Ófeigur - 15.05.1956, Síða 30
28
ÓFEIGUR
ingarframkvæmda .011 þessi vinna er borguð eftir hæstu
gjaldskrá. Margar búðir við Völlinn, sem selja sæl-
gæti og ýmiskonar dýrar munaðarvörur eru í
eign íslenzkra gróðamanna. Spretta þær upp eins og
gorkúlur, hvar sem unnt er að koma við verzlun á Vell-
inum eða í nánd við hann.
#
Mikil hagsýni kemur fram í gróðasókn spekúlanta
á Vellinum. Tvær sérstakar gróðalindir eru nafnkennd-
ar. Önnur í sambandi við sorphreinsun staðarins. Hitt
er svínarækt, sem stunduð er í nánd við Völlinn. Lifa
svínin á matarúrgangi frá borðhaldi varnarliðsins og
hinna mörgu íslenzku starfsmanna, sem vinna fyrir
varnarliðið. Kunnugir menn telja, að hreinn gróði af
sorphreinsuninni geti ekki verið minni en 30 þús. doll-
ara árlega. Svínin, sem lifa á úrgangi varnarborgar-
innar munu skipta mörgum hundruðum. Er á þess-
um stað um að ræða miklar gróðalindir, þó að fæstar
þeirra verði hér taldar
#
Þegar vitneskja barst um Reykjavík, að blað mjög
óvinveitt allri starfsemi Atlantshafsbandalagsins hefði
á dularfullan hátt komizt í leyndustu skýrslur gróða-
manna á Vellinum, sló miklum ótta á þá menn, sem
stóðu að hinni árangursríku fésýslu suður hjá Kefla-
vík. Var þeim mjög í hug að komast fyrir, með hvaða
hætti njósnarliðið í Reykjavík hefði komizt að bókfest-
um umræðum og ákvörðunum um þetta viðkvæma mál.
Kom gróðamönnum fyrst saman um að gera „prívat“
húsrannsókn á heimilum 10 manna, sem gætu hafa
haft leyfilegan eða óleyfilegan aðgang að skjölum er
snerti gróðabrall þeirra og sálufélaga, sem áttu þar
hagsmuna að gæta.
#
Einn af atkvæðamestu hjálparmönnum gróðabrall-
ara Vallarins getur heitið Styrkár, af því að hann er
sterkur í betra lagi. Þegar rætt var að um að fá fyrir-
skipaða húsrannsókn, benti hann á að fara yrði „prí-
vat“-leið í þessu efni, því að dómsmálaráðherra væri
oft heldur svifaseinn í þessháttar málum, og mundi
hentara fyrir gróðamennina að ganga sjálfir fram til
atlögu gegn hugsanlegum skjalaþjóf og halda rann-