Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Síða 38
Brot af því besta 22. mars 2019KYNNINGARBLAÐ Alhliða garðaþjónusta – hellulagnir, pallasmíði og skjólveggir Garðaþjónusta Kópavogs er rótgróið fyr­irtæki sem sérhæfir sig í alhliða garða­þjónustu. Kópavogsbúar þekkja vel til vand­ aðra verka fyrirtækisins sem hefur um árabil séð um að prýða garða, hreinsa beð og helluleggja. Helgi Bersi Ásgeirsson garðyrkjumaður segir að aðaláhersla fyrirtækisins sé lögð á almennt viðhald á görðum sem og gerð nýrra garða. „Við sérhæfum okkur meðal annars í að hellu­ leggja en það er einmitt mikið um að fólk sé að helluleggja um þessar mundir. Við aðstoðum einnig viðskiptavini við hönnun og skipulag á görð­ um,“ segir hann. Einnig smíðar Garðaþjónusta Kópavogs palla og skjólveggi. Hvers kyns garðaþjónusta „Garðaþjónusta Kópavogs sinnir einnig tyrfingu, jarðvegsskiptum, trjáfellingu og trjáklippingu. Þótt fyrirtækið sé eyrnamerkt Kópavogi þá förum við gjarnan yfir bæjarmörkin og vinnum víðs vegar um höfuðborgarsvæðið, ef því er að skipta. Við leitumst líka við að hagræða verkefnum og vinnu­ tíma eftir þörfum viðskiptavina hverju sinni.“ Garðaþjónusta Kópavogs er með áratuga reynslu í hvers kyns garðaþjónustu og leggur mikinn metnað í að þjónusta fjölda einstaklinga, fyrirtækja og húsfélaga í almennu garðaviðhaldi yfir allt sumarið. Garðaþjónusta Kópavogs Austurkór 63, Kópavogur. Sími: 859-7090. Garðaþjónusta Kópavogs er á Facebook: gardakop

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.