Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Side 143
TMM 2015 · 2 143
Höfundar efnis:
Adonis, f. 1930. Skáld frá Sýrlandi.
Ármann Jakobsson, f. 1970. Prófessor í íslenskum miðaldabókmenntum við HÍ
og rithöfundur. Á síðasta ári sendi hann frá sér ævintýrasögu fyrir börn, Síðasti
galdrameistarinn.
Böðvar Guðmundsson, f. 1939. Rithöfundur. Síðasta skáldsaga hans var Töfrahöllin
sem kom út árið 2012.
Eiríkur Örn Norðdahl, f. 1978. Rithöfundur. Í haust er væntanleg skáldsaga hans,
Heimska.
Guðni Tómasson, f. 1976. Listsagnfræðingur sem starfað hefur sem dagskrár-
gerðarmaður á Rás 1 Ríkisútvarpsins og við menningarráðgjöf. Hann lauk nýlega
meistaraprófi í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst og er grein hans um
heiðurslaun byggð á lokaritgerð hans.
Helen Mitsios, skáld og ritstjóri í New York.
Hulda Þórisdóttir, f. 1974. Doktor í félaglegri sálfræði og lektor við stjórnmálafræði-
deild HÍ.
John Freeman, ritstjóri sem býr í New York.
Kristian Guttesen, f. 1974. Væntanlegt er ljóðasafn hans Eilífðir – úrval ljóða 1995–
2015.
Kristín Ómarsdóttir, f. 1962. Rithöfundur. Vorið 2015 kom út skáldsaga hennar
Flækingurinn.
Linda Vilhjálmsdóttir, f. 1958. Ljóðskáld. Væntanleg er ljóðabókin frelsi frá henni í
haust.
Salvör Nordal, f. 1962. Heimspekingur og forstöðumaður Siðfræðistofnunar HÍ.
Sigurður Pálsson, f. 1948. Skáld. Á síðasta ári kom út Táningabók eftir hann, hin
síðasta í röð þriggja minningabóka.
Steinunn Inga Óttarsdóttir, f. 1963. Bókmenntafræðingur og gagnrýnandi hjá
Kvennablaðinu.
Trygvi Danielsen, f. 1991. Færeyskt skáld og tónlistarmaður. Árið 2013 kom út eftir
hann safn ljóða og prósa, The absent silver king.
Uggi Jónsson, f. 1967. Skáld, þýðandi og prófarkalesari.
Valgerður Þóroddsdóttir, f. 1989. Skáld og útgefandi.
Þorgeir Tryggvason, f. 1968. Texta- og hugmyndasmiður, fagottleikari og bókmennta-
gagnrýnandi í Kiljunni.
Leiðrétting: Í grein Þorsteins Antonssonar í síðasta hefti, „Dularfullur gestur“ hefur
slegið saman nöfnum Hólmfríðar Kristínar Sigurðardóttur og Kristínar Hólmfríðar
Markúsdóttur, þannig að sú síðarnefnda er sögð vera dóttir Markúsar Ívarssonar, sem
nefndi sig Sigurð Jónsson í Miklaholtsprestakalli um og upp úr aldamótunum 1900.
Hið rétta er að Kristín Hólmfríður Markúsdóttir, fædd 1903, var dóttir hjónanna
Markúsar Benjamínssonar og Sveinbjargar Hallsdóttur sem bjuggu meðal annars
í Miðgörðum í Kolbeinsstaðarhreppi. Afkomendur Kristínar Hólmfríðar og aðrir
hlutaðeigandi eru beðnir afsökunar á þessum mistökum. Ritstjóri