Ófeigur - 15.05.1956, Page 10

Ófeigur - 15.05.1956, Page 10
8 ÓFEIGUR skiptingu krossa og heiðursmerkja, bæði innan lands og utan. * Forsetinn hefur leyst þessar skyldur af hendi vel og skilmerkilega. Hermann og Ólafur ættu nú að játa, að þeim hafi yfirsézt í þessu efni og fylgja í spor rúss- neska ráðherrans að lofa bót og betrun um alla framtíð. Forsetinn hefur í sinni stjórnartíð, án þess að það væri bein embættisskylda, útvegað þjóðinni fjögur fá- séðustu heiðursmerki sem til eru í Danmörku, Noregi. Svíþjóð og Finnlandi, með því að láta afhenda fjórar gullkeðjur í staðinn. Þessir dýrgripir verða nú um stund í eigu hins íslenzka ríkis og ættu að vera til sýnis öllum landsbúum. Forsetinn hefur upp á síðkastið mjög dregið úr meiri háttar veizlum fyrir félög og einstaklinga, er koma til Reykjavíkur. Má að líkindum kenna það spamaði Eysteins, stórgjaldkera landsins. Áður fyrr hallaðist ríkisstjórnin að þeirri skoðun, að forsetinn mætti eyða að vild í veizlur fram yfir fjárlög, en þegar móttöku- veizlur héraðanna úti á landi ætluðu líka að fara að þyngja á landssjóði, hefur verið tekið í taumana. Þess vegna gerist þjóðlífið nú þunglamalegra og alvarlegra heldur en það áður var. Forsetinn hafði að mestu lokið hinni nauðsynlegu yfirreið um landið, þegar sam- felldir óþurrkar er gengu um sláttinn í fyrra og hörku- frost í vetur hindruðu síðustu veizluhöldin í Skafta- fells- og Rangárvallasýslum. Má þó væntanlega bæta úr þeirri vöntun, þegar ytri aðstæður batna. Sinn er siður í landi hverju. Á Islandi á forsetinn ekki að sinna verkefnum nema á mjög þröngu starfs- sviði, en í Bandaríkjunum er forsetinn húsbóndi á þjóðarheimilinu. Hann hefur meginforystu um allt, sem þjóðfélagið gerir til almenningsheilla, inn á við og út á við. Þjóðin velur til forseta menn, sem talið er að hafi kunnugleika mikinn í þjóðmálum, mikla skapandi gáfu og framkvæmdarhug. Engin þjóð hefur lagt meiri stund á að tryggja sér úrvals hæfileikamenn til raunverulegrar forustu um stjórn landins heldur en Bandaríkjamenn. Hafa þeir venjulega verið fengsælir að fá til æðstu valda mikla þjóðskörunga. En hér eru

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.