Ófeigur - 15.05.1956, Síða 18

Ófeigur - 15.05.1956, Síða 18
16 ÓFEIGUR ófáanleg. Austfirðingar sitja eftir vonbitnir og lítilis- virtir af sínum trúnaðarmönnum. # Tveir rithöfundar og fræðimenn á Akureyri hafa skrifað greinar í norðanblöðin um að ég hafi sagt rangt til um heimilisfang í 12 ár. Ég hafi látizt vera búsettur utan Þingeyjarsýslu þennan tíma, en það hafi verið misskilningur. Þeir þóttust vita betur. Af því að þetta voru greinagóðir menn um ýmsa hluti, þótti mér rétt að sannprófa, hvort þeir hefðu þessa meinloku úr Brynleifi eða þingmannatalinu, og opnaði þær bækur. Þar stóð svart á hvítu sá einfaldi sann- leikur, að ég hefði í þessi ár ýmist dvalið erlendis eða verið búsettur í Reykjavík. Þetta er sagt til leið- beiningar þessum rithöfundum. Eysteinn Jónsson hefur tekið Stalin sáluga til fyrír- myndar um margt, þó að Rússinn væri stærri um vallar- sýn, hæfileika og yfirsjónir. Báðir sóttust þessir menn eftir að vera flokksritarar, til að þjóna einkahagsmun- um á kostnað embættisskyldunnar. Báðir sóttust eftir einræði án alþjóðlegs tilgangs. Báðir strituðu við að undirbúa vafasama gröf. Báðir höfðu mikla hneigð til að_ ,,hreinsa“ samverkamenn sína úr víngarði starfs- ins. I Rússlandi voru hjálparmenn Stalin fluttir yfir til betri heima frá meinlegum forlögum. Á Islandi gerðu tveir gistivinir kommúnista nafnaskrá yfir 42 Reykvíkinga og tiltölulega marga utan bæjar, þar á meðal ýmsa merka Húnvetninga. Þessi skrá er kölluð svarti listinn. Gistivinir höfðu þessa skrá við hendina til að muna hvaða fólki mátti ekki fela félagsleg trún- aðarstörf. Á svartalista höfuðstaðarins voru eingöngu nöfn manna, sem höfðu stutt að eflingu samvinnufé- laganna. Framsóknarflokksins, strandsiglinga, vís- inda, uppeldismála, blaðamennsku o. s. frv. Þetta var örlagaríkt fyrir Framsóknarflokkinn. Hann missti frá stuðningi og forsjá menn, sem hann mátti ekki án vera. Flokkurinn hætti að vaxa, því að for- kólfarnir lögðu áherzlu á, eftir getu, að svæfa starfs- menn blaðanna, þingmenn flokksins og aðra dugandi

x

Ófeigur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.