Ófeigur - 15.05.1956, Síða 67
ÓFEIGUR
65
Svartur listi — Hvítur listi
Stalin fann upp svarta listann í blindu valda-
brölti sínu. Eiturgas, framleitt í náttmyrkri á-
byrgdarleysisins, kom í stað opinna átaka í fullu
dagsljósi. Tœkni Stalins barst hingað til lands
með söfnuði hans. Borgarar sem vildu vingast við
bolsiviíca á Islandi undirbjuggu „hreinsaniru hver
á sínum bœ. Þegar gistivinir kommúnista sóttu
sem mest á að koma á vinstri stjórn, var ég talinn
mótgangsmaður þeirrar stefnu. Þá var biíinn til
sá listi, sem hér birtist eftir Ijósmynd af frumheim-
ildinni, Tveir menn skrásettu margra manna vilja
í þessu ritverki. Annar á gamla ritvél. Hinn með
stílvopni.
Það er undarlegt, að ég skyldi verða fyrstur
fyrir fordæmingu svartlistastefnunnar. Ég hefi
um langa œfi unnið að stofnun „hvítra lista“.
Þá er treyst á það góða og lífvœnlega í samferða-
mönnunum. Hefir þessi viðleitni mín mjög komið
frarn við eflingu samvinnu og stéttasamtaka. I
sögukveri því, sem flest íslenzk börn hafa lesið
í barnaskólum undangengin JfO ár, er mest á-
herzla lögð á það, sem ber vott um manndóm og
þrek. Sama má segja um bók mína Fjölnismenn
og Jón Sigurðsson. I þeim anda vinn ég nú að
bók um „heijur“ landshöfðingjatímabilsins. Þá
hefi ég ritað œfiminningar samtíðarmanna í
tugatali. 1 öllum þessum verkum efli ég „hvíta
lista“ t sögu þjóðarinnar með því að draga fram
í dagsljós sögunnar það sem einkum verður efni-
viður í kóralrif menningarinnar.
Með haustinu mun ég gera athugasemdir við
þennan svarta lista með því að benda á þjóðbœt-
andi störf allra þeirra, sem gistivinir vilja þoka
nær yztu myrkrum mannfélagsins. Með þessu œtla
ég að reyna að venja fólk af að búa til svarta
lista, en hvetja æskuna til að starfa undir merki
þeirra, sem efla hvítlistafólk til drengilegrar
framsóknar.