Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Page 71

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Page 71
K r o s s TMM 2015 · 4 71 Nei, þögull hristi maðurinn höfuðið. Kannski hafði hann ekki skilið mig, kannski voru lokkarnir uppseldir. Dökk augu mannsins hvíldu á mér á meðan ég skoðaði eyrnalokkana sem þó fengust. Þeir lágu læstir undir gleri í afgreiðsluborðinu eins og þeir væru smíðaðir af færustu hönnuðum heims úr eðalmálmum sóttum niður í dimmustu námur jarðkúlunnar. Návist mannsins var yfirþyrmandi. Mér fannst hver doppa í skyrtunni hans fylgjast með mér. Ég vissi að á mér hvíldu þau álög að verða að kaupa eitthvað í þessari búð. Annars kæmist ég ekki út. Ég gat ekki gert manninum það að fara tómhent heim þegar hann hafði sjálfur ferðast yfir hálfan hnöttinn til að geta afgreitt mig. Eyrnalokkaúrvalið var þó ekki beisið; fuglsklær í nokkrum stærðum og ying­ og yangmerkin. Jú, og kræklóttir hakakrossar. Klærnar voru ógeðslegar og yingið og yangið skildi ég ekki. „Ég ætla að fá þessa,“ sagði ég á þvoglumæltri slabbneskunni og benti á hakakrossana. Álögin hrundu af mér um leið og ég rétti fram seðilinn. Skiptimiðinn var enn í vettlingnum og skömmu síðar var ég komin heim með skartið í brúnum bréfpoka. Af honum lagði undarlegan ilm sem fyllti út í hvert horn í herberginu mínu. Ég var hálfhrædd um að foreldrar mínir fyndu lyktina og færu að spyrja mig út í hana. Pabbi var kominn heim og hafði komið við í búð á leiðinni. Hann talaði um verðið á matnum. Eitthvað var að hækka. Allt var að hækka. Við borðuðum steikt slátur með sykri. Hljóðlega. Mamma var þreytuleg og ég náði aldrei augnsambandi við hana. Af og til þessa helgi tók ég lokkana fram, fór með þá inn á baðherbergi og mátaði fyrir framan spegilinn. Mér fannst ég vera önnur með þá. Ég var meiri unglingur en áður, sér í lagi þegar ég var líka í gallajakkanum með barmmerkjunum. Ég var stolt af að hafa keypt þessa lokka og hlakkaði til að fara með þá í skólann. Ég hafði ekki verið með neitt vesen, hvorki beðið um far í bæinn né peninga fyrir kaupunum. Ég hafði séð um þetta allt saman sjálf. Ég var jú að verða unglingur. Loks afréð ég að sýna mömmu þá. Það varð að undirbúa serímóníuna vandlega. Fyrst athugaði ég hvar hún var niðurkomin. Þau pabbi sátu inni í stofu. Pabbi las helgarblöðin í hægindastólnum en mamma sat í sófa og virtist vera að hlusta á dagskrá í útvarpinu þar sem leikin voru létt lög af hljómplötum. Ég þorði ekki að setjast þétt upp við hana, heldur tyllti mér í stólinn gegnt henni, dró hárið frá eyrunum og sagði: „Sjáiði! Ég var að kaupa mér eyrnalokka.“ Pabbi svipti Tímanum frá andlitinu og virti mig fyrir sér. „Ég fór sjálf ofan í bæ og keypti þá.“ „Hvað sagðirðu að þeir hefðu kostað?“ Ég hafði ekkert sagt um það en nefndi verðið skilmerkilega. Pabbi velti upphæðinni gaumgæfilega fyrir sér eins og hann væri að bera það saman við kílóverðið á kjötfarsi. Síðan dró hann blaðið aftur fyrir andlitið. Mamma hlustaði þögul á okkur. Hendurnar hvíldu í kjöltu hennar og hún virtist láta hugann reika um lendur léttu tónlistarinnar sem barst frá
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.