Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Side 119
G ó ð a l í f s e m m é r e r g e f i ð
TMM 2015 · 2 119
Það er barið á dyr. Mamma þykist ekki taka eftir því. Hún liggur í rúminu.
Það er barið fastar. Hún borar höfðinu ofan í kodda til að kæfa hljóðið.
„Opnaðu,
andskotinn hafi það!
Opnaðu,
eða ég opna sjálfur!“
Það er leigusalinn. Lýður.
Hann er á miðjum fertugsaldri en útlitið lýgur hann upp um tíu ár. Hann
er feitlaginn, svarthærður, loðinn og með afskræmt nef sem er líkast til
afleiðing áflogahneigðar og þverrandi slagsmálahæfni. Hann klæðist einatt
hvítum, ermalausum bolum með gulleitum blettum í handarkrikum. Stöku
sinnum sést hann þó í köflóttri skyrtu utan yfir.
Hann er ekki með lykilinn að íbúðinni á sér svo að hann danglar tilfallandi
lyklaknippi í hurðina eins fast og hann getur.
Mamma hrekkur við og rís upp við dogg í rúminu.
Glugginn stendur í hálfa gátt og býður sírenuvæli og reykjarlofti að ganga í
bæinn.
„Ég kem, ég kem. Slappaðu af.“
Hún stendur upp og stefnir á dyrnar. Það er ekki laust við að fæturnir
svigni undan henni meðan hún gengur. Ælublettur setur mark sitt á gráa
t-bolinn og berskjölduðu hvítu nærbuxurnar sem eru ekki beinlínis hvítar
lengur.
Hún opnar dyrnar.
„Nei, gaman að hitta fína dömu eins og þig hér,“
segir hann háðslega, smokrar sér og sínum fúla brennivínsfnyk inn í íbúðina
og lokar á eftir sér.
Í tómlætisglettni gefur hún honum merki um að koma inn áður en hún
teygir sig í gamla leðurjakkann hans pabba, fer í hann, tekur sígarettu úr
vasanum og kveikir sér í. Hún sest við borðið og gónir annars hugar á Lýð.
„Þú skuldar þrjá mánuði.“ (Brosandi)
Hún mannar sig upp í að halda augnsambandi og reykir þegjandi.
„Þrjá mánuði!!!
– Þetta er ekki nokkurt vit hjá mér að reka fyrirtæki,
skilurðu.“
Maðurinn ekur sér hljóðlega nokkra hringi með hendur fyrir aftan bak áður
en hann sest hinum megin við borðið.
„Hefur þú ekkert til málanna að leggja?
Hvernig ætlar þú að leysa þetta vandamál?
Ég geri mér grein fyrir að þú átt engan pening,
en eitthvert endurgjald verður að koma til framkvæmda.“
Hann leggur áherslu á þetta síðasta.