Ófeigur - 15.05.1956, Qupperneq 61
ÓFEIGUR
59
Tvö erlend tungumál með þungri málfræði og erlend-
um stílum. Islenzk málfræði, óskiljanleg, ólæranleg og
algerlega gagnslaus nema til að veita lélegum kennur-
um atvinnu við yfirheyrslur. Stærðfræði, sem ungmenni
eiga að læra, en nota aldrei og gleyma strax. I góðum
gagnfræðaskóla í kaupstað höfðu 15 ára gagnfræðing-
ar ekki lesið í landafræði nema um hálfan hnöttinn á
mörgum skólagönguárum. I náttúrufræði eiga börn,
sem taka landspróf, að vita mikið um einkenni ætta í
grasafræði, án þess að hafa kynnzt jurtum og trjá-
gróðri nema af lélegum myndum. I sögu hefir lands-
prófsstjórn gefið sem fyrirmyndarsvar: Napoleon var
keisari í Frakklandi snemma á 19. öld. Við landspróf
er engin íslandssaga. Efnilegur gagnfræðingur hélt., að
Hannes Hafstein hefði verið einn af landnámsmönnum.
Þessi kennsla lamar, þreytir og deyfir.
*
Kennsluefni það, sem lögboðið er í ungmennaskól-
unum er þess eðlis, að það gerir nemendur frábitna
bóknámi og góða kennara leiða á starfi sem ekki er
hægt að gera vel, ef kennarinn fylgir reglugerðinni.
Héraðsskólar sveitanna eru yfirfylltir, ef hægt er að
ná í nemendur. Þar ægir saman 13., 14., 15. og 16. ára
ungmennum og fullþroska fólki, bæði úr sveit og eink-
um úr bæjum. Alloft reyna foreldrar í þéttbýli að koma
óþægum og treggreindum ungmennum í heimavistar-
skóla sveitanna. Er nálega ókleift verk að halda slíkum
nemendahóp í æskilegu sambýli innbyrðis og við kenn-
ara. Einn eða fáeinir ófriðarseggir geta gert líf ósam-
stæðra nemenda í stórum heimavistarskóla óbærilegt
bæði fyrir nemendur og starfslið skólanna.
*
Engin þjóð í víðri veröld nema Islendingar, hefir lög-
boðið öllum æskumönnum á fermingaraldri, sem hægt
var að króa inni í skólahreysi, að nema tvö erlend tungu-
mál, óaðgengilega málfræði, ónothæfan reikning og
sundurtættan dauðan fróðleik í sögu, landafræði og
náttúrufræði. Nú er þessum ungmennum þéttraðað í
heimavistarskóla. Meginhluti nemenda, bæði piltar og
stúlkur, verða kynþroska á þessum aldri og eru þá
um alllanga stund með órólega og sundurtætta skap-
gerð. Aldrei er æskunni meiri þörf á friði og þrosk-
andi umhverfi heldur en á þessum árum. Innan um