Morgunblaðið - 26.04.2018, Side 80

Morgunblaðið - 26.04.2018, Side 80
80 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2018 Renndu við hjá okkur í Tangarhöfða 13 FAI varahlutir Ódýrari kostur í varahlutum! stýrishlutir hafa verið leiðandi í yfir 10 ár. Framleiddir undir ströngu eftirliti til samræmis við OE gæði. Sími 577 1313 kistufell.com TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ Mikil gróska einkennirmálaralistina á Íslandiog fjölmargir ungirlistamenn vinna með málverk í víðum skilningi hugtaksins í dag. Á sýningunni Margoft við sjáum og margoft við sjáum aftur má sjá innsetningu Jóhönnu Krist- bjargar Sigurðardóttur sem sam- anstendur af skúlptúrum, vídeó- verkum og abstraktmálverkum þar sem samspilið milli verkanna er í forgrunni. Stór himinblár renningur mætir áhorfandanum í miðjum að- alsal Hafnarborgar, á honum stend- ur stór viðarskúlptúr sem kallast á við form í málverkum á veggjum sem eru sum hver hefðbundin olíu- málverk á striga, önnur lágmyndir á vegg eða máluð beint á veggi sýning- arrýmisins. Verkin mynda innsetn- ingu sem tengist texta í ljóðabók sem Jóhanna gaf út á síðasta ári og titill sýningarinnar er sóttur til. Jóhanna býr og starfar í Belgíu það- an sem hún lauk framhaldsnámi í myndlist. Á sýningunni gefur að líta bæði ný og eldri verk en síðasta einkasýning hennar á Íslandi var í Listasafni ASÍ árið 2015. Hún átti einnig verk á samsýningunni Ný- málað sama ár og á sýningunni Plan-B í Borgarnesi á síðastliðnu ári. Eins og áður segir er hér um að ræða bæði ný og eldri verk þar sem þremur innsetningum hefur verið rennt saman í eina heild. Í hliðarsal má sjá verk sem voru á sýningunni (Neo) Constructiv-Emotionalism í Antwerpen árið 2013. Yfirskriftin, sem þýða mætti sem nýjan tilfinn- ingakonstrúktívisma, er tilvísun í móderníska listhefð í upphafi 20. aldar eins og rússneska súprema- tista og konstrúktífista en með öðr- um formerkjum í meðförum Leikgleði í ljóðrænu samtali Morgunblaðið/Valli Ljóðrænt Verkin mynda innsetningu sem tengist texta í ljóðabók sem Jóhanna gaf út í fyrra. Hafnarborg Margoft við sjáum og margoft við sjáum aftur – Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir bbbmn Hafnarborg. Til 27. maí 2018. Opið alla daga nema þriðjudaga frá kl. 12-17. ALDÍS ARNARDÓTTIR MYNDLIST Ný og eldri Á sýningunni gefur að líta bæði ný og eldri verk eftir Jóhönnu. Ólíkir miðlar Jóhanna sýnir skúlptúra, vídeóverk og abstraktmálverk. Jóhönnu. Á gólfi eru þríhyrndir skúlptúrar málaðir í brúnum og dumbrauðum lit, eitt málverk hangir stakt á vegg en vídeóverk og önnur málverk eru á lausum viðargrindum sem skorðaðar eru af með grófum hellusteinum sem skapar létt en um leið hrátt yfirbragð. Jarðlitir eru áberandi í verkunum og formin ákveðin og í þeim leikur Jóhanna sér með myndmál sem býr yfir fortíð- arþrá og leiðir hugann til að mynda til listamanna eins og Theos van Do- esburg sem var einn forsprakka De Stijl-hópsins sem var stofnaður árið 1917 í Hollandi. Í aðalsal má sjá verk frá 2015 sem einnig voru sýnd í Antwerpen og Gent og Listasafni ASÍ, í bland við ný verk sem sum eru unnin á staðn- um. Hér má sjá hvernig losnar um formin og þau opnast eða jafnvel frelsast á myndfletinum. Á löngum vegg vinstra megin í salnum má sjá hvernig birtir yfir litapallettunni. Línuteikning er leikandi og frjáls og formin opnari en í fyrri verkum Jó- hönnu. Hér kemur aftur fram sterk tenging í listasöguna þar sem fínleg málverk belgíska listamannsins Georges Vantongerloo (sem einnig var meðlimur í De Stijl) frá því á seinni hluta fjórða áratugarins koma upp í hugann. Einlit form í lágmyndum á veggj- um og í skúlptúrum á gólfi kallast á í endurteknu stefi út sýninguna. Skúlptúrar á gólfi eru ýmist ómál- aður viður eða málaðir í bleikum, gulum og bláum litum sem bera með sér einlæga leikgleði. Skúlptúr verð- ur málverk og málverk skúlptúr og mörkin þar á milli eru óljós. Jóhanna vísar í hefð málaralistarinnar en nýt- ir sér vídeótækni nútímans sem víkkar út möguleika til tjáningar í víðu samhengi miðilsins, en þar bregður listakonunni sjálfri fyrir. Verkin á sýningunni eru abstrakt myndljóð sem listamaðurinn raðar saman í rýminu og myndar flæði sköpunar líkt og rithöfundur sem skipar orðum á blað og færir þannig tjáningu sína í orð og gefur þeim merkingu. Í Hafnarborg hefur Jóhanna tvinnað saman sjónrænu myndmáli málverksins í samhengi við söguna og samtímann. Litir, fletir og form kallast á í rýminu í ljóðrænu samtali. Úr verður persónulegur mynd- heimur þar sem áhorfandanum er veittur aðgangur en merkingin er honum ekki endilega læsileg, enda skiptir það ekki öllu máli. Honum er eftirlátið að búa til sína eigin sögu og sýn með ferð sinni um rýmið og skapa um leið ólík sjónarhorn á verkin. Hin sígilda kvikmynd tékkneska leikstjórans Miloš For- mans, Amadeus, frá árinu 1984, verður sýnd á bíótón- leikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld og annað kvöld í Eldborgarsal Hörpu. Sinfóníuhljómsveitin, und- ir stjórn svissneska hljómsveitarstjórans Ludwigs Wicki, sér um lifandi flutning tónlistar ásamt Mót- ettukór Hallgrímskirkju sem Hörður Áskelsson stjórn- ar en malasíski píanóleikarinn Mei Yi Foo leikur ein- leik. Handrit Amadeus er byggt á samnefndu leikriti Peters Shaffers og hlaut kvikmyndin átta Óskars- verðlaun árið 1985. Tónlist tónskáldsins Wolfgangs Amadeus Mozarts er í forgrunni í henni en önnur að- alpersóna sögunnar er hirðtónskáldið Antonio Salieri og sjónum beint að glímu hans við æðri máttarvöld. Morgunblaðið/Valli Einbeitt Ljósmyndari leit inn á æfingu fyrir bíótónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í gær. Á tjaldi fyrir ofan hljómsveitina sést hin margverðlaunaða kvikmynd Amadeus sem fjallar um tónskáldið Wolfgang Amadeus Mozart. Æft fyrir Amadeus-bíótónleika Sinfó

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.