Ófeigur - 15.05.1956, Page 15

Ófeigur - 15.05.1956, Page 15
ÓFEIGUR 13 bílar, þá var um sinn horfið frá að leggja Landsbank- anna niður, til að gera veg Benjamíns nægilega mikinn. * Stjórninni opnuðust aðrar dyr nálega óvænt til að bæta úr hásætisvöntun fyrir hinn peningalega Krishna- murta þjóðarinnar. Bandaríkin höfðu gefið íslenska ríkinu mörg hundruð miljóna virði í matvælum, olíu, fóðurbæti og skildingum, en kröfðust að andvirði gjafa- vörunnar yrði lagt í sjóð sem kalla mætti viðreisnar- stofnun landsins. Fé þetta var í fyrstu geymt í Lands- bankanum og er það raunar enn að því er snertir bók- hald og trygga skápa. Var eðlilegast að fjárstjórnin væri líka þar til húsa án stórvægilegra umbúða. Nú sá landstjórnin að þar sem Benjamín var ofar henni, um vissa og ekki þýðingarlitla þætti stjórnmálanna, Varð hann að geymast í þeim umbúðum sem hæfðu stöðunni. Var nú afráðið að leigja fyrir Benjamínsbanka gott hús- næði á sjötta sal í húsi Útvegsbankans, ákveða töfra- manninum hálfönnur ráðherralaun og fullsmíða banka- ráð þar sem Eysteinn væri í forsæti með valinni fylgd antialmúgamanna.Benjamín hafði vissulega unnið fyrir háu kaupi. Brynjólfur Bjarnason leit með velþóknun á viðleitni þessa lærða og einlæga bolsivika til að koma fjármálum borgaranna í æskilegt horf. Benjamín hóf starf sitt með því að leggja til að ráðuneyti Steingríms Steinþórssonar lækkaði krónuna um 74% gagnvart dollar. Næsta stig var að lögfesta bátagjaldeyri. Tii að tryggja bátaútgerðina skyldi taka frá af óskift- um gjaldeyri þjóðarinnar ca. 150 milljónir kr. Fyrir það mátti kaupa óhófsvörur og skran, hvar sem slíkt hnossgæti væri fáanlegt á heimsmarkaðinum. Með þessu var krónan enn felld og hraðaukin dýrtíð. Nú vildu togaraflotinn ekki sigla úr höfn nema Benjamín útveg- aði fríðindi. Ekki stóð á þeim, því að nú lét Benjamín kaupa bíla af beztu gerð fyrir 100 miljónir til að fá 100% af stofnverðinu í flotholt fyrir hinn stolta ný- sköpunarflota. Enn sat allt fast í landvari, bæði bátar og stórskip. Þá fengu Ólafur og Eysteinn fyrirmæli ofan úr 6. sal í Útvegsbankanum: Bræður, leggið millj- jarðsfjórðung í neyzlusköttum á almúgann. Þá fljóta skip og bátar. # Banki Benjamíns tók til starfa með vissum hætti.

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.