Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Page 36

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Page 36
G u ð n i Tó m a s s o n 36 TMM 2015 · 2 Þarna er því á ferðinni tilraun til eins konar tekjutengingar og vilji til að meta það inn í jöfnuna hve gríðarlega mismunandi aðstæður listamanna geta verið þegar að fjárhag kemur, en rúmur fjárhagur einstakra listamanna sem hlotið hafa heiðurslaun hefur á stundum vakið upp umræðu í þjóðfélaginu. Tekjutenging heiðurslauna hefur aldrei komist á og ekki verður auðveldlega séð hvernig hefði átt að meta þessi atriði við umræðulausa afgreiðslu þingsins. Ekki eru atriðin heldur líkleg til að hafa slegið að ráði á deilur þing- manna um launin. Notkunin á orðinu „arðbær“ vekur líka athygli en erfitt hefði reynst að meta umræðulaust þann markaðsbrest, sem listamenn búa stundum við, ef frumvarpið hefði orðið að lögum. Í frumvarpi Gunnars var jafnframt gert ráð fyrir að laun megi taka af þeim listamönnum sem hverfa úr landi, „nema til þess sé að geta betur stundað list sína í íslenzka þágu, og metur ráðherra það.“ Þetta verður að teljast nokkuð matskennt ákvæði sem sýnir vel hversu grunnt er á nytjahyggjusjónarmiðum í stjórnmálaumræðu um listir á Íslandi á öllum tímum. Íslenskar listir eru fyrst og fremst ætl- aðar landsmönnum og þeim er ætlað að vera „í íslenzka þágu“, styðja við þjóðernið, sjálfstæði og sjálfsmynd þjóðarinnar. Lög um listamannalaun voru ekki sett fyrr en árið 1967 en þá hafði Alþingi veitt fé til starfa listamanna áratugum saman. Ákvæði laganna um heiðurs- laun voru heldur rýr, en Alþingi gat samkvæmt 1. grein laganna „bæði veitt tilteknum listamönnum ákveðin heiðurslaun og veitt að auki í þessu skyni eina upphæð, sem síðan skal skipt af nefnd sjö manna, kosinni af sameinuðu Alþingi að afloknum alþingiskosningum.“23 Þar með var lögfest það fyrir- komulag sem komst á þegar Gunnar Gunnarsson fékk heiðurslaunin 1945 en þegar hér var komið sögu höfðu fjórir listamenn bæst í flokkinn við hlið Gunnars: Halldór Laxness, Tómas Guðmundsson, Páll Ísólfsson og Jóhannes Kjarval. Athygli vekur að við umræðu um fjárlög fyrir árið 1965 kom fram í máli Gunnars Thoroddsen fjármálaráðherra að tillaga um þrjá nýja heiðurs- listamenn (Tómas, Pál og Kjarval) hefði komið frá ríkisstjórninni en ekki frá þinginu.24 Enn var því talsvert rót á fyrirkomulagi heiðurslauna. Í lögunum sem samþykkt voru um listamannalaun 1967 vantaði fernt varðandi heiðurslaunin af því sem skotið hafði upp kolli í þeim frumvörpum sem á undan komu. Í fyrsta lagi var ekki kveðið á um fjölda heiðurslista- manna, í öðru lagi var engin upphæð eða heildarfjárhæð launa tilgreind og í þriðja lagi var þar ekki að finna ákvæði um listráð, þó svo að Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra hefði sjálfur mælt fyrir slíku ráði í fyrri frum- vörpum. Í fjórða og síðasta lagi voru heiðurslaunin ekki undanþegin skatti, frekar en listamannalaun almennt. Í þessu endurspeglast hinn menningar- pólitíski vilji löggjafans til að halda hjá sér sjálfdæmi um umfang heiðurs- launa. Veikt ákvæði um heiðurslaun skapaði líka umræðu. Einar Olgeirsson lagði fram breytingatillögu á frumvarpinu sem gerði meðal annars ráð fyrir að 10 listamenn hlytu heiðurslaun og að heildarupphæð þess sem eftir yrði til skiptanna fyrir aðra listamenn yrði ákveðin í lögunum.25 Í ræðu benti
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.