Ófeigur - 15.05.1956, Page 4

Ófeigur - 15.05.1956, Page 4
2 ÓFEIGUR Árið 1923 lýsti ég yfir við kosningar, að ef Alþýðu- flokkurinn gerðist byltingahneigður, mundi ég standa á móti honum við hlið Ölafs Thors, sem var þá einna ákveðnastur af andstæðingum byltingarmanna. Síðan liðu 14 ár, þannig að ekki kom til átaka um þetta efni. En þá gerðist tvennt í senn: Hér var starfandi kom- múnistaflokkur undir rússneskri yfirstjórn, og í öðru lagi krafðist Alþýðuflokkurinn undir stjórn Héðins Valdimarssonar, að stærstu atvinnufyrirtæki landsins yrðu tekin með valdi og þjóðnýtt. Mér var þá ljóst, að landsmálagrundvöllurinn frá 1916—17 var hrun- inn, og að þá varð að fylkja liði að nýju: Borgurum móti byltingarliðinu. Þá bauð ég Ólafi Thors samstarf um tvenn áhugamál: Markvissan undirbúning og framkvæmd skilnaðar við Danmörku og borgaralega samstjórn móti bolsivikum og byltingunni. Upp úr þessum aðgerðum spratt þjóð- stjómin 1939—42. Persónulegir skapbrestir Hermanns og Ólafs leiddu til þess að þjóðstjórnin leystist upp og bolsivikar urðu setugestir um' stund í leyndarráð- um allra borgaraflokkanna. En grundvöllurinn frá 1923 var svo öruggur, að þangað varð að hverfa og með tilkomu Bandaríkjamanna hér á landi, urðu borgar- arnir að halda að mestu saman um stjórn landsins. Ef ég hefði ekki stutt að borgaralegum friði 1939, mundu landsmálaflokkarnir hafa staulazt ósjálf- bjarga leiðar sinnar, mælandi máttlaus fordæmingar- orð hver um annan. Landið hefði enn hangið í illa gerðu konungsambandi við Dani og liðsoddar flokk- anna endurtekið afrek Sturlu á Sauðafelli og Kolbeins unga með nýrri tækni. Síðan 1939 hefur stjómarfarið haldizt á þeim grund- velli sem búizt var við. Islendingar hafa skilið við Dani, þó að forkólfar stjórnarflokkanna væru svefn- sæknir, þegar Stauning prófaði skilnaðarvilja þeirra áð- ur en stríðið skall á. Islendingar skildu og mynduðu lýðveldi. Borgaraflokkamir halda saman um megin- málin. íslendingar þáðu hervernd Bandaríkjanna 1941, sömdu um Keflavíkurvöll 1946 og losnuðu þá við bolsi- vika úr valdastöðum. Síðan tóku Islendingar við 700 milljónum kr. frá Marshall. Gengu í Atlantshafsbanda-

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.