Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 12
12 FÓKUS - VIÐTAL 22. mars 2019
L
íney Rut Guðmundsdóttir er
32 ára tveggja barna móð-
ir sem býr í Reykjavík ásamt
manni sínum og tveimur
sonum. Eldri sonur þeirra hjóna
er fjögurra ára en sá yngri sex
mánaða. Þegar Líney var gengin
um 33 vikur með yngri son sinn
fór hún að finna fyrir breyting-
um á hægra brjósti sínu sem varð
bólgið og hart viðkomu. Taldi hún
breytinguna vera vegna með-
göngunnar en þegar bólgan gekk
ekki til baka ákvað hún að heyra í
mæðraverndinni til öryggis. Ljós-
móðirin sem hún ræddi við sagði
henni að hafa ekki áhyggjur og
róaðist Líney töluvert við það.
Fljótlega fór þó af stað atburðarás
sem Líney sá ekki fyrir.
„Ég átti tíma hjá minni ljós-
móður á 35. viku og fannst henni
þetta frekar skrítið. Hún ákvað að
hafa varann á og sendi mig í ómun
á brjóstinu. Ég var ómuð af reynd-
um lækni í Domus Medica og sá
hann ekkert nema smá vökva í
brjóstinu sem hann sagði vera
vökvablöðru. Hann tappaði um 35
millilítrum af vökva úr brjóstinu
og ég fann strax fyrir miklum létti.
Ég margspurði hann þó hvort
hann sæi ekkert annað og fékk
staðfestingu frá honum að þetta
væri ekkert alvarlegt.“
Krabbamein vex ekki
svona hratt
Við þessar upplýsingar varð Lí-
ney mjög létt en um þremur vik-
um síðar hafði vökvablaðran fyllst
aftur. Ljósmóðurinni leist ekki á
málið en eftir ómun á Landspít-
alanum sá fæðingarlæknir fyr-
irferð í brjóstinu sem hann taldi
þó aðeins vera gamalt blóð eftir
ástunguna hjá Domus.
Vikurnar liðu og átti Líney
strákinn sinn þann 13. september
árið 2018. Brjóstið var enn stútfullt
af vökva eftir fæðingu og var Líney
að bugast vegna verkja.
„Heimaljósmóður minni leist
ekki á þetta og sendi mig aftur upp
á spítala. Þar var annar læknir
sem skoðaði mig og sá nákvæm-
lega það sama og hinn en vildi þó
til öryggis senda mig á leitarstöð-
ina til þess að útiloka allt. Þarna
byrjaði hræðslan að gera vart við
sig.“
Líney fór á leitarstöðina þar
sem fyrirferðin sást greinilega
ásamt vökvanum.
„Hún sagði þetta líta út eins og
góðkynja vörtu og sagði að krabba-
mein yxi yfirleitt ekki svona hratt.
Sagði ólíklegt að það sæist ekki á
35. viku meðgöngu en væri orðið
svona stórt núna. Í fyrstu ætluðu
þau ekki að tappa af brjóstinu en
ég sagðist ekki fara fyrr en það yrði
gert. Þau gerðu það og í leiðinni
tóku þau fínnálarsýni úr fyrir-
ferðinni og ég fór út með þær upp-
lýsingar að það væru 90% líkur á
því að þetta væri góðkynja varta.“
Fínnálarsýnið reyndist ekki
fullnægjandi og taka þurfti gróf-
nálarsýni. Þá hafði blaðran aftur
fyllt sig.
„Daginn eftir sýnatökuna fór
mér að líða illa. Var mjög kalt og
mjög verkjuð undir hendinni og
niður hana. Það endaði á því að
um morguninn þurfti að hringja á
sjúkrabíl. Kvalirnar voru það mikl-
ar að þetta var verra en að koma
börnunum í heiminn. Í ljós kom
að ég hafði fengið sýkingu sem
dreifði sér út um allt eitlakerfið.
Ég lá inni á spítala í tæpar tvær
vikur með sýklalyf í æð og á með-
an ég var þar kom niðurstaðan úr
sýnatökunni. Í ljós komu frumu-
breytingar, þvílíkur léttir.“
Heimurinn hrundi
Var þá tekin ákvörðun um að
tveimur vikum eftir útskrift af spít-
alanum færi Líney í aðgerð þar
sem fyrirferðin yrði fjarlægð og
send í greiningu.
„Þann 19. nóvember kom
skellurinn. Ég fór að hitta skurð-
lækninn í eftirfylgni og var svo
glöð að nú ætti þetta að vera
búið en þá fékk ég að vita að um
krabbamein væri að ræða. Það
þyrfti að fjarlægja brjóstið, ég
þyrfti að fara í lyfjameðferð og
mögulega geislameðferð. Heimur-
inn hrundi. Ég sat þarna 32 ára,
tveggja barna móðir með nýfætt
barn heima og fékk þessa blautu
tusku í andlitið. Það fyrsta sem
ég hugsaði var að ég væri að fara
að deyja og ég myndi ekki fá að
sjá strákana mína vaxa úr grasi.
Það næsta var hárið, helvítis
hárið. Læknirinn og hjúkrunar-
fræðingurinn voru yndislegar og
náðu þær að róa mig aðeins niður
og sögðu mér að batahorfur væru
sem betur fer nokkuð góðar.“
Á þessum tímapunkti fór allt
í gang og fór Líney í brjóstnám
tveimur vikum seinna sem gekk
vel. Þar fékk hún að vita að meinið
hafði ekki náð að dreifa sér neitt.
„Þar sem þeir náðu öllu mein-
inu litu þeir á mig sem læknaða en
lyfja- og geislameðferðirnar kall-
ast í mínu tilfelli fyrirbyggjandi
eða viðbótarmeðferð þar sem
læknarnir geta ekki verið 100%
á því að það séu einhvers staðar
einhverjar krabbameinsfrumur á
sveimi. Mitt mein kallast þrínei-
kvætt og hefur sú tegund þá til-
hneigingu að dreifa sér þar sem
það getur bæði farið með sog-
æðakerfinu með viðkomu í eitl-
ana og með blóðinu sem gefur því
greiðari leið að öðrum líffærum.“
Vill ekki vorkunn
Í janúar á þessu ári byrjaði Líney í
lyfjameðferð og þarf hún að fara í
sex skipti á tveggja vikna fresti og
eftir það tekur við geislameðferð.
„Ég átti erfiðast með að sætta
mig við lyfjameðferðina þar sem
hún gerir mig veika og gerir sjúk-
dóminn sýnilegan vegna hármis-
sisins. Ég vildi síst af öllu breytast
í sjúkling. Ég er búin með fjór-
ar meðferðir af sex og þetta hef-
ur gengið ágætlega. Ég á oftast
eina slæma viku og eina ágæta og
svo er maður skotinn niður aftur.
Þreytan, orkuleysið og vanlíðanin
er svakaleg og ég á enn erfitt með
að sætta mig við hármissinn og
fer ekki út úr húsi nema með hár-
kollu. Það er aðallega af því að ég
vil ekki vera sjúklingurinn á svæð-
inu og fá vorkunn frá fólki.“
Segir Líney það vera mikla
áskorun að ganga í gegnum veik-
indi sem þessi með tvö lítil börn
en fjölskyldan sé virkilega heppin
með gott bakland og mikla hjálp.
„Það munar öllu í svona að-
stæðum því það gerir það að verk-
um að börnin okkar finna ekki eins
mikið fyrir aðstæðunum. Ég hef
alltof oft heyrt að ef konur und-
ir fertugt finni eitthvað í brjóstun-
um sínum sé gert lítið úr því af því
að þær séu ekki „nógu gamlar“ til
þess að fá brjóstakrabbamein. Það
eru um tíu konur á ári sem greinast
fyrir fertugt og ég vil hvetja konur á
öllum aldri til að vera meðvitaðar
um brjóstin á sér. Ef þær finna eitt-
hvað að standa þá með sjálfum sér
og fá skoðun. Líkurnar á að allt sé
í góðu eru mun meiri en þú gætir
líka verið ein af þessum tíu.“ n
Líney hefur ákveðið að deila
ferli sínu í krabbameinsmeðferð
á Instagram undir notandanafn-
inu: lrg9Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Vandaðar
innréttingar
Hjá Parka færðu flottar innréttingar
í hæsta gæðaflokki. Mikið úrval.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Greindist með
krabbamein
fjórum vikum
eftir barnsburð
Heimur Líneyjar Rutar hrundi
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@dv.is
Greindist 32 ára
Læknarnir voru rólegir.
„Það fyrsta sem ég
hugsaði var að ég væri
að fara að deyja og ég myndi
ekki fá að sjá strákana mína
vaxa úr grasi
Líney Rut
ásamt syni
sínum sem er
sex mánaða
gamall í dag.