Morgunblaðið - 26.04.2018, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 26.04.2018, Qupperneq 60
7.30 Klukkan hringir, við- urkenni að ég „snúsa“, er að venja mig af þessu, maður verður bara þreyttari. Næst þegar síminn hringir kveiki ég á morgunþættinum á K100. Hlátrasköll, spjall og skemmtileg tónlist rífa mig fram úr. 8.00 Yfir morgunmatnum renni ég yfir blöðin og hlusta – og horfi – á „Ísland vaknar“. Síminn fylgir mér um alla íbúð sem útvarp og sjónvarp. Fínn tími til að ganga frá þvotti. Ég tek ómeðvitaða pásu til að fylgjast með Helga Björns rúlla upp skemmtilegri get- raun hjá Loga, Rikku og Rúnari Frey. „Þetta er skemmtilegt,“ hugsa ég og opna Trello-appið í símanum. Ég skrifa „ÍV: Helgi Björns“ í plan síðdegisþáttarins Magasínsins til að minna mig á að klippa stutt brot úr þessu. 9.00 Undirbúningur Magas- ínsins felst í því að finna áhugavert efni og punkta sem við Ásgeir Páll getum spjallað um í þættinum, en hann leysir Huldu af í dag. Í gær sagði Gilbert úrsmiður okkur frá HM-úri, hugmynd að framhaldsefni kviknar og ég bóka Krumma gullsmið frá Jóni og Óskari í dag. Bóka það í Trello-ið með grænum lit, merkt „Staðfest“, skipu- lag auðveldar undirbúning. Lít yfir þáttinn næstu daga og minni tvo gesti föstudagsþáttarins á bókunina, það er ekki algilt að fólk setji það í dagbókina sína að það eigi að mæta í útvarpsþátt. 11.00 Samhliða útvarpsvinn- unni fyrir K100 rek ég framleiðslufyrirtækið SIGVA media, það þarf að borga reikninga og sinna pappírsmálum. 11.30 Fer inn í Herjólfsdal … í huganum, við klippingu heimildarmyndar um þjóðhátíð sem er stærsta verkefnið hjá SIGVA media núna, gefandi að sjá upptökur hátíðanna frá 2014 raðast saman. 13.00 Skelli mér í sund, 500 metrarnir eru orðnir að 750 metrum. Dásamleg endurnýjun á miðjum degi og enn fleiri hug- myndir fæðast. 14.30 Mæti ekki alltaf svona seint í Hádegismóa en sumir furða sig kannski á því að ég birtist eins og stjarna einum og hálf- um tíma fyrir útsendingu. Við Ás- geir Páll förum yfir þáttinn, hann bannar mér að hlusta á hljóðbrotið „Leyndó“ í útsendingarkerfinu. Fyndið, hann veit ekki að ég er að klippa óvænt atriði fyrir hann. Stundum hugsum við alveg eins. 15.50 „Eigum við að búa til útvarp,“ segir Auðun Georg fréttamaður, til að minna á að klukkan er að verða fjögur. Ég gríp vatnsglas, bið Ásgeir að sækja kaffi- bolla og við komum okkur fyrir í stúdíóinu. Erna Hrönn kveður og ég ávarpa þjóðina á slaginu: „Þetta er K100. Klukkan er fjögur og það er komið að fréttum – hér er Auðun Georg.“ 16.00 Eftir fréttir frá Auðuni Georg spila ég útgáfu af upphafsstefi þáttarins sem stoppar eins og slökkt sé á plötuspilara, stríði Ásgeiri á einhverju sem hann sagði og „skrúfa þáttinn í gang aft- ur“. Þetta skapar hlátur í stúdíóinu og við förum brosandi af stað. Ásgeir hugsar í hljóðmyndum eins og ég, í næstu innkomu spilar hann fyrir mig „leyndó-ið“ sitt og spyr mig hvað sé að gerast. Þetta reynist vera grínupptaka af Rikku leika hund. 16.30 Viðtalið við Krumma gullsmið um HM- hringinn er skemmtilegt, sonur hans situr hjá okkur og les Andrésblöð á meðan. Eftir viðtalið spilum við lag og sinnum samfélagsmiðlum. Í In- stagram-upptöku missi ég HM- hringinn í gólfið, Ásgeir grípur hann, krýpur á kné og segir: „Hvati, viltu vera minn?“ 17.50 Eftir tvær klukkustund- ir í hljóðverinu lýkur þættinum á stutta brotinu með Helga Björns úr morgunþættinum, ég spring úr hlátri yfir Ásgeiri sem hermir eftir Helga í lokakynningu þáttarins. „Magasínið aftur á morg- un – á ká hundreeeð.“ 18.00 Þó þátturinn sé búinn er nóg eftir. Það þarf að skrifa greinar og klippa hljóð- og myndbrot fyrir k100.is og sam- félagsmiðla. 20.00 Keyri frá Hádeg- ismóum, nota tímann til að heyra í konunni og krökkunum í Eyjum. Það jarðtengir mig að kíkja við hjá ættingja á Landspítalanum sem er að jafna sig eftir aðgerð. 21.30 Kominn „heim“ í Kópa- voginn að rifja upp UML-díagrömm með elsta syninum sem fer í próf í tölvunarfræðinni í fyrramálið. 22.30 „Símafundur“ með frúnni, vegna fjarbúðar tölum við mikið saman í síma, sem er í sjálfu sér kostur. 00.00 Hugleiði ýmis lífsins verkefni og hugsa með mér: „Sighvatur, fyrr að sofa á morgun.“ Góður gestur Gilbert úrsmiður ásamt Hvata og Ásgeiri Páli í stúdíó K100. Að þessu sinni ætlar Sighvatur Jónsson, eða bara Hvati, að gefa lesendum innsýn í einn dag í síðustu viku. Hann stýrir síðdegisþætti K100, Magasín- inu, alla virka daga frá kl. 16-18 ásamt Huldu Bjarnadóttur. Dagur í lífi Hvata Magasínið Hvati ásamt Huldu Bjarna sem stýrir Magasíninu með honum. 60 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2018 bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Enn einn dagur í Paradís Bez t á bo rgarann
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.