Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Page 77
„ H v e r s v e g n a e r f ó l k i á s k a pa ð a ð v e r a s v o n a e i n m a n a ? “
TMM 2015 · 2 77
Það er margt spunnið inn í þessa sögu, margt er óljóst og svör ekki
endilega gefin. Velta má fyrir sér hvort hinn litlausi Tsukuru eigi sér dökka
hlið eða alteregó sem birtist honum á mörkum martraðar og vöku, m.a.
í kynlífssenu með stelpunum úr vinahópnum og jafnvel veltir hann því
fyrir sér hvort hann hafi nauðgað og drepið manneskju. Tónlist leikur stórt
hlutverk eins og oft í verkum Murakami, m.a. tónverk úr svítu eftir Franz
Liszt, Pílagrímsárin, „Le mal du pays“5 sem tengist bæði annarri stúlkunni
úr vinahópnum og eina vini hans frá námsárunum, Haidi. Nafn hans ber
lit þótt ekki sé hann áberandi en það þýðir „grár akur“ á japönsku. Haidi
segir Tsukuru magnaða sögu um dauðann sem eins konar farandgrip, sem
hefði verið gaman að heyra meira um og er ágætis lexía fyrir Tsukuru sem
svo lengi þráði að deyja en fékk ekki. Vinirnir tveir, Haidi og Tsukuru ræða
heimspekileg málefni á síðkvöldum, eins og frjálsa hugsun og frjálsan vilja,
dauðann, takmörk mannsins og skilning á alheiminum. Eina nóttina fær
Tsukuru sáðlát í munn Haida í martraðarkenndri sýn og fyllist efasemdum
og skömm. Síðan hverfur Haida, ekkert spyrst meira til hans, Tsukuru er
aftur einn og reynir ekki að elta hann uppi, heltekinn af höfnun og einsemd.
Það hlýtur að vera eitthvað mikið að mér, hugsaði Tsukuru oft með sér. Eitthvað sem
stíflar eðlilegt tilfinningaflæði í mér og brenglar persónuleika minn. En hann gat
ekki sagt til um hvort þessi stífla hafði orðið til þegar vinir hans útskúfuðu honum
eða hvort hún var honum eðlislæg, grundvallarþáttur í honum sem var ótengdur því
áfalli sem hann hafði orðið fyrir (55).
Sagan endar í óvissu, eins og svo oft í verkum Murakami, allsendis er óvíst
hvort Sara er til í tuskið og spurning hvort Tsukuru fær enn eina höfnunina
en það gæti haft ýmsar afleiðingar.
Hinn þýddi karl
Það að Hinn litlausi Tsukuru Tazaki skuli koma út í íslenskri þýðingu svo
fljótt og vel sýnir vel stöðu Murakami í okkar litla bókmenntaheimi en hann
á dyggan lesendahóp hér á landi. Bókaforlagið Bjartur hefur annast útgáfu
verka hans á íslensku en útgáfuröðin sætir nokkurri furðu og ekki alveg
augljóst hvað er haft að leiðarljósi í þeim efnum. Ekki er endilega byrjað á
lykilbókum í höfundarverkinu, heldur þeim nýjustu og stystu. Sunnan við
mærin, vestur af sól (2001) er t.d. ekki eins mikið tímamótaverk og fyrri
bækur Murakami, Hardboiled Wonderland and the End of the World (1985, á
ensku 1991) og The Wind-up Bird Chronicle (1994–5, á ensku 1997) sem enn
hafa ekki verið þýddar. Norwegian Wood var þýdd 2006 en kom út í enskri
þýðingu árið 2000, farið var s.s. aftur í tímann í vali á bók til þýðingar.
Þær bækur Murakami sem eru gríðarlega langar, eins og The Wind-up Bird
Chronicle (600 bls.), Kafka on the shore (500 bls.) og IQ84 (1000 bls.) hafa
ekki verið teknar til þýðingar. Og enn liggur óbætt hjá garði ein þekktasta og