Ófeigur - 15.05.1956, Page 63

Ófeigur - 15.05.1956, Page 63
ÓFEIGUR 61 Samvinnumenn hafa verið svo heppnir að fá í sinn hóp nokkra óvenjulega vel hæfa menn, sem hugðust starfa við háskólann, en fóru aðra leið. Er þar átt við Tryggva Þórhallsson, Sveinbjörn Högnason og nú síð- ast Guðmund Sveinsson, skólastjóra í Bifröst. Hefir Guðmundur skólastóri Samvinnuskólans hafið í skóla sínum ýmiskonar heppilega nýbreytni í heimavistar- skóla. Þar er inntökupróf og vandleg eftirgrennslan um persónugildi nýrra nemenda. Borðsalur er stór. Sitja fjórir við borð, snyrtilega klæddir. Mikil setustofa er til afnota fyrir nemendur og kennara. Einn af yngri kennurum skólans er um leið íþróttafélagi og ráðu- nautur nemenda, ekki sízt um heppilega notkun tóm- stunda. Er það í fyrsta sinn, sem hin enska tutor-venja er notuð á Islandi, í breyttri mynd þó. # Hvað er að hinni nýju skólamálastefnu sem Brynj- ólfur Bjarnason lögfesti 1946 með stuðningi allra þing- manna nema okkar Gísla Jónssonar? Það er fyrst og fremst sá höfuðglæpur, að neyða þúsundir fermingar- bama til að byrja að stauta frumatriði tveggja erlendra tungumála, meðan unglingarnir hafa hvorki löngun tii þess náms eða viðunandi vald á móðurmálinu og bók- menntum þjóðarinnar. Þetta fráleita og tilgangslausa tungumálanám veldur því, að þessir unglingar eiga erfitt með að öðlast þjóðlega menntun og sæmilegt vald yfir móðurmálinu. Það er ekki tilviljun, að ungu skáldin reyna að yrkja rímlaust og öll bókmenntavið- leitni þessara viðvaninga er hliðstæð fálmi hinna ungu klessumálara. Langflestir imglingar, sem byrja á tveim málum á fermingaraldri, lesa hvorki á ensku eða dönsku annað en auglýsingar og reyfara, og fleiri þessháttar ,,bókmenntir“. * Allir Islendingar, sem vilja nema erlend mál vegna daglegra þarfa, geta gert það án þess að vera þving- aðir til þess á bernskuárum. Hinsvegar sækist jafnvei greindum ungmennum seint skyldunám skólanna. Ég gerði eitt sinn tilraim með mjög greindan ungan mann, sem var fæddur og uppalinn á bókelsku heimili og var fjöllesinn í íslenzkum bókum. Hann hafði numið ensku í góðum gagnfræðaskóla í 3 ár og önnur þrjú í fram- haldsskóla. Ég léði honum góða, fremur létta og mjög

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.