Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Síða 75
„ H v e r s v e g n a e r f ó l k i á s k a pa ð a ð v e r a s v o n a e i n m a n a ? “
TMM 2015 · 2 75
„Fljúgandi furðuhlutur í Kushiro“, er dæmigerð Murakami-saga. Komura er
myndarlegur sölumaður í ágætum efnum og hamingjusamlega giftur – eða
svo heldur hann. Eftir að eiginkonan hefur horft á jarðskjálftafréttirnar í
sjónvarpinu í fimm daga samfleytt fer hún frá honum á þeim forsendum að
hann sé innantómur og gefi ekkert af sér. Í undrun og ráðleysi gerir Komura
sér ferð til Kushiro með lítinn og laufléttan pakka sem hann er beðinn
fyrir. Líf hans allt einkennist af doða, honum er sama hvert hann fer, hann
veit ekki hvort hann er svangur eður ei og man varla til þess að hafa hlegið
nýlega. Í Koshiro hittir hann tælandi konu sem færir honum nýjan boðskap
og vekur jafnframt með honum undarlega ofbeldishvöt (30). Pakkinn, sem
Komura kom samviskusamlega til skila, er táknrænn fyrir hann sjálfan;
annaðhvort innihélt hann það sem eiginkona hans fyrrverandi þráði heitast
en hann afhenti öðrum umhugsunarlaust, eða hún hafði rétt fyrir sér; að
hann var galtómur. Í lok sögu sér Komura að þótt hann sé kominn um
langan veg er hann algjörlega á byrjunarreit í lífi sínu.
Tveimur mánuðum eftir skjálftann mikla gerði sértrúarsöfnuður nokkur
gasárás á neðanjarðarlestarstöð í Tókýó. Murakami, sem þá bjó í Banda-
ríkjunum, sneri hið bráðasta aftur til föðurlandsins og skrifaði bókina
Underground þar sem hann tók m.a. viðtöl við fórnarlömb árásarinnar og
meðlimi sértrúarsöfnuðarins. Ætla mátti að Murakami hefði snúið baki að
mestu við fantasíunni eftir hörmungarnar í Japan og hygðist halla sér að
sálfræðilegri samfélagsrýni en svo fór ekki eins og Eftir skjálftann ber með
sér. Jarðskjálftinn í Kobe og gasárásin í Tókýó eru ekki aðeins harmleikir
sem hafa áhrif á einstakling heldur breyta einhverju í grundvallarþáttum
þjóðfélagsins, í hinni japönsku þjóðarsál. Skjálftinn mikli hristir upp í lífi
sögupersónanna og breytir stefnu þeirra varanlega – eftir skjálftann lifna
þær fyrst við.
Hinn innantómi karl
Norwegian Wood er ein frægasta bók Murakami. Hún kom út í enskri
þýðingu árið 2000 en kom út í Japan 1987 og gerði Murakami að súper-
stjörnu í heimalandinu. Þegar söguhetjan Watanabe heyrir bítlalagið
„Norwegian Wood“ hellast yfir hann tuttugu ára gamlar minningar frá því
hann var ungur og einmana háskólanemi á táfúlum stúdentagarði á sjöunda
áratugnum og átti erfitt með að finna sjálfan sig. „Þetta voru undarlegir
dagar, finnst mér nú þegar ég rifja þá upp. Í blóma lífsins snerist allt um
dauðann“ (28). Besti vinur hans framdi sjálfsmorð þegar hann var 17 ára
og lét eftir sig kærustuna Naoko sem er ægifögur en á við flókin geðræn
vandamál að stríða sem m.a. koma fram í því að hún getur ekki notið kyn-
lífs. Leiðir þeirra tveggja liggja saman síðar í Tókýó og saman reyna þau að
komast yfir missinn og halda áfram að lifa. En Naoko tekst ekki að púsla til-