Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1993, Page 33

Breiðfirðingur - 01.04.1993, Page 33
BRÉF TIL MÓÐUR 31 „Afstaða guðspekinnar gagnvart kristindóminum er hin sama og afstaða hennar gagnvart öllum öðrum trúarbrögðum. Hún heldur því fram, að öll trúarbrögð séu góð og nytsöm hver á sína vísu, og vinni öll að því eina: að hafa göfgandi áhrif á þjóðirnar, og leiða þær í áttina til fullkomnunar. Sam- kvæmt kenningum hennar ættu jafnvel allar hinar sundurleitu trúarstefnur okkar og flokkar að geta orðið þjóðlífinu til góðs, ef hver flokkur reyndi að hafa góð og göfgandi áhrif á fylgis- menn sína. En ef hin „kristilega“ starfsemi forkólfanna fer að verða að mestu Ieyti fólgin í því, að ófrægja menn og málefni, sem þeir vita engin eða lítil deili á, þá er álitamál, hvort þeirn sjálfum væri eigi eins affarasælt að setjast út í horn í víngarði kirkjunnar, og láta sem minnst á sér bera. Frá sjónarmiði guðspekinnar er hinn haturslausi einn af hin- um björtustu geislum guðstrúarinnar - þessa dýrðlega leiðar- ljóss, sem hefur lýst öllum þjóðum allt fram á þennan dag og á vonandi eftir að lýsa mannkyninu á framsóknarbrautinni, eins hér eftir sem hingað til. ... Biskupinn álítur sig [í Hirðisbréfi] hafa komist að þeirri niðurstöðu, að guðspekin eigi lítið skylt við kristindóm. Satt að segja er ekki gott að átta sig á því, hvað hér er átt við, því allir vita að kristindómurinn er nú orðinn ærið margbreyttur sem eðlilegt er. Annars hafa guðspekinemendur hvað eftir annað tekið fram, að guðspekin á hvorki meira né minna skylt við kristindóm né önnur trúarbrögð veraldarinnar. ... Það eru hinir sannleiksleitandi menn, sem finna að hinar nýju stefnur: guðspeki og spíritisminn, hafa eitthvað betra að bjóða, en kirkjan hefur haft undanfarið á boðstólum. Báðum þessum stefnum hefur vafalaust tekist að leiða rnarga sann- leiksþyrsta syni og dætur kirkjunnar inn í trúarheiminn, þótt hin andlega móðir þeirra sýnist ekki hafa verið þeim vanda vaxin að halda þeim í rétta átt og orðið að skilja þau eftir á öræfum efnishyggjunnar senr villuráfandi sauði ... Hinar nýju stefnur hafa boðið og bjóða enn kirkjunni hjálp- arhönd til viðreisnar trúarlífinu, því ein megnar hún ekki að endurlífga það, sem nú hefur verið að visna í höndum hennar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.