Ófeigur - 15.05.1956, Page 57

Ófeigur - 15.05.1956, Page 57
ÖFEIGUR 55 herra til framgöngu sem hlaut að vera óhagstæð og ógeðfelld fjáraflamönnunum, sem hér voru að verki. Það er vitað, að Hermann varð fyrir svo miklu álasi og óvild fjáraflamanna, sem vildu frið en ekki stríð í okurmálunum, að hann bar ekki sitt bar í margar vik- nr eftir, að hann hafði kveikt þann eld sem lengi mun brenna í öskuglóðum okurmálanna. * * Alþingi setti nefnd til að rannsaka okurmálin, en lítili hugur fylgdi því máli. Ekkert af dagblöðum höfuðstað- arins fylgdist með því máli af áhuga. Þórður Björnsson, aðstoðarmaður hjá sakadómara, hóf myndarlegar yfir- heyrslur í framhaldi af rannsókn Valdimars Stefáns- sonar. Málsskjöl Gunnarsbúðar, að því er snertir bók- hald fyrirtækisins, bíða í athugun Ragnars Ólafsson- ar. Mikil drög liggja í framkomnum heimildum að upp- hafi þessara okurmála, en óvíst er um framhaldið. Mikill fjöldi manna er riðinn við okurmálin, með því að Ieggja fjármagn í hendur þeirra, sem standa fyrir útlánumun. Þögn allra blaða um kjarna þessa máls stafar af samtilfinningu manna, sem ekki þekkjast nema að litlu leyti, en eru þó samferðamenn í líferni I sem hlynnir að okurstarfsemi. Vegna þess að Ófeigur gaf almenningi byrjunar- skýrslu í málinu, Vegna þess að Hermanni var af grunnfærnum flokksbræðrum þrýst til að biðja dóms- málaráðherra að sækja mig til sektar. Vegna þess að ráðherra varð við þessum tilmælum og vegna þess að ég fékk aðstöðu til að taka á segulband kjarna rann- sóknanna í þessu Hermannsmáli, hefir sá hluti þjóð- arinnar, sem vill vita um meginþætti okurmálsins í þremur ritgerðum í Ófeigi aðalheimildir um sögu Gunn- arsbúðar eins og hún verður handbær almenningi þar til ríkisstjórn og dómstólar opna sín miklu forðabúr með dómfestum myndum úr viðskiptalífi höfuðborg- arinnar á yfirstandandi tíma.

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.