Ófeigur - 15.05.1956, Síða 64
62
ÓFEIGUR
skemmtilega enska bók um veraldarsögu efni og'
bað hann að reyna að lesa bókina sér til gagns og'
gleði, eins og Islendingasögu. Hann las nokkuð, en með
erfiðleikum og þurfti orðabók. Greindur maður, bók-
gefinn, með 6 ára skólagöngu, var ekki kominn gegn
um fordyri hins erlenda máls að kjarnanum, þar sem
menningin býr í sígildum bókum. En hvað mundi ger-
ast um treggreinda nemendur með styttra námi og
erfiðari aðstöðu til að lesa bækur?
*
Margir foreldrar og ýmsir uppeldisbarserkir. mis-
skilja tungumálanám og halda að það gefi menntun
eða öryggi um álitlega borgaralega framtíð. Þetta er
misskilningur. Fólk á gæfu og giftu undir þreki, kjarki,
skapandi gáfum, drengskap og manndómi. Ég vil nefna
í þessu sambandi nokkra duglega menn, sem hafa haf-
izt til valda og sumir til auðæfa án verulegrar skóla-
göngu: Björn Ólafsson stórkaupmaður og ráðherra,
Erlendur Einarsson, hálffertugur, með tveggja vetra
námi, stýrir stærsta fyrirtæki landsins. Jóhann Þ. Jós-
efsson, auðmaður, þingskörungur, margfaldur sendi-
maður þjóðarinnar í samningum erlendis, ráðherra og
athafnamaður. Alveg óskólagenginn, en talar og skrif-
ar fjögur erlend mál. Jón Ámason, með tveggja ára
nám í gagnfræðaskóla. Einn af þeim fáu íslenzku f jár-
málamönnum, sem er svo vel ritfær, að hann getur
háð með góðum árangri andleg átök við hvern mann
sér samlendan. Hefir að baki glæsilegan feril við efl-
ingu Sambandsins og þjóðbankans. Er nú fyrstur
Islendinga einn af bankastjórum alþjóðabankans í
Washington. Vilhjálmur Þór. Alveg óskólagenginn, en
mest skapandi af núlifandi viðskiptaforkólfum og velur
á milli hinna virðulegustu trúnaðarstarfa samvinnu-
félaganna og þjóðfélagsins. Hér eru fá dæmi nefnd
um nokkra kunna menn. En hinir skipta þúsundum,
bæði konur og karlar, sem standa framarlega í lífs-
baráttu og framfarasókn þjóðarinnar, en eiga gengi
sitt eingöngu að þakka skapandi orku og þekkingu.
Tungumálaþekkingin hefir komið til þeirra án þving-
unar.
*
Mikið er Bjami á Laugarvatni búinn að byggja á
aldarfjórðungi. Þar er héraðsskóli, húsmæðraskóli,