Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Page 54

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Page 54
J ó h a n n Þ ó r s s o n 54 TMM 2015 · 2 gráta og Jakob sá að það blæddi úr sári á enni stráksins. Öll voru þau með dökkt hár sem grátt ryk var í og brún augu. Jakob giskaði á að þau væru frá mið-austurlöndum. Hvað skyldu þau vera að gera inni á baðinu hans? Þá heyrði hann drunur fyrir utan og fólkið í baðinu hrökk við, maðurinn dró börnin nær sér og konan ruggaði sér af meiri ákefð. Jakob lokaði dyrunum á þau og fór út til að gá hvaða læti þetta hefðu verið. Úti var ekkert að sjá, bara friðsælt sumarkvöldið. Nokkrir mávar svifu um loftið í átt að sjónum. Neðar í götunni var strákur að hjóla. Jakob fór aftur inn og fór upp og pantaði sér að borða. Ætli þau vilji eitthvað að borða? hugsaði hann. Nei annars, best að sleppa því, annars gæti hann setið uppi með fólkið í lengri tíma. Fólkið var ennþá þarna morguninn eftir. Jakob fór með vatn til þeirra; þau virtust eitthvað feimin við að nota vaskinn og voru eflaust orðin þyrst. Maðurinn þáði vatnsflöskuna og kinkaði kolli að Jakobi til að þakka fyrir sig. Aftur heyrði Jakob drunur fyrir utan og fólkið hrökk við. Síðan heyrðist svipað hljóð og í vélbyssum í fréttunum. Hvað ætli þetta gæti verið? Strákurinn fór að gráta hljóðlaust en Jakobi fannst það óþægilegt þannig að hann lokaði dyrunum. Hann var farinn að kvíða helginni. Vera fólksins truflaði hann ekki mikið en þó aðeins meira þegar hann var heima. Hann var ekki með neitt planað fyrir helgina nema einmitt að vera heima og reyna hugsa ekki um vinnuna. Það gæti reynst erfitt ef fólkið yrði ennþá inni á baðinu hans. Hann var auðvitað með annað baðherbergi uppi en það var kannski ekki aðalmálið. Úti var ekki að sjá hvað olli drununum, en honum fannst aftur eins og ljósið hérna væri öðruvísi en það sem hann sá út um baðherbergisgluggann. Glerið var sandblásið þannig að það sást ekki alveg út um það en samt var eitthvað skrýtið við ljósið, eitthvað sem hann náði ekki alveg að átta sig á. „Ertu búinn að losa þig við þetta fólk?“ spurði vinnufélagi í lyftunni daginn eftir. Hann hélt á kaffibolla og var að fletta í gegnum Facebook í símanum og leit ekki á Jakob. „Hvað, hvernig fréttir þú af fólkinu?“ spurði Jakob. „Það var verið að tala um þetta í póker í gærkvöldi, að það væri eitthvað flóttalið inni á baðherberginu hjá þér.“ „Þau eru á baðinu niðri, ég nota það ekkert.“ „Þannig,“ sagði hann áhugalaus og fékk sér sopa af kaffinu. „Gengur samt ekkert að hafa þetta lið svona inná sér.“ „Ætti ég kannski að hjálpa þeim?“ „Hjálpa þeim? Hjálpa þeim hvernig?“ „Æji, nei. Ekkert.“ Lyftudyrnar opnuðust og við tók enn einn vinnu dagur- inn. Jakob steig út og vonaði að vinnufélaganum fyndist hann ekki vera hall æris legur. Hann ákvað að reka fólkið út þegar hann kæmi heim. Hann hugsaði þetta vel á meðan hann skrifaði skýrslur sem eflaust yrðu ekki lesnar og á fundi þar sem mikið var talað en ekkert ákveðið samdi hann stutta ræðu í huganum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.