Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 29
Allt fyrir dýrin 22. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ Aldrei of seint að kenna gömlum hundi að sitja Tryggur hundaskóli leggur áherslu á samvinnu milli hunds og eiganda. Skólinn notast við jákvæðar þjálfunaraðferðir sem byggjast á því að verðlauna hundinn fyrir þá hegðun sem eigendur vilja sjá og hunsa þá hegðun sem þeir vilja ekki sjá. Það er þolinmæði, samvinna, virðing og traust sem eru höfð að leiðarljósi hjá Trygg og eru það þær Sandra Sjöfn Helgadóttir og Björk Ingvarsdóttir sem standa að skólanum. Þær eiga báðar tvo hunda. Sandra er með tvo Border Collie/ íslenska blendinga, þau Ronju og Atlas, og Björk er með Labrador Retriever og Golden Retriever, þær Tinnu og Zandý. Að sögn þeirra er aldrei of seint að kenna gömlum hundi að sitja. Hvernig varð þetta til hjá ykkur? „Við kynnumst upphaflega í gegnum Björgunarhundasveit Íslands. En þangað mættum við báðar á vetrarnámskeið árið 2012. Við smullum strax saman og áhugi okkar beggja á hundum og þjálfun þeirra leyndi sér ekki. Fljótlega skráðum við okkur saman í nám í hundaþjálfun hjá Vores Hundecenter í Danmörku. Þetta var 15 mánaða nám sem við fórum saman í gegnum og var mjög krefjandi og skemmtilegur tími. Eftir þetta skráum við okkur svo í atferlisfræðinám við sama skóla en það er 2ja ára nám. Eftir þetta fórum við að þjálfa sjálfstætt og í sitthvoru lagi en vorum alltaf að hjálpa hvor annarri. Svo við ákváðum að samein­ ast sem Tryggur Hundaskóli og hér erum við í dag.“ Hvað hefur reynst eftirsóknarverðast? „Það eru einkatímarnir, og yfirleitt er það út af einhverjum sérstökum vandamálum. Vandamál sem snúa að tilfinningum eða ákveðnum aðstæðum er yfirleitt best að taka á í einkatíma. Þá fær eigandinn greiningu á vandamálinu, kennslu og sérsniðið þjálfunarplan með þarfir einstaklingsins í huga.“ Hversu mikilvæg er þolinmæðin í svona ferli? „Þolinmæðin er mjög mikilvæg í allri þjálfun. Það eru yfirleitt engar töfra­ lausnir á vandamálum, sem leysa þau strax. Öll þjálfun tekur tíma og maður er í raun aldrei alveg „búinn“ að þjálfa, það þarf alltaf að viðhalda þjálfun svo lengi sem hundurinn lifir. Svo við myndum segja að þolinmæði sé eitt það allra mikilvægasta sem hundaeigendur þurfa að hafa að leiðarljósi við þjálfun.“ Hvernig viðbrögð hafið þið fengið? „Viðbrögðin hafa verið mjög góð og fólk vonandi almennt ánægt með þjálfunina okkar. Það er alltaf gaman þegar maður sér árangur og glaða eigendur að vinna með hundana sína.“ Hvað finnst ykkur vera mest gefandi við þetta starf? „Það er ótrúlega gefandi að hitta mismunandi hunda, alls konar karaktera, kynnast mörgum tegundum og eiginleikum þeirra. En sérstaklega gefandi er þegar maður getur hjálpað og séð árangur með þjálfuninni.“ Eru einhverjir viðburðir á næstunni hjá ykkur? „Næst á dagskránni er hlýðni­ námskeið fyrir hunda á öllum aldri helgina 12.­14 apríl. og við hlökkum mjög til þess. Í sumar er svo stefnan tekin á landsbyggðina og erum við með nokkra staði í kortunum til að halda námskeið. Svo erum við auðvitað með bókaða einkatíma hér og þar.“ Hægt er að fylgjast með Trygg á Facebook, Instagram og www.tryggur.net
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.