtæki og stofnanir. Í yfir 40 ár hefur Veislulist lagt áherslu á góða þjónustu og framúrskaran matreiðslu. Hádegismatur Verð kr. 1.370 Lágmark 3 bakkar + sendingargjald d MisMUnAndi RéTTiR AllA dAGA viKUnnAR EldUM EinniG fyRiR MöTUnEyTi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.