Breiðfirðingur - 01.04.1993, Side 134
132
BREIÐFIRÐINCíUR
þvegið af sér, svo niður í mat og þar hitti ég Brit konu Birgis
hjá vegagerðinni í Borgarnesi, einnig Braga frá Bæ og frú.
Eftir notalegt kvöld niður í hinum flotta sal hótelsins er farið
til náða. Veðrið er alveg dásamlegt. Eg sest við gluggann og
sé: Elliðaey, Fagurey, Bíldsey, Þórishólma, Birgisklett, Hvíta-
bjarnarey, Hrappsey, Klakkeyjar og Klofningsfjall í Dalasýslu.
Þetta er dýrleg stund, smám saman fer að húma yfir eins og í
lífi mínu, þau eiga mikið þakklæti fyrir þessa ferð, mér datt
ekki í hug að sjá æskustöðvarnar meir. Súgandiseyjan er mikið
tignarleg. Hús mömmu og pabba míns blasir við augum mín-
um og Staðarfell, hús Magnúsar og Soffíu frá Staðarfelli,
kirkjugarðurinn gamli, þar standa aðeins 2 legsteinar eftir, það
eru steinar yfir ömmu minni Gróu Davíðsdóttur og Valentínusi
Oddssyni, og yfir þeim sem fyrst voru grafin þar.
Svaf vel um nóttina, fórum í morgunmat. Fáir eru nú eftir í
Hólminum sem von var frá því ég fór 1933, en Jóhann Rafns-
son er þó, ég hringdi í hann og bað hann um að konta til okkar
sem hann gjörði. Indæl stund, hann er að eldast eins og ég.
Eftir hádegi var svo hin fallega kirkja skoðuð, Kristinn Jóns-
son frá Höfða sýndi okkur hana, hún er teiknuð af Jóni Har-
aldssyni og er mjög veglegt guðshús sem kostaði 68 milljónir.
Asgeir Asgeirsson og börn gáfu altarisklæði og hökul í minn-
ingu konu og móður sinnar sem var æskuvinkona okkar
systra. Fórum í Egilshús, fengum okkur kaffi, þetta var kallað
Þorvaldarhús í æsku minni.
Egilshús var byggt 1848 af Agli Egilsen tengdasyni Arna
Thorlacius frá Bíldudal, ríkasta manni á þeim tíma. Þarna bjó
sýslumaður Sigurður Jónsson og Hjörtur læknir er voru svilar,
áttu sína systurina hvor, Hjörtur átti Ingibjörgu Jensdóttur og
Sigurður Guðlaugu Jensdóttur er voru náskyldar Jóni forseta,
bræðradætur hans. Þau voru í húsi þessu til 1894. Eg man vel
er Guðmundur Eggerz bjó þar og Páll Vídalín Bjarnason bjó
þar einnig sín fyrstu ár, hann kom 1913 í Stykkishólm. Norska
húsið er næst, og þar er nú byggðasafn Snæfellinga, það var
byggt 1828, þar var veisla haldin er pabbi minn og mamma
giftu sig 20. október 1905.