Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 17
FÓKUS - VIÐTAL 1722. mars 2019 Toshiki hefur nú búið hér í 27 ár og talar góða íslensku. Hann talar hins vegar ennþá japönsku við börnin sín tvö. Árið 1999 skildu Toshiki og Helga en Toshiki ákvað þó að vera um kyrrt á Íslandi. Kom það til greina að flytja aft- ur til Japan? „Það hefði verið vandkvæðum bundið fyrir mig. Japanska kirkj- an velur vel þá nema sem kom- ast inn í prestaskólann og ætlast til þess að þeir starfi lengi í kirkjunni. Ég hafði aðeins þjónað í tvö ár og svo flutt til Íslands. Þetta voru von- brigði fyrir marga í japönsku kirkj- unni og þeir létu mig vita af því. Ég hefði þurft að sýna fram á eitt- hvað mjög jákvætt, en ekki snúa til baka eftir hjónaskilnað. Í Japan hefði fólk tekið því á þann veg að ég hefði snúið til baka með skottið á milli lappanna. Ég var líka búinn að eyða miklu púðri í að læra ís- lensku og á samfélagið hérna. Auk þess hafði ég mikla trú á þessu nýja starfi. Ég vildi ekki glata þessu öllu.“ Erfiðast að sjá á bak brottviknu fólki Starf Toshikis sem prestur inn- flytjenda hefur tekið breytingum líkt og þjóðfélagið. Hans störf hafa sjaldnast verið lík störfum flestra annarra presta. Mun stærri hluti hefur falist í sáluhjálp og ráðgjöf varðandi praktísk málefni. „Fyrstu verkefnin voru að að- stoða konur frá Asíu sem höfðu gifst íslenskum mönnum. Þetta voru mjög erfið mál. Það voru nokkur dæmi þess að þær hefðu verið keyptar til landsins og þær einangruðust. Það ríktu einnig miklir fordómar í garð þeirra því þær töluðu ekki íslensku. Mín störf fólust í því að hitta fólk og reyna að finna lausn á vanda þess, óháð trúarbrögðum, líkt og félags- ráðgjafi. Á þessum tíma var lítið fjallað um málefni innflytjenda, en kirkjan tók það skref að koma á þessari þjónustu, á undan sam- félaginu.“ Til að byrja með hafði hann að- setur á Biskupsstofu en síðan hefur hann flakkað á milli kirkna. Hann var lengst tíu ár í Neskirkju en hef- ur nú aðstöðu í Breiðholtskirkju. Innflytjendum hefur yfirleitt far- ið fjölgandi á Íslandi síðan hann tók við. Árið 2004 var Evrópusam- bandið stækkað til austurs og þá jókst fjöldi Pólverja og annarra Austur-Evrópumanna á Íslandi. Í hruninu dróst allt saman en þegar birti til aftur fóru flóttamenn að koma hingað í auknum mæli. Síð- an 2015 hefur hann nær eingöngu starfað á þeim vettvangi. „Mér finnst það nokkuð merki- legt að eftir að ég fór að sinna flóttafólkinu hafa störf mín þróast meira í áttina að hefðbundnum prestsstörfum með þeim athöfn- um sem fylgja. En það besta við starfið er hversu mikið frelsi ég hef í verkefnum mínum. Það eru engin fordæmi, en ég fæ að skapa þau fyrir framtíðina.“ En hvað er erfiðast? „Þegar fólk er sent úr landi. Þegar hælisleitandi kemur til mín hugsa ég: Hvort kemur hvítt blóm eða svart blóm? Fær hann að vera eða verður hann rekinn úr landi? Það er erfiðara fyrir okkur presta að takast á við mál sem þessi því við tökum þeim persónulega. Ann- að á við um lækna og lögfræðinga sem geta dregið skýra línu milli sjálfs sín og skjólstæðinga sinna. Við köllum fólk ekki skjólstæðinga heldur bræður eða systur okk- ar. Annars gætum við ekki þjónað þeim sem prestar,“ segir Toshiki og játar að hafa grátið í sumum tilvik- unum. Eftir að fólki hefur verið vikið úr landi tekur oft mikil óvissa við. Toshiki hefur reynt að halda sam- bandi við fólkið, en það hefur ekki alltaf tekist. „Þetta fær mjög á mig. Fólkið er hrópandi á hjálp, en ég er hér á Íslandi og það sem ég get gert er mjög takmarkað.“ Hann nefnir sem dæmi hjón- in Nasr Rahim og Sobo Anwar Hasan, frá Íran og Írak, og lítil börn þeirra, Leo og Leona. Þau komu til Íslands í mars árið 2017 en var vís- að úr landi fyrir jólin það ár. „Þau voru send til Þýskalands og var vísað þaðan líka síðastliðið haust. Þá flúðu þau til Frakklands og höfðust við í skógi og voru á vonarveli. Ég var þá í fríi í Japan en gat vakið athygli á vandræð- um þeirra, ásamt nokkrum vinum á Íslandi, með áskorun á netinu. Þá söfnuðust peningar sem komu þeim vel. Mál þeirra er nú komið í vinnslu í Frakklandi og ég vona innilega að þau fái jákvæð svör þar.“ Létu reyna á kirkjugrið Toshiki hefur ekki verið hrædd- ur við að taka slaginn fyrir flótta- menn. Árið 2016 stóðu hann og séra Kristín Þórunn Tómasdóttir fyrir atburði í Laugarneskirkju þar sem reynt var á kirkjugrið. Stóð þá til að vísa tveimur íröskum mönn- um, Ali Nasir og Majed, úr landi en þeir biðu þá ásamt prestunum og fleirum í kirkjunni. Toshiki seg- ir: „Á þessum tíma voru margir frá Írak reknir úr landi. Ég og Krist- ín ræddum saman og ákváðum að við þyrftum að sýna hvar kirkj- an stæði í þessum málefnum. Við vorum þá þegar með reglulegar bænastundir fyrir hælisleitend- ur, sem við köllum Seekers. En það vantaði meira beinar aðgerðir svo létum við reyna á þetta gamla hugtak, kirkjugrið, til að sýna fram á að við værum á móti brottvísun flóttafólks. Þetta voru samt frið- samleg mótmæli, við reyndum ekki að stöðva lögregluna með valdi.“ Áttuð þið von á því að þetta myndi takast? „Já,“ segir Toshiki án þess að hika. „Ég vonaðist til þess að lög- reglumennirnir myndu ræða við sína yfirmenn og fresta þessu í það minnsta.“ Það gekk hins vegar ekki eftir. Ali og Majed voru handteknir með mikilli hörku, leiddir út úr kirkj- unni og þeir síðan fluttir til Nor- egs. Eftir það tók við óvissan, en Norðmenn hafa sent Íraka aftur til síns heimalands. „Þetta var erfitt fyrir alla, líka lögreglumennina. Að þurfa að ganga inn í kirkju til að handtaka menn og leiða þá í burtu. En það var algerlega nauðsynlegt fyr- ir okkur að sýna fram á hvað væri að gerast í málefnum flóttamanna. Fram að þessu voru brottvísanir á næstum hverjum degi en enginn tók eftir þeim.“ Fékk hótunarbréf Almennt séð er Toshiki ánægð- ur með hvernig Íslendingar taka á móti innflytjendum. Það hafi einnig farið batnandi með hverju árinu. Þó sé alltaf ákveðinn hóp- ur sem streitist á móti, sérstaklega þegar um múslima er að ræða. „Þegar ég flutti hingað voru Ís- lendingar mjög kröfuharðir á að útlendingar töluðu strax íslensku. Þegar ég var nýfluttur hingað og talaði ennþá aðeins ensku við fólk, sagði ónefndur starfsmað- ur Rauða krossins við mig að ef ég ætlaði að lifa á Íslandi yrði ég að tala íslensku. Hjá Ríkisútvarp- inu var einnig við lýði hreintungu- stefna og enginn sem talaði bjag- aða íslensku mátti koma í þætti. Ævar Kjartansson útvarpsmaður breytti þessu vísvitandi og bauð útlendingum í þætti til sín, til þess að fólk vendist því að heyra ís- lensku með hreim.“ Toshiki segir að svo margt hafi breyst varðandi tungumálið. Nú hafi hann meiri áhyggjur af ís- lenskunni. Unglingar eru farnir að tala ensku sín á milli og allt starfs- fólk í búðum. „Við erum farin að- eins of langt fyrir minn smekk,“ segir hann og brosir glettnislega. Hvað varðar útlendingahatara þá segist Toshiki ekki vera í mikl- um samskiptum við þá yfirhöf- uð. Hann hafi þó fengið hótanir í bréfum í nokkur skipti, þar á með- al líflátshótun. Þó er nokkuð síðan hann fékk bréf síðast. „Ég verð mikið var við það að þetta fólk segir að flóttamenn taki peninga af fátækum Íslendingum og öryrkjum. Það er nokkuð stór hópur sem trúir þessu, en þetta á ekki við nokkur rök að styðjast. Fá- tækt þekktist hér á Íslandi löngu áður en flóttafólk fór að koma hingað og það er vel hægt að að- stoða alla þá sem eru í neyð. Það er enginn í neyð hér á landi vegna flóttafólks.“ Stuðningur kirkjunnar á Austurvelli Hvað hans starf og afstöðu kirkj- unnar varðar er Toshiki hins vegar mjög bjartsýnn á framtíð- ina. Hann segir að eftir að Agnes Sigurðardóttir tók við sem biskup hafi hann notið meiri stuðnings en áður og sé auk þess í betri tengsl- um við aðra íslenska presta. ,,Á mánudaginn fyrir tveimur vikum, var áskorunarsamkoma haldin á Austurvelli, þar sem löggan tróð yfir flóttafólk á eft- ir. Þarna mættu nokkrir prestar í prestsskyrtum þar á meðal Agn- es biskup til að sýna samstöðu kirkjunnar með fólkinu. Einnig var Dómkirkjan opin svo að þátt- takendur í samkomunni kæmust í kirkju til að nota klósett, fá kaffi og hvílast aðeins. Þetta var hægt vegna þess sóknarpresturinn, séra Sveinn Valgeirsson, hafði góðan skilning á málinu. Ég held að þjóð- kirkjan geti lagt sitt af mörkum í málefnum flóttamanna og verður að gera það. En kirkjan er komin einu eða tveimur skrefum framar en fyrir nokkrum árum,“ segir Tos- hiki. „Ég er nýorðinn sextugur og fór að hugsa líf mitt upp á nýtt og for- gangsraða. Ég á aðeins tíu ár eftir í mesta lagi. Þess vegna reyni ég að ná til yngri presta sem hafa áhuga á þessum málum. Best væri að vit- und um málefni útlendinga væri svo útbreidd að það væri engin þörf á þessu embætti.“ Hvað gerir þú þegar þú ert ekki að vinna? „Góð spurning. Áður fyrr samdi ég ljóð. En nú á ég ekkert tóm- stundagaman og er vinnualki,“ segir Toshiki og hlær er við kveðj- um hann. n MANITOU MLT 625-75 H Nett fjölnotatæki Pétur O. Nikulásson ehf. • Melabraut 23, Hafnarfjörður • Símar: 552 2650 / 552 0110 • pon@pon.is 6.800.000 kr. + VSK „Ég held að ég hafi verið of ein- lægur maður til að lifa af í pólitíkinni Laugarnes- kirkja Lögreglan rauf kirkjugrið og handtók flóttamenn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.