Morgunblaðið - 26.04.2018, Síða 73

Morgunblaðið - 26.04.2018, Síða 73
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2018 Nýr Landspítali við Hringbraut Jarðvinna meðferðarkjarna, götur og veitur Útboð nr. 20737 Nýr Landspítali ohf. (NLSH) óskar eftir tilboðum í verkið „Nýr Landspítali við Hringbraut–Jarðvinna meðferðarkjarna, götur og veitur–Áfangi 1“. Verkið er hluti af Hringbrautarverkefninu, nýjum Landspítala við Hringbraut, í samræmi við lög nr. 64/2010 og felst meðal annars í: • Upprifi á núverandi yfirborði gatna, göngustíga, bílastæða og grænna svæða. • Nýbyggingu gatna, bílastæða og gönguleiða, ásamt lóðafrágangi. • Allri jarðvinnu fyrir meðferðakjarna og mögulegum bílakjallara austan meðferðarkjarna. • Uppbyggingu tengiganga og stoðveggja. • Gerð undirganga við Snorrabraut. (Samvinnu- verkefni NLSH ohf. og Reykjavíkurborgar). • Gerð bráðabirgðabílastæða. • Allri vinnu við lagnir á svæðinu, þ.m.t. breytingum á veitukerfum vegna vinnu við meðferðarkjarna. Verkinu er skipt upp í nokkra áfanga. Áætlað verkupphaf er við töku tilboðs. Upplýsingar um verklok og áfangaskil er að finna í útboðsgögnum. Útboðsgögn eru aðgengileg, á vef Ríkiskaupa. Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík, 6. júní 2018, kl. 10:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Framkvæmdasýsla ríkisins (FSR), í samræmi við lög um skipan opinberra framkvæmda nr. 84/2001, er samstarfsaðili Nýs Landspítala ohf. Tilkynningar Kynningarfundur um skipulagsmál Akraneshöfn og Grenjar hafnarsvæði Almennur íbúafundur verður haldinn í bæjarþingsalnum, þriðju hæð að Stillholti 16-18, miðvikudaginn 2. maí nk. og hefst hann kl. 18:00. Kynntar verða breytingar á aðal- og deiliskipulagi eftirfarandi svæða: Akraneshöfn - aðalhafnargarður Fyrirhuguð breyting felst m.a. í nýjum hafnarbakka með 220 m viðlegu, þ.e. 90 m lenging á núverandi bakka. Brimvarnargarður er lengdur um 60 m. Öldudeyfing milli Aðalhafnargarðs og Bátabryggju lagfærð og bætt. Grenjar hafnarsvæði Fyrirhuguð breyting felst m.a. í stækkun landfyllingar um 12-13.000 m2 til norðausturs út í Krókalón. Breytingin er til að stækka lóðina Bakkatún 30 svo mögulegt verði að heimila þar stækkun á iðnaðarbyggingu um 4000 m2. Allir velkomnir - heitt á könnunni! Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs SK ES SU H O R N 2 01 8 Verkefnislýsing fyrir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008–2028 Kröflulína 3 er fyrirhuguð frá tengivirki við Kröflu- virkjun í Skútustaðahreppi að tengivirki við Fljóts- dalsstöð í Fljótsdalshreppi. Í gildandi Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 er gert ráð fyrir línunni og að hún liggi meðfram Kröflulínu 2, sem þegar er risin. Innan Fljótsdalshéraðs liggur línan frá vestari staðarmörkum sveitarfélagsins í Jökulsá á Fjöllum við Núpaskot að staðarmörkum Fljótsdalshrepps á Klausturselsheiði. Landsnet lagði í júlí 2017 fram umhverfisskýrslu í samræmi við lög um mat á um- hverfisáhrifum nr. 106/2000. Þar kemur fram að sá kostur sem Landsnet telur nú heppilegastan, víkur frá línuleiðinni í aðalskipulaginu á 10 km kafla innan Fljótsdalshéraðs. Auk framangreinds mats á umhverfisáhrifum liggur fyrir álit Skipulagsstofnunar dagsett 6. desember 2017 (nr. 201409068). Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs hyggst verða við ósk- um Landsnets um að leggja fram tillögu að breyttu aðalskipulagi þar sem gert sé ráð fyrir línuleið skv. aðalvalkosti á 10 km kafla frá Núpaskoti að Sauðahnjúk. Tilgangur Kröflulínu 3 er að bæta raforkukerfi land- sins, tryggja stöðugleika raforkukerfisins á Norður- og Austurlandi með betri samtengingu þessara landshluta, auka flutningsgetu, öryggi raforkuaf- hendingar og gæði raforku. Útbúin hefur verið verkefnislýsing þar sem gerð er grein fyrir ofangreindri breytingu á aðalskipulaginu og umhverfismati hennar og er lýsingin aðgengileg á vef sveitarfélagsins www.fljotsdalsherad.is. Íbúar og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér efni hennar og koma á framfæri ábendingum. Óskað er eftir því að ábendingar komi fram fyrir 10. maí 2018. Ábendingar má senda til skipulagsfulltrúa í tölvupósti á netfangið gunnlaugur@egilsstadir.is eða í bréfi til bæjarskrifstofu Fljótsdalshéraðs. Kynning lýsingarinnar og tillögu að breyttu skipulagi, þ.m.t. þessi auglýsing, er skv. 30. grein skipulags- laga nr. 123/2010 og skv. lögum um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. f.h. Bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson, skipulags- og byggingarfulltrúi. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9 og gönguhópurinn leggur af stað kl. 10.50. Myndlist kl. 13 og bókmenntaklúbburinn mætir í hús kl. 13.15 og kaffið á sínum stað kl. 14.30, allir velkomnir í brauð og kökur. Árskógar Smíðastofan er lokuð. Leikfimi með Maríu kl. 9. Helgistund Seljakirkju kl. 10.30. Handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16. Myndlist með Elsu kl. 13-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. S. 535-2700. Boðinn Botsía kl. 10.30. Brids og kanasta kl. 13. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10- 10.30. Vítamín í Valsheimilinu kl. 9.30-11.30. Bókband kl. 13-16. Bóka- bíllinn kemur kl. 14.30. Söngstund með Gylfa kl. 13.30, allir hjartan- lega velkomnir. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Dalbraut 18-20 Söngstund með Sigrúnu kl. 14. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Opin handverkstofa kl. 9. Vítamín í Valsheimilinu kl. 9.30. Postulínsmálun kl. 13. Kaffiveitingar kl.14.30. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Handavinna kl. 9-12, bókband kl. 9-13, Vítamín í Valsheimilinu, rúta leggur af stað kl. 9.45, kvikmyndasýning kl. 12.5-14.30, frjáls spilamennska kl. 13-16, handavinnuhópur kl. 13.30-16. Kaffiveitingar kl. 14.30-15.30. Verið öll velkomin til okkar í dag, síminn er 411-9450. Furugerði 1 Vinnustofa og útskurður allan daginn. Framhaldssögu- lestur kl. 10 og sitjandi leikfimi kl. 11. Klukkan 13 er spiluð vist og/eða brids og farið í göngu. Botsía er á sínum stað kl. 14. Garðabær Vatnsleikfimi í Sjálandi kl. 7.40/8.20/15.15. Qi gong Sjá- landi kl. 9. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Karlaleikfimi í Sjálandi kl. 11. Stólaleikfimi í Sjálandi kl. 11.50. Botsía í Sjálandi kl. 12.10. Handvinnuhorn í Jónshúsi kl. 13. Saumanám í Jónshúsi kl. 13, vöfflukaffi í Jónshúsi. Barnakór leikskólans Hæðar- bóls syngur í Jónshúsi kl. 14. Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Leikfimi Maríu kl. 10- 10.45. Perlusaumur kl. 13-16. Bútasaumur kl. 13-16. Myndlist kl. 13-16. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.45 leikfimi, kl. 10.50 jóga, kl. 13 bók- band, kl. 13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 14 Gjábakkagleðin (sam- söngur við undirspil), kl. 14 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 16.10 myndlist. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9-14. Jóga kl. 10.10-11.10. Hádegismatur kl. 11.30. Ættir og örnefni kl. 13, spjallhópur sem ræðir ættir og æskuslóðir, allir velkomnir að vera með. Brids kl. 13. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, opin vinnustofa frá kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45, botsía kl. 10, hádegismatur kl. 11.30. Spiluð félagsvist kl. 13.15, kaffisala í hléi. Hársnyrting 517-3005, kem einnig heim ef þess er óskað. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl. 8.50, morgunandakt kl. 9.30. steinamálun með Júllu komið í sumar- frí, leikfimin með Guðnýju kl. 10, listasmiðjan er opin fyrir alla frá kl. 9-16, Selmuhópur kl. 13, sönghópur Hæðargarðs kl. 13.30, síðdegis- kaffi kl. 14.30, línudans með Ingu kl. 15-16, nánari upplýsingar í Hæðargarði eða í síma 411-2790. Allir velkomnir með óháð aldri. Korpúlfar Sundleikfimi kl. 7.30 í dag, leikfimi í Egilshöll kl. 11, skák- hópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum, tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13 í dag og botsía kl. 16 í dag í Borgum. Norðubrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, bókabíllinn kl. 10.30- 11, upplestur kl. 11, opin listasmiðja með leiðbeinanda kl. 9-16, ganga með starfsmanni kl. 14, tölvu- og snjall- tækjakennsla kl. 15.30. Uppl. í s. 4112760. Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Hádegisverður er kl. 11.30-12.15 og kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30-15.30. Botsía kl. 13.15 á sléttum vikum. Allir eru hjart- anlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568-2586. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.15. Bókband Skóla- braut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga salnum Skólabraut kl. 11. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 12. Auka- spiladagur í dag, félagsvist í salnum á Skólabraut kl. 13.30. Karlakaffi í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 14. (Ath. fyrirhuguðu grillkvöldi sem vera átti í kvöld er frestað um ókveðinn tíma) Stangarhylur 4 Zumba kl. 10.30, umsjón Tanya. Bókmenntahópur, umsjón Jónína Guðmundsdóttir kl. 14. Þá kemur höfundur bókanna, Vilborg Davíðsdóttir, í heimsókn, segir frá þríleik sínum um Auði djúpúðgu og sýnir myndir frá sögustöðum, allir velkomnir. Tónleikar Grensáskirkju föstudag 27. apríl kl. 17, Kór Félags eldri borgara og Karlakórinn Kátir karlar, stjórnandi Gylfi Gunnarsson. Tilboð/Útboð Tilboð/Útboð Raðauglýsingar 569 1100 Skútustaðahreppur Tillaga að deiliskipulagi vegna fyrir- hugaðrar smávirkjunar við Drekagil. Sveitarstjórn Skútustaðahrepps samþykkti þann 25. apríl 2018 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi smávirkjunar við Drekagil í Skútustaðahreppi skv. 1. mgr. 41 gr. skipulaglaga nr. 123/2010. Neyðarlínan ohf áformar að koma upp smávirkjun í ána sem rennur úr Drekagili í þeim tilgangi að rafvæða fjarskiptastöð fyrirtækisins á Vaðöldu. Gert er ráð fyrir að sumarrennsli dugi fyrir um 30 kW orkuframleiðslu, og áætlað vetrarrennsli fyrir um 10 kW. Áætlað er að fjarskiptastöðin muni nota um 5 kW, og umframorka yrði nýtt til að halda varma á skálunum í Dreka. Fyrirhuguð fallpípa frá inntaki yrði um 300 m að lengd og 0,5 m í þvermál og er hún niðurgrafin alla leið, norðan árinnar, að um 8 m² stöðvarhúsi sem staðsett yrði um 600 m suðaustan við skálana. Gert er ráð fyrir að leggja um 10 km langan jarðstreng frá fyrirhugaðri virkjun að fjarskiptastöðinni á Vaðöldu. Tillögunni fylgir umhverfisskýrsla sem er unnin skv. lögum um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð munu liggja frammi á skrifstofu Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatni frá og með fimmtudeginum 26. apríl til og með fimmtudeginum 7. júní 2018. Þá eru tillögurnar einnig aðgengilegar á heimasíðu Skútustaðhrepps: http://www.skutustadahreppur.is undir Skipulagsauglýsingar (efst á forsíðu). Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út fimmtudaginn 7. júní 2018. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests. Skila skal athugasemdum skriflega til skrifstofu Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatni og/eða í tölvupósti á netfangið: bjarni@ thingeyjarsveit.is. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna teljast henni samþykkir. Bjarni Reykjalín, skipulags- og byggingarfulltrúi Skútustaðahrepps.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.