Ófeigur - 15.05.1956, Side 58

Ófeigur - 15.05.1956, Side 58
56 ÓFEIGUR „Hátf til lofts og vítt til veggja". Andlega lífið í landinu kostar mikið fé, en nær þó ekki tilgangi sínum eins og æskilegt væri. Kirkjusókn er mjög stopul. Æskan í skólum landsins er of oft þreytt og leið á löngu og ærið andlitlu námi. Náms- þreytan er orðin landlægur sjúkdómur. Almenn gleði er í allflestum skólum þegar leyfi gefast og prófi er lokið hvert vor. Gleðisamkomur æskunnar jafnt í byggð og bæ eru mjög oft andstyggilegir ölæðisfundir, til sárra leiðinda þeim minnihluta, sem ekki drekkur. Og vinsælustu bókmenntir skólaæskunnar eru glæparitin. Ég fékk í vor í góðri búð lánuð 20 slík rit, svo að af miklu er að taka, enda er útgáfa þessara rita hinn mesti gróðavegur Heimilið, kirkjan og skólinn eru aflstöðvar uppeld- isins í landinu. Vitaskuld er þar margt vel og nytsam- lega gert, en það þýðir ekki að loka augunum fyrir því, að glæparitin og ölæði æskumanna á samkomnm í flestum sýslum og kaupstöðum eru staðreyndir, sem ekki tjáir að neita. Það eru nokkuð sjúk lungu 1 þjóð- líkamanum. Vissulega má gleðjast yfir atorku margra upprennandi manna við atvinnustörfin á sjó og landi; við fiskveiðar, aðgerð í fiskhúsum, vega- og bygginga- vinnu, ræktun og bílakstur í erfiðu landi. Þetta er þakk- arvert. En glæparitinu eru að allt of miklu leyti kom- in í stað hinna sígildu bókmennta, bæði fornra og nýrra, og drykkjuskapur á fjölmennum danssamkom- um bætir ekki upp kirkjusókn fyrri tíma. * Skóla og kirkjuþreytan er viðgeranlegt böl. Ef fólki leiðist í stofu hjá kennara eða í kirkju hjá presti, þá er þessum andlegum leiðtogum um að kenna. Bömum leiðist ekki hjá mæðrum sínum. Þóra í Skógum hefir ekki kunnað mikið í málfræði og ekki neitt í erlend- um tungum, en þegar Matthías, hinn mikla sonur henn- ar, gerði yfirlit um þroskaferil sinn, þá hafði hann

x

Ófeigur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.