Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 37
Brot af því besta 22. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ
EM Sendir er lítil sendibíla-þjónusta sem sérhæfir sig í að veita fjölbreytta
og persónulega þjónustu bæði
einstaklingum og litlum fyrirtækjum.
EM Sendir reynist mörgum ómet-
anleg hjálparhella, vinnur verk sem
aðrir taka ekki að sér og kemur oft til
bjargar við aðstæður þegar fólk veit
hreinlega ekki hvert á að snúa sér, til
dæmis varðandi úrgang og sorp sem
ekki er veitt móttaka á hefðbundnum
endurvinnslustöðvum, og við marg-
víslegar aðrar aðstæður.
EM Sendir er í eigu þeirra Einars
Margeirs Kristinssonar og tengda-
föður hans, Hafþórs Harðarsonar, en
þeir hafa yfir að ráða tveimur með-
alstórum sendibílum. Bílarnir henta
í minni búslóðarflutninga hjá pörum
eða einstaklingum en auk þess veita
þeir félagar alls konar þjónustu, aka
með sorp, skutlast með vörur fyrir
fyrirtæki og sinna jafnvel tiltekt, til
dæmis í bílskúrum og ruslageymslum.
„Varðandi búslóðaflutninga þá
hentar okkar þjónusta best til dæmis
stúdentum, þeim sem eru að flytja að
heiman frá sér í fyrsta skipti og jafn-
vel þeim sem eru að flytja á síðasta
heimilið sitt, þ.e. dvalarheimili,“ segir
Einar.
Mikil þörf fyrir svona þjónustu
„Fólk er oft hissa á hvað við veitum
mikla þjónustu. Þegar allt er á hvolfi
í bílskúrnum þínum getum við komið,
farið með ruslið og gengið frá því.
Það sama gildir um ruslið í garðin-
um og svo framvegis. Oft erum við
ruslakarlar fyrir það sem hin almenna
sorphirða tekur ekki. Við erum oft
fengnir í alls konar sérkennileg ver-
kefni sem fólk situr uppi með. Gott
dæmi er iðnaðarrusl sem verður
eftir þegar fólk hefur farið í gegnum
breytingar á húsnæði og það veit
ekkert hvar það getur losað sig við
slíkan úrgang. Stundum eru þetta
stórir steypuklumpar sem vega hund-
ruð kílóa. Þá mætir maður bara með
mannskap og burðarbönd og leysir
málið.“
Viðskiptavinahópur EM Sendis er
mjög fjölbreyttur og ljóst er að mikil
þörf er fyrir þessa þjónustu: „Þetta
er bara öll flóran en fyrst og fremst
er venjulegt fólk sem þarf á þessari
þjónustu að halda, persónulegri þjón-
ustu varðandi verkefni sem það getur
ekki leyst sjálft. Fólk sem á bara fjöl-
skyldubíl eða jafnvel engan bíl, þarf
að taka til í geymslunni sinni og hefur
oft engin tök á að losa sig við ruslið.
Þarna komum við inn og leysum
vandann. Eða þegar eldra fólk klippir
tréð í garðinum sínum. Hver á að fara
með greinarnar á Sorpu ef þetta er
ekki tekið? Það hentar ekki öllum að
setja þetta í skottið á bílnum sínum.“
Þjónusta við veitingahús
Eins og áður kom fram vinnur EM
Sendir töluvert fyrir fyrirtæki, sér-
staklega við smærri vörusendingar
á morgnana fyrir til dæmis heildsöl-
ur. En þeir félagar vinna einnig fyrir
veitingastaði: „Ég hef bakgrunn úr
hótel- og veitingarekstri og sú reynsla
meðal annars gerir okkur kleift að
þjónusta veitingastaði. Við losum
þessa aðila við ruslið sem þeir hafa
ekki hugmynd um hvert á að fara
með. Eða ef afgangsolían er ekki
hirt reglulega af efnamóttökunni þá
vitum við hvert á að fara með hana.
Það sama gildir um endurvinnslugler
og ýmsar aðrar ruslaferðir þar sem
sorphirðan tekur af einhverjum
ástæðum ekki við, en við vitum hvert
á að fara með þetta efni. Við vitum
líka hvort það kostar að farga hlutum
og hvað það kostar.“
Þess má geta að þeir Einar og
Hafþór aka líka fyrir Nýju Sendi-
bílastöðina og þess vegna eru bílar
þeirra merktir henni. Nýja Sendibíla-
stöðin virkar eins og bílaleigustöðin
fyrir utan að bílstjórarnir eiga hlut í
henni.
Þeir sem vilja nýta sér þjónustu
EM Sendis eða fá frekari upplýsingar
geta sent skilaboð inni á Facebook
undir: EMSendir en einnig má hringja
í síma 696-0420 eða 896-6283.
EM SENDIR:
Persónulega og hjálpsama
sendibílaþjónustan
Dæmi um úr-
gang sem EM
Sendir losar
viðskiptavini
sína við