Ófeigur - 15.05.1956, Blaðsíða 21
ÓFEIGUR
19
æskunnar í Bláa hellinn og upp á Vesúvíus mundu
falla niður. Það fækkaði hinum glöðu dögum „góðu
áranna“.
%
Hér á landi er lýðræði og fólkið hæstiréttur. Fólkið
hefur aldrei séð eins mikla peninga og aldrei fengið
eins mikið af þeim gæðum, sem dauðlegar verur þrá
mest eins og nú. Fólkið veit, að þessi óvenjulega velsæld
kemur frá Keflavík. Þenna brunn vilja fáir byrgja.
Kommúnistar úr Dagsbrún, portfólk, rauð stúdents-
efni frá Laugarvatni, embættismenn, bændur og eig-
endur skipa og véla vilja ekki stöðva gullstrauminn
sunnan með sjó. Þeir tala illa um herinn og Völlinn
og Ameríku, en enginn af málskrúðsmönnum vinstri
stjórnarmanna vill missa af gróðanum og lífsþægind-
unum. Þessvegna segja 400 Framsóknarfulltrúar ekkert
um skuggahliðar þeirrar fjármálastjórnar, sem elur
alla atvinnuvegi á skynditekjum af neyðarráðstöfun-
um þjóða, sem fórna fé og blóði fyrir frelsi heimsins.
#
Hinir kænu stjórnmálamenn, sem stýra landinu, vita
vel um hug fólksins í þessu efni. Þeir vita, að fólkið
vill óbreytta stefnu og forráðamennsku lítið breytta,
nema ef einum krata væri skotið inn í staðinn fyrir dr.
Kristinn, sem fer væntanlega til London. Þrístjórarnir
Bjarni, Eysteinn og Ólafur hafa ákveðið að hafa mála-
myndar ýfingar um stund, til að hita kjósendum, svo
að þeir komi á kjörstað og skili fulltrúum fyrir næsta
kjörtímabil. Stjórnin segir af sér, en ráðherrarnir sitja
sem starfstjórn í nokkrar vikur. Innanhúss er samkomu-
lagið hið bezta. Eftir kosningar sezt stjórnin aftur á
sína stóla, lítið eða ekki breytt. Ef til vill hefur hún feng-
ið Emil eða Harald til að bera að sínu leyti byrðar hins
daglega lífs. Þeir menn, sem stóðu að myndun þjóð-
stjórnar 1939 sjá að sagan endurtekur sig.
#
Flokksþingin eru sjónarspil. 1 fyrra stýrði Ólafur
sínu flokksþingi þannig, að aldrei var hallað á sam-
starfsflokkinn. Ef ófriðlega leit út og óánægður kaup-
maður vildi senda SlS hnútu, bægði Ólafur hættunnl
frá með því að láta senda afmælisskeyti til ljósmóður
sem átti 80 ára afmæli þann dag. Nú er Eysteini nauð-