Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 31
KYNNINGARBLAÐ
Brot af því besta
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is22. mars 2019
- Traustur félagi í flutningum
Flutningur.is er gróin sendibílastöð sem hefur veitt trausta þjónustu í yfir þrjá áratugi og
hefur yfir að ráða afar fjölbreyttum
bílaflota fyrir hin ýmsu verkefni. Auk
þess er stöðin með öll nauðsynleg
léttitæki sem þörf er á við flutninga,
hvort sem er á búslóðum eða við
vöruflutninga.
Stöðin býður upp á allar stærðir
sendibíla sem henta bæði í lítil og stór
verkefni. Bílstjórarnir eru reynslumiklir
og færir og leggja sig fram um að
veita góða þjónustu. Þeir sem standa
í búslóðaflutningum geta treyst
því að búslóðin sé flutt hratt en af
varkárni á milli staða.
Vöruflutningar
Flutningur.is sér um að losa gáma
hjá skipafélögum og koma vörunni til
fyrirtækja og einstaklinga. Hægt er
að flytja tvo gáma í einu og losa þá
við húsdyr fyrirtækja og einstaklinga
fyrir mjög hagstætt verð. Flutningur.
is hefur yfir að ráða góðum gáma
lyftum og ýmsum öðrum hjálpar
búnaði við flutninga og fylgist vel með
nýjungum og þróun tækjabúnaðar á
þessu sviði.
Ef þú þarft að flytja eitthvað, stórt
eða lítið, búslóð, vörur eða eitthvað
annað, þá er Flutningur.is líklega
mjög heppilegur kostur fyrir þig.
Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni
flutningur.is og í síma 5753000.
Nokkur góð ráð varðandi flutninga
frá Flutningi.is:
n Sankaðu að þér sterkum kössum í
nokkrum stærðum. Einnig er gott að
hafa eftirfarandi við höndina þegar
pakkað er: kúluplast, dagblöð, skæri,
sterkt límband og góðan merkipenna.
n Pakkaðu þungum hlutum, eins og
bókum, í minni kassa svo þeir verði
ekki of þungir. Í stærri kössum skulu
þyngri hlutir vera neðst og þeir léttari
efst. Pakkið hverjum hlut í dagblöð
eða kúluplast ef þeir eru viðkvæmir.
Ef of rúmt er um hluti í kassanum,
fylltu þá upp í hann með dagblöðum
eða öðru slíku.
n Pakkaðu öllu því sem á að fara
í sama herbergi í sama kassa og
merktu hann herberginu. Taktu fyrir
eitt herbergi í einu, pakkaðu fyrst
litlum munum til að koma þeim frá.
Merktu utan á kassann hvað er í
honum.
n Pakkaðu og merktu sérstaklega
þá kassa sem opna á fyrst af öllum
þegar komið er á áfangastað. Í kass
anum eiga að vera ómissandi hlutir
sem notaðir voru fram á síðasta dag,
líkt og uppþvottalögur, klósettpappír,
plastdiskar og hnífapör og ýmislegt
það sem fjölskyldan þarf að nota
áður en hægt er að taka upp úr öllum
kössunum.
n Þegar stærri hlutir eru teknir í
sundur, líkt og borð, hillur og skápar,
er gott að geyma verkfæri í einum
vel merktum poka eða kassa til
að auðvelda samsetningu á nýja
staðnum. Skrúfum er gott að tylla og
jafnvel líma aftur í þau göt sem þær
eiga að vera í.
n Settu allan rafeindabúnað eins og
fjarstýringar, millistykki og straum
breyta á einn stað.
n Staflaðu kössunum þegar búið er
að loka þeim. Gott er að nýta eitt
herbergi undir kassana, þannig er
hægt að klára að þrífa hinn hluta
hússins.
Flutningur.is