Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 39
Brot af því besta 22. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ
Ástríða, þekking og reynsla
Bestu fagmennirnir eru þeir sem hafa ástríðu fyrir sínu fagi. Parketslípun Meistarans er
fyrirtæki sem rekið er af ástríðu fyrir
því að skila framúrskarandi vinnu á
sínu sviði og standa undir tilkomu-
miklu nafni fyrirtækisins. Parketslípun
Meistarans sérhæfir sig í parketslíp-
un, parketlögnum, sólpallasmíði og
ýmsum öðrum skyldum v erkefnum,
fyrir einstaklinga jafnt sem fyrirtæki.
Einnig býður fyrirtækið upp á al-
hliða málningaþjónustu sem og
flísalagningu á gólfi og veggjum.
Vanda til verka
Fáir, ef nokkrir, hafa lagt og slípað
parket jafn víða og Parketslípun
Meistarans en parketlögn og parket-
slípun er handverk sem krefst mik-
illar og stöðugrar þjálfunar. Leggur
fyrirtækið sig fram um að þjálfa og
mennta sitt starfsfólk vel til þessara
vandasömu verka.
Aðeins það besta á markaðnum
Fyrirtækið tekur einnig að sér alla
almenna smíðavinnu, þar á meðal
smíði sólpalla, uppsetningu hurða,
uppsetningu á eldhúsinnrétting-
um, sem og alla sérsmíði. Gott lakk
er afar mikilvægt og Parketslípun
Meistarans notast aðeins við það
besta á markaðnum, einnig hvað
varðar parketefnið sjálft en fyrirtækið
er með framúrskarandi parketvörur
frá Bona og Junckers. Einnig býður
fyrirtækið þetta góða parketefni til
sölu á hagstæðu verði.
Fyrsta flokks tækjabúnaður
Parketslípun Meistarans hefur yfir
að ráða fyrsta flokks tækjabúnaði,
meðal annars beltavél, kantslípivél,
hornavél, juðara, bónvél og öfluga
sérhæfða ryksugu. Þessi tæki eru
einnig boðin til útleigu á hagstæðu
verði.
Parketslípun Meistarans ábyrgist
vandaða vinnu við öll sín verkefni en
veitir viðskiptavinum jafnframt gjald-
frjálsa ráðgjöf t.d. um frágang sem
og val á parketi, flísum og málningu.
Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni
parketslipunmeistarans.is og á Face-
book-síðunni: Parketslípun Meistar-
ans.
Einnig er gott að hafa samband við
Adam í síma 762 5668 eða senda
fyrirspurn á netfangið parketslipun@
parketslipun meistarans.is hvort
sem þú óskar eftir þjónustu, ráðgjöf,
tækjaleigu eða kaupum á parketvör-
um.
PARKETSLÍPUN MEISTARANS: