Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 15
SPORT 1522. mars 2019 A lfreð Finnbogason, fram- herji íslenska landsliðsins, hefur gengið í gegnum erf- iða tíma innan vallar síð- ustu mánuði. Alfreð er á mála hjá Augsburg í Þýskalandi og iðulega þegar hann spilar er hann stjarna liðsins. Hann skorar og held- ur liðinu á floti. Alfreð hefur hins vegar frá áramótum 2017/2018, misst af mikið af leikjum, reglu- lega, vegna meiðsla. Nú horfir til betri vegar og er Alfreð með ís- lenska landsliðinu, hann er klár í slaginn gegn Andorra í kvöld, fyrsta leik liðsins í undankeppni Evrópumótsins 2020. ,,Það er ekki spurning að það var mjög gott að koma og fá klukkutíma undir beltið,“ sagði Al- freð þegar blaðamaður DV settist niður með honum í smábænum Peralada á Spáni, þar fór undir- búningur liðsins fram fyrir leikina gegn Andorra og síðan Frakklandi, á mánudag. Alfreð snéri aftur á völlinn um síðustu helgi með Augsburg. Það stóð tæpt að hann myndi ná landsleikjunum. „Þegar fór að líða á ferlið, eftir 2-3 vikur í meðhöndlun, þá fór ég að stefna á leik. Þá var stefnan sett á þennan Hannover-leik en samt með skýr fyrirmæli, að ég myndi ekkert spila meira en í 65 mínútur. Þetta voru vöðvameiðsl og hætt- an á að það gerist eitthvað aftur er þegar vöðvinn er þreyttur. Ég var ánægður með þetta fyrsta skref í leik og finn það alveg að það er alltaf erfitt að koma til baka. Mað- ur er að finna sig og finna taktinn, treysta líkamanum aftur. Ég er bú- inn að vera óþarflega mikið frá, á þessu og síðasta ári, það tekur sinn tíma að fá þetta sjálfstraust aftur í líkamann.“ Vildu ekki að Alfreð færi í lands- liðsverkefnið Alfreð setti markmiðið á að ná þessu verkefni með landsliðinu, hann lagði mikið á sig til að ná því. „Ég vildi alls ekki missa af þessu verkefni, ef ég hefði ekki getað spilað gegn Hannover þá hefði verið óraunhæft að koma hing- að til móts við landsliðið. Það var bæði gott fyrir mig og von- andi landsliðið, ég kem með sama markmið og alltaf, það er að hafa áhrif fyrir liðið. Þjálfararnir verða að ákveða hversu mikið ég get spil- að og hversu mikið ég get gert.“ Augsburg var ekki hrifið af því að Alfreð væri að fara í verkefnið, félagið bað hann um að sleppa því að fara og bauð honum á móti frí frá æfingum. Það dugði ekki til, Al- freð sannfærði forráðamenn fé- lagsins um það að það besta fyr- ir hann, væri að fara til móts við landsliðið. Spila leiki og fá traust á líkama sinn aftur. „Það var alveg slagur, ég get viðurkennt það. Þeir voru ekki ánægðir með það að ég væri að fara, þeir reyndu ítrekað að sann- færa mig um að vera eftir. Spila æf- ingaleik og fá helgarfrí, og enginn ferðaþreyta. Þeir reyndu nokkuð oft að sannfæra mig um það, ég verð auðvitað smá að skilja það. Maður verður að bera virðingu fyrir þeim og þeirra hagsmunum. Ég útskýrði það þannig að ég þyrfti leiki, mig vantaði sjálfstraust, að ég gæti spilað. Að trúa og treysta líkamanum, það kemur með því að spila. Ég útskýrði það fyrir þeim, á endanum hafa þeir ekkert um það að segja. Ég vildi samt ekki fara í leiðindum. Ég var að taka smá áhættu með að koma hingað, mér finnst það þess virði.“ Fólk fljótt að gleyma Íslenska landsliðið vann ekki leik árið 2018, en hápunktur ársins var á heimsmeistaramótinu í Rúss- landi. Landsliðsmenn eru spennt- ir fyrir því að snúa við blaðinu, komast á sigurbraut. „Það hlakk- ar í okkur að fara að vinna leiki og þá eyðist þessi spurning, í fót- boltanum er fólk fljótt að gleyma. Það er gríðarlega mikilvægt að byrja þessa undankeppni vel, við erum búnir að vera að spila á móti óvenju sterkum liðum. Þar vilj- um við samt spila og viljum vinna og keppa við þau lið, það hef- ur ekki tekist lengi. Nú eru smá breytingar, með þjálfurunum og nokkrir nýir leikmenn, annars er þetta sami kjarninn. Ég sé ekki ástæðu fyrir því að þessi velgengi ætti ekki að halda áfram. Það eru smáatriði sem skipta máli í þessari undankeppni, ég hef fulla trú á því að við eigum nóg eftir.“ „Við vitum hvernig það er að fara á stórmót, EM 2016 var sturluð upplifun. Það var fyrsta skiptið og maður upplifði öll þessi augnablik með liðinu, það eitt og sér er nóg til að kveikja í mönnum fyrir þessa undankeppni.“ n Hreidur.is • Auðbrekka 6 •Sími 822 7242 HREIÐUR.IS Tekur áhættu með því að taka þátt í verkefni landsliðsins n Vildu ekki sjá það að Alfreð myndi spila með landsliðinu n Vilja eyða spurningum um tapleiki MYND HANNA/DV
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.