Ófeigur - 15.05.1956, Blaðsíða 12
10
ÓFEIGUR
að lifa af þeim tekjum, sem hún gæti fengið af fram-
leiðslum til lands og sjávar, og þeim iðnaði, sem líf-
vænlegur yrði í landinu. Ráðherrar, þingmenn og hátt-
virtir kjósendur vita vel, að hvaða dag sem þeir óska
eftir, geta þeir fengið Bandaríkin til að flytja verka-
fólk frá Ameríku til að sinna þeim byggingarstörfum
fyrir herinn, sem hér þarf að gera, og um leið byrjað
aftur heilbrigt atvinnulíf í landinu. En leiðtogum og
liðsmönnum kemur saman um að þetta væri nokkuð
erfið fórn. Flestum mönnum þykir illt að afsala sér
þeim mörgu þægindum, sem fylgt hafa hinum auknu
skiptum við Ameríku. Þess vegna hefur engin stétt og
akkert blað og enginn þingmaður ymprað á að skapa
jafnvægi í þjóðfélaginu með því, að hver vinni að sínu.
Bandaríkin leggi til vinnuafl við hervarnirnar, en Is-
lendingar noti gæði landsins sér til framdráttar eins
og áður. Nálega öll sú gagnrýni, sem kommúnistar og
venzlalið þeirra halda á lofti gagnvart veru Banda-
ríkjaliðsins hér á landi er borin fram af léttúð, af
því að þessir sömu menn óska einskis frekar en að
geta sem allra lengst notið fjárhagshlunninda og
bættra lífskjarna af dagmilljóninni, sem kemur eins og
áhrifamikil fjörefnainngjöf í þjóðlíkamann. Flestir
fordæma inngjöfina, en þakka þó fyrir áhrif hennar.
#
Benjamín Eiríksson er með réttu sannur gullfiskur
stjórnarflokkanna. Hann er eðlisgreindur og harðsnú-
inn Hafnfirðingur úr öreigastétt, sem brauzt gegnum
skólagöngu í Reykjavík, Svíþjóð, Þýzkalandi, Rússlandi
og Bandaríkjunum. Meðan hann dvaldi austan Atlants-
hafs, var hann einhver sanntrúaðasti bolsiviki, sem til
spurðist, og jafnaðist um trúarhita við sjálfan Brynj-
ólf. Allt í einu skiptir hann um trúarjátningu og yfir-
lýsir sig eindreginn andstæðing byltingarinnar og vin
auðmagnsins. Með því móti tókst honum að komast til
Bandaríkjanna og ná þar atvinnu við eina af þeim
stofnunum, sem fara með mál margra þjóða. Þegar hér
er komið sögu, voru tíðindi að gerast í íslenzkum
stjórnmálum með þeim hætti, að hlutur Benjamíns
kom upp á yfirborðið, og það á eftirminnilegan hátt.
#
Ólafur Thors hafði alllengi ráfað um hinn pólitíska
aldingarð, órólegur á svip, með látbragð þess manns.