Morgunblaðið - 26.04.2018, Síða 89

Morgunblaðið - 26.04.2018, Síða 89
MENNING 89 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2018 Listahátíð barna hefst í Reykja- nesbæ í dag og er hátíðin sam- vinnuverkefni Listasafns Reykja- nesbæjar, allra leikskóla og grunnskóla bæjarins, tónlistarskól- ans, dansskólanna Bryn ballett aka- demíunnar og Danskompanís og listnámsbrautar Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Í Duus safnahúsum verða listsýn- ingar leik-, grunn- og listnáms- brautar framhaldsskólans sem hafa unnið stóran hluta veturs að verk- efnum sínum og er yfirskrift sýn- inganna í ár Börn um víða veröld. Börnin hafa sökkt sér í viðfangs- efnið og skoðað hvað börn um allan heim eiga sameiginlegt. Á laugardaginn, 28. apríl, verður svo boðið upp á fjölskyldudag á svæðinu í kringum Duus safnahús með alls kyns listasmiðjum og uppákomum og má þar nefna að skessan í hellinum býður upp á lummur, Sirkus Íslands kemur í heimsókn og í lok dags verður gleðistund með dýrunum í Hálsa- skógi. Á sunnudag verða haldnir fjölskyldutónleikar með poppívafi í Stapa. Fleiri viðburðir eru á dagskrá hátíðarinnar sem stendur til 13. maí og má nálgast upplýsingar um þá á Facebook-síðunni Listahátíð barna í Reykjanesbæ og á vefsíð- unni reykjanesbaer.is. Vinaleg Skessan í hellinum með aðdáanda sínum í Reykjanesbæ. Listahátíð barna hefst í Reykjanesbæ A Gentle Creature byggistlauslega á samnefndrismásögu eftir Fjodor Dostojevskí. Réttast er að segja að myndin sæki innblástur til sögunnar frekar en hún sé hrein og bein aðlögun, því myndin er gjörólík sögunni. Söguhetja myndarinnar er nafn- laus kona frá Rússlandi, „veran blíða“ sem titillinn vísar til. Eigin- maður hennar er í fangelsi og hún sendir honum reglulega pakka. Dag einn fær hún pakka sendan til baka án nokkurra skýringa. Hún fer á pósthúsið og reynir að leita svara við því af hverju það var ekki tekið við pakkanum. Enginn vill svara henni þannig að hún heldur af stað í ferðalag til fangelsisins, sem er í öðrum bæ, í leit að svörum. Myndin er sterk ádeila á opinber- ar stofnanir í Rússlandi og rúss- neskt samfélag yfirleitt. Líkt og persóna í kafkaísku skrifræðis- völundarhúsi rekst konan á vegg hvert sem hún leitar. Enginn vill svara fyrirspurn hennar og þeir sem bjóðast til að rétta henni hjálparhönd eru ýmist vanhæfir eða sigla undir fölsku flaggi. Þegar ekk- ert gengur í samskiptum við yf- irvöld leitar hún á náðir glæpa- manna, sem eru auðvitað jafn spilltir og allir aðrir. Hún reynir einnig af veikum mætti að fá áheyrn á skrifstofu mannréttindasamtaka en það skilar litlu. Skrifstofan er undirlögð af pappírum og drasli og starfsfólkið er að drukkna í ótelj- andi erindum. Ein skemmtilegasta persónan í myndinni er starfsmaður samtakanna, eldri kona sem blaðrar endalaust, þylur upp lýsingar á skelfilegu ofbeldi og barmar sér yfir ástandinu í heiminum. Það gengur sem sagt hvorki né rekur, hvað sem hetjan okkar reyn- ir. Að lokum leysist þetta martrað- arkennda brölt upp í alvörumartröð og síðasti hluti myndarinnar á sér stað í súrrealískri veislu sem kallar fram tengingar við La charme dicret del la bourgeosie (1972) eftir Luis Buñuel. Sagan er virkilega góð. Það er mikið talað og samtölin eru full af undirtexta og lymskulegum húmor, líkt og þekkist úr verkum rúss- neskra meistara á borð við Dostoj- evskí og Tsjekhov. Kvikmyndatak- an er stórkostleg, í orðsins fyllstu merkingu, endurtekið lá við að ég gripi andann á lofti, ég var svo hrif- in. Kvikmyndin er þess virði að sjá bara til þess að berja myndatökuna augum. Á rússneska vísu er mikið um glæsilegar, langar tökur þar sem mikið gengur á án klippinga. Víðum römmum með einfaldri myndbyggingu er blandað við krað- aksleg skot með miklum mynda- vélahreyfingum. Allt endurspeglar þetta örvæntingu og einangrun aðalpersónunar, sem er algjörlega ein á báti, hvort sem hún er ein úti í móa eða í biðröð með hundrað manns. A Gentle Creature er nokkuð löng og krefjandi og mig grunar að hún falli ekki í kramið hjá öllum. En áhugafólk um eðalkvikmyndir í framúrstefnulegri kantinum ætti ekki að láta hana framhjá sér fara. Framúrstefnuleg Áhugafólk um eðalkvikmyndir í framúrstefnulegri kantinum ætti ekki að láta rússnesku myndina Krotkaya, eða A Gentle Creature eins og hún heitir á ensku, framhjá sér fara, að mati gagnrýnanda. Aðalleikkona myndarinnar, Vasilina Makovtseva, sést hér fyrir miðju. Bíó Paradís Krotkaya/A Gentle Creature bbbbm Leikstjórn og handrit: Sergey Loznitsa. Kvikmyndataka: Oleg Mutu. Klipping: Danelius Kokanauskis. Aðalhlutverk: Vasilina Makovtseva, Valeriu Andriutã og Liya Akhedzhakova. Rússland, 2017. 143 mín. BRYNJA HJÁLMSDÓTTIR KVIKMYNDIR Í völundarhúsi tómlætis Listakonurnar Linn Björklund og Vala Björg Hafsteinsdóttir opna myndlistarsýninguna Tröll í and- dyri Norræna hússins í dag kl. 17. Um sýninguna segir í tilkynningu: „Áður fyrr hélt fólk að ákveðnar kryddjurtir væru vörn gegn tröll- um. Brauð og salt var gjarnan inn- flutningsgjöf til að varna hungri. Langafi gat stoppað blæðingar með því að fara með þulu. Illt skyldi með illu út kveða. En það heyrir sögunni til að nota galdra gegn því sem vekur ugg og ótta. En óttinn er enn til staðar, þrátt fyrir allar heimsins tækniframfarir og þekkingu. Kannski er þetta sami ótti, í nýjum búningi. Við hræðumst það sem við skiljum ekki. Það hlýtur að vera einhver leið til að verjast tröllunum.“ Sýningin stendur yfir til 15. maí. Litskrúðugt Eitt af verkunum á Tröllum. Sýningin Tröll í Norræna hússinu Listasafn Reykjavíkur býður upp á dagskrá í kvöld kl. 20 í tengslum við sýninguna Tak i lige måde: Samtímalist frá Danmörku sem nú stendur yfir í Hafnarhúsi en á henni má sjá verk fjögurra listamanna sem fjalla hver með sínum hætti um nýlendustefnu, fólksflutninga, þjóðarsjálfsmynd og landamæri. Heimildarmyndin Concerning Violence eftir Göran Olsson, frá árinu 2014, verður sýnd í Hafnar- húsi en hún fjallar um þjóðernis- og sjálfstæðishreyfingar í Afríku á sjö- unda og áttunda áratug síðustu ald- ar sem ögruðu valdi hvíta minni- hlutans og herraþjóðanna, eins og segir í tilkynningu. Myndin er byggð á ritgerðinni Concerning Violence eftir Frantz Fanon sem kom út 1961 í bókinni The Wretched of the Earth. Kvikmyndin er samframleiðsla Svíþjóðar, Finnlands, Danmerkur og Bandaríkjanna. Í Afríku Stilla úr Concerning Violence. Concerning Violence sýnd í Hafnarhúsi ICQC 2018-20 PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagins 7. maí SÉRBLAÐ Skoðuð verða húsgögn og innréttingar, skrautmunir og fylgihlutir fyrir heimilið, litir og lýsing ásamt mörgu öðru. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Heimili & hönnun fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 11. maí
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.