Breiðfirðingur - 01.04.1989, Page 12
10
BREIÐFIRÐINGUR
ár bjuggu 25 manns í eynni.1 11 Á síðari hluta 19. aldar eru
venjulega talin tvö heimili, nema 1890 þá var það eitt.12 Á
20. öld mun þar lengst af hafa verið tvíbýli meðan búið var.13
Fagurey fór í eyði árið 1937. Þar bjuggu þá hjónin Ing-
ólfur Pétursson og Kristún Ásbjörnsdóttir. Ennfremur
Eyjólfur Bjarnason ásamt foreldrum sínum.14
Skömmu áður en byggð leggst af í Fagurey var túnastærð
2,6 ha, heyafli 360 hestar og matjurtagarðar 400 m3. Áhöfn
var þrjár kýr og sauðfé eitt hundrað. Hlunnindi voru útræði,
dúntekja, eggjatekja og selveiði. Landverð ásamt húsum var
10900 kr.15
Fjöldi, tegundir og dreifing minja
Við fornleifaskráninguna var hverri rúst, eða rústaheild,
gefið sérstakt númer, en hvergi voru þau fleiri en í Fagurey,
eða alls 48. Þetta gefur þó ekki fullkomlega til kynna raun-
verulegan fjölda minja, þar sem fleiri en ein rúst eru oft
undir hverju númeri. Heildarfjöldi rústa í Fagurey er þannig
99, en við þá tölu bætast 20-30 torfgarðar (garðlög), sem
nokkur óvissa ríkir um og verður nánar vikið að þeim síðar.
í skrá um tegundir minja hér á eftir eru óskilgreinanlegar
SKÝRINGAR VIÐ UPPDRÁTr (DREIFING RÚSTA)
1. Fiskhjallar og rúst (?).
2. Fiskhjallar og varða.
3. Bær og garðlög.
4. Tóft og girðing.
5. Bær.
6. Klakahús.
7. Fiskhjallar.
8. Kúarétt og fiskhjallur (?).
9. Fiskhjallar.
10. Bær og fiskhjallur.
11. Hús.
12. Fiskhjallur og hús.
13. Hús.
14. Naust og fiskhjallur (?).
15. Naust og bryggja.
16. Sumarfjós.
17. Hús, girðingarbrot
og afgirt svæði.
18. Girðing.
19. Fiskhjallur.
20. Hús (?).
21. Girðing.
22. Nátthagi og hús (?).
23. Fjárhús og fjárrétt.
24. Girðing.
25. Fjárhús, hlaða og girðing.
26. Hús.
27. Girðing (í Torfhólma).