Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Page 86

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Page 86
Á s t r á ð u r E y s t e i n s s o n 86 TMM 2015 · 4 dugi honum ekki til að fella þau kynni að heimsmynd sinni. Þessi atburður er miðpunktur skáldsögunnar – og sagan sem játningarit Adsos á öðru fremur uppsprettu sína í þessari einstæðu stund um miðbik hinnar atburðaríku viku – stundinni þegar ástarsagan truflar glæpasöguna. Síðla kvölds finnur Adso fyrir veru í eldhúsinu á jarðhæð bókasafnsins; þetta er fátæk stúlka. Hún hefur fengið kjötmeti frá manni sem hefur væntanlega ætlað að hafa not af henni í staðinn, en hann flýr af vettvangi við komu Adsos. „Og skyndilega birtist mér stúlkan eins og sú svarta en fagra mær sem frá segir í Ljóða­ ljóðunum“ (230). Adso missir tökin, varnir falla, ástarstund Ljóðaljóðanna endurfæðist, nema hvað nú er það hún („brúðurin“) sem á frumkvæðið: „Og hún kyssti mig kossi munns síns og ástarhót hennar voru yndislegri en vín […]“ (231). Hin dökkleita kona, kannski sólbökuð eftir vinnu í víngörð­ unum, eins og brúðurin í Ljóðaljóðunum – þótt nútímalesandi kunni í fljótu bragði að skilja litaraftið með öðrum og enn „róttækari“ hætti; hún mætir hinum kuflbúna sveini, og hann afhjúpast og „cuncta erant bona“, allt var gott. En líka framandi og er hann fellur „næstum í öngviti ofan á líkamann sem ég hafði sameinazt skildi ég í síðasta lífsblossanum að í loganum býr ljómandi tærleiki, innborið afl og eldlegur hiti, en hinn ljómandi tærleika á hann svo hann megi lýsa og eldlegan hitann svo hann megi brenna“ (232). Þessi síðustu orð eru raunverulega brennandi við endurlestur sögunnar, því að Adso á hér þátt í atburðarás sem leiðir til þess að stúlkan er hand sömuð af páfagarðsmönnum þegar hún vogar sér aftur á svæðið næstu nótt, kannski vegna þess að hún hafði gleymt matarböggli sínum eftir ástarfundinn. Og með því að bendla hana við svartan kött og svartan hana, tekst dómar anum að draga meintan „svartagaldur“ hennar inn í glæpafárið í klaustrinu og þar með er hún orðin djöfulleg norn. Og eins óskaplegur og bruni klaustursins og bókasafnsins er í bókarlok – sú apokalyptíska lýsing er öll stórbrotin af hálfu þeirra Ecos og Thors – kann það að svíða lesandann og Adso meir að á sama tíma brennur konan eina væntanlega á öðru báli. Páfagarðsmenn höfðu tekið hana með sér. Hún verður brennd á leiðinni, segir Vilhjálmur við Adso, „í einhverju litlu kataraþorpi meðfram ströndinni“ (378). Hrakföll og fjölmenning Sú athygli sem hin útskúfuðu og ónefndu fá í sögu Ecos er þáttur í fjölmenn­ ingu verksins (sem er þó sem fyrr segir einkum, en ekki algerlega, karla­ fjölmenning). Klausturbúar og gestir þeirra eru víða að, Jorge er frá Spáni, Vilhjálmur enskur en Adso þýskur. Það mætti ætla að klaustrið væri sam­ evrópskur staður en landamörk koma þó í ljós þegar að kreppir, eins og þegar ábótinn segir það hafa verið rangt hjá sér „að mælast til þess af útlendingi, hversu spakur sem hann væri […] að rannsaka þá hluti sem einungis voru á mínu færi“ (420). Fjölmenning bókasafnsins nær lengra og þangað hefur verið safnað ritum á ýmsum tungumálum og úr fjarlægum heimshornum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.