Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 18
18 FÓKUS - VIÐTAL 22. mars 2019
K
ristján Berg Ásgeirsson,
sem rekur Fiskikónginn,
steig nýverið fram og ræddi
reynslu sína af fíkniefnum
og dóm sem hann hlaut árið 1996.
DV ræddi við Kristján um þetta
mál og einnig æskuna, frægðina
og slysið sem breytti lífsviðhorf-
inu.
Nú er langt um liðið, hvað fær
þig til þess að koma fram núna?
„Ástæðan er einföld,“ seg-
ir Kristján. „Mér hefur liðið illa út
af þessu máli. Þetta hefur setið á
minni sál í rúmlega tvo áratugi og
ekki liðið sá dagur að mér verði
ekki hugsað til þessa. Þetta hefur
verið þung byrði að bera og það
hefur verið erfitt fyrir mig að fyrir-
gefa sjálfum mér að hafa leiðst út
í þetta. Einnig vill ég koma fram
og kenna börnum mínum að það
getur verið í lagi að gera mistök, ef
maður lærir af þeim, og ef mistök-
in verða stór, eins og í mínu tilfelli,
þá er alltaf hægt að snúa blaðinu
við og byrja upp á nýtt.
Að ræða hlutina opinskátt er
viss þáttur í því að viðurkenna
mistök sín og reyna að bæta sjálf-
an sig. Einnig er ég mjög þakklát-
ur DV, ásamt öðrum fjölmiðlum,
fyrir að sýna mér tillitsemi, en það
hefði verið hægt að taka mig af lífi
í fjölmiðlum fyrir löngu með nei-
kvæðum fréttaflutningi. Ég hef
alltaf svarað því til að ég eigi eftir
að veita viðtal, en ég verði að velja
minn tímapunkt sjálfur, og mér
fannst það bara henta vel núna. Ég
óska þess bara að fólk geti jafnvel
lært af mínum mistökum.“
Breiðhyltingur í húð og hár
„Ég er fæddur í Reykjavík árið
1971, á tvær systur, þær eru tví-
burar og tveimur árum yngri en
ég. Ég var ættleiddur þegar ég var
fjögurra til fimm ára og Ásgeir er
því pabbi minn. Uppeldið fór fram
í Breiðholtinu, en ég bjó þar í tutt-
ugu ár. Fyrst í Fellahverfi í fimm ár,
en svo fluttumst við í Seljahverfið
og gekk ég í Seljaskóla. Ég er því
Breiðhyltingur og er bara virkilega
stoltur af því,“ segir Kristján.
Hvernig var æskan?
„Sem krakki og unglingur var
ég frekar lífsglaður, var mikið í
íþróttum, t.d. fótbolta, bar út DV
í mörg ár og var svo að vinna við
að rukka á kvöldin smáauglýs-
ingar, sem birtust í DV á sínum
tíma. Þá voru ekki til neinir posar,
kreditkort, eða tölvur. Fólk pantaði
smáauglýsingar í gegnum síma og
ég mætti svo viku seinna og inn-
heimti fyrir DV. Ég gekk því hús
úr húsi í Breiðholtinu og hef kom-
ið að ég held, inn í hverja einustu
blokk, hvern einasta stigagang,
og sennilega 90 prósent af öllum
húsum í Breiðholtinu. Ég þekki
Breiðholtið betur en fingur mína.
Ég var frekar stríðinn, fannst gam-
Fiskikóngurinn Kristján Berg hefur ekkert að fela
n Hlaut dóm fyrir alsælusmygl n Erfitt að fyrirgefa sjálfum sér
n Sögusagnirnar meiða n Skíðaslys eiginkonu breytti sýn á lífið