Breiðfirðingur - 01.04.1989, Blaðsíða 18
16
BREIÐFIRÐINGUR
Mynd 7. Teikning af fiskhjalli og leifum af tveimur öðrwn (9).
og hálfkirkjur fyrir utan sóknarkirkjur, en ekki var alltaf
gerður skýr greinarmunur á þeim fyrrtöldu og orðin bænhús
og hálfkirkja notuð á víxl.32 Hægt var að fá biskupsleyfi til
að þjónusta í bænhúsum og framkvæma þar skírn, hjóna-
vígslu og greftrun. Ekki nutu þau tekna af tíundum eins og
kirkjur, heldur var sérstaklega greitt fyrir prestverk. Fjöldi
bænhúsa mun hafa verið langmestur allra guðshúsa í land-
inu.
Fiskhjallar (1, 2, 7, 8, 9, 10, 12, 14, 19)
A vesturhluta eyjarinnar eru víða litlar ferhyrndar grjótrúst-
ir, flestar að innanmáli um 2-2,5 X 1,5-2 m og með um 0,5-1
m breiðum dyrum. Veggjarhleðslur eru yfirleitt mjög lágar,
í mesta lagi 0,3-0,5 m (7. mynd). Margar þessarra minja eru
á Hjallatanga og nefnast hjallrústir í örnefnalýsingu. Enn-
fremur er s.k. Bessahjallur (2) vestast á eynni.33 Samskonar
rústir er einnig að finna í ýmsum öðrum eyjum, t.d. á svo-
kölluðum Hjallarifjum eða Hjallanesjum. Ekki er gott að
segja hvort hér sé um að ræða hjalla eða fiskbyrgi, en óneit-
anlega gefa örnefnin ákveðna vísbendingu. Réði það úr-
slitum um afstöðu greinarhöfundar, sem telur þetta vera
hjalla. Vert er að taka fram, að ennþá hefur ekki farið fram
sérstök rannsókn á slíkum mannvirkjum. Áætlaður aldur er
15.-18. öld.