Breiðfirðingur - 01.04.1989, Blaðsíða 130
128
BREIÐFIRÐINGUR
hún var þjónustuð af nauti, samkvæmt vel þekktu þjóðráði.
Var svo komið að eyru kýrinnar voru nær afskorin að
hlustum, og flautaði hún við ef hún gekk skáhallt við vindi.
Ekki eru öruggar heimildir um dauðadægur kýrinnar. Eitt
er þó víst, að hún gekk aftur og er nú á búi því, er heitir að
Austurvelli. Gengur hún í erfðir á því búi og mjólkar
sumum ábúendum þar ákaflega vel og langt fram úr kvóta.
Eru 63 húskarlar og griðkonur á búgarði þessum og hafa að
mestu starfa við umhirðu kýrinnar. Hefur hún haldið upp-
teknum hætti og kveðið við, eftir því hvernig vindar hafa
blásið um Austurvöll.
Núverandi bóndi að Austurvelli, Steingrímur að nafni,
vildi um tíma koma grip þessum burt úr fjósi sínu, þar sem kýr
þessi er jafnan haldin verðbólgu í júgri. Hann hefur þó lítt
fengið við ráðið, meðal annars vegna ofríkis sumra ráðs-
manna sinna, sem hafa sumir hverjir tekið miklu ástfóstri við
grip þennan og telja kúna hina mestu búbót. Hefur þeim
enda tekist að koma framfærslu kýrinnar á alla þegna þjóð-
arinnar með ýmsum kvöðum og álögum, og er óséð hvenær
linna muni. Því jafnan hefur Steingrímur bóndi og þeir ráðs-
menn hans, sem vilja höfðu til að kveða niður afturgöngu
þessa, mátt lúta í lægra haldi og orðið andlega álfreka við þá
tilburði.
Niðurstaða þessarar mærðar er sú, að Dýrtíðin var upp-
vakin hér á Skarðsströndinni. Og mikið hefur sá maður á
samvisku sinni, sem seldi Birni bónda á sínum tíma mjólk-
urkú þessa við ofurverði.