Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 26
Allt fyrir dýrin 22. mars 2019KYNNINGARBLAÐ HUNDA- OG KATTAHÓTEL SUÐURNESJA Hvíldarinnlögn og sumar- búðir fyrir loðna leikfélaga Hunda- og kattahótel Suðurnesja var opnað af hjónunum Kristínu Einarsdóttur og Daníel Þorgeirssyni 1. ágúst 2018. „Þetta hafði blundað í kollinum á mér í langan tíma áður en við ákváð- um að stíga skrefið til fulls og opna hótel fyrir hunda og ketti. Ástæðan fyrir því að við ákváðum að taka af skarið var sú að maðurinn minn var á milli starfa og okkur langaði að prófa eitthvað nýtt. Sjálf vann ég sem aðstoðarmanneskja dýralæknis og fann að fólk spurðist oft fyrir um dýrahótel. Það var greinilega mikill skortur og sem hunda- og kattaeigandi þá fann ég líka fyrir því að það var erfitt að skreppa frá, því það gat verið vanda- mál að finna pössun fyrir dýrin. Þetta var augljóslega hárréttur tími því það var strax mikið að gera hjá okkur og hefur verið síðan við opnuðum. Nú yfir jólin og áramótin komust færri að með dýrin sín en vildu,“ segir Kristín. „Fólk kemur aðallega með dýrin sín í pössun þegar það fer erlend- is eða bara í frí. Einnig vistum við dýr á meðan eigendur þeirra eru á spítala eða í endurhæfingu. Það er líka töluvert um að fólk sem vinnur langa vinnudaga komi með hundana sína í dagvistun. Það hentar sérlega vel að vera staðsett á Suðurnesj- um, ekki fjarri Leifsstöð. Við tökum á móti dýrum allan sólahringinn og líka á næturna. Þeir sem eru að fara í næturflug geta nýtt sér nætur- þjónustuna gegn vægu þjónustu- gjaldi. Einnig geymum við bílinn fyrir þá sem vilja gegn vægu gjaldi.“ Aðstæður hunda og katta til fyrirmyndar Á staðnum eru 30 stíur fyrir hunda og tíu búr fyrir ketti. „Það komast þó fleiri að en það, því ef um er að ræða tvo hunda af sama heimili þá geta þeir stundum deilt stíu.“ Í hverri hundastíu er bæli með mjúku undirlagi og allir fá nagbein og leikfang. Kattabúrin inni- halda bæli, klórustaur og kattaklósett. Fóðrun katta og hunda er sniðin eftir þörfum hvers og eins og hafa dýrin öll aðgang að hreinu drykkjarvatni. „Einnig bjóðum við upp á þá þjónustu að baða hunda og klippa klær gegn gjaldi. Sú þjónusta er eingöngu fyrir hótelgesti.“ Hvíldarinnlögn fyrir ketti Kettirnir hafa aðgang að stóru innileiksvæði með klórustaurum og fá klapp og knús frá starfs mönnum daglega. „Þarfir þeirra eru mjög mismunandi og reynum við að aðlaga okkur að þörfum hvers og eins eftir okkar bestu getu. Þetta er næstum eins og hvíldarinnlögn fyrir kettina því þarna fá þeir alla þá athygli sem þeir vilja og ná að slappa af í rólegu umhverfi með öðrum köttum.“ Sumarbúðir fyrir hunda Útisvæðinu er skipt í fjóra hluta sem nær yfir 1500 fermetra. „Við aðskiljum yfirleitt smáhundana frá þeim stóru en það er auðvitað allur gangur á því hverjir geta verið saman úti. Það fer svo auðvitað eftir veðri hve mikil úti- vera er í boði og auk þess metum við hvern hund fyrir sig. Sumir eru orðnir gamlir og lúnir og þurfa að vera meira inni og hvíla sig, en þeir yngstu og sprækustu eru yfirleitt mjög þreyttir og glaðir þegar eigendurnir koma að sækja þá. Þeir hafa þá verið að leika sér úti stóran part úr degi með hinum hundunum. Þetta er næstum því eins og að senda hundinn sinn í sumarbúðir.“ Ein mynd segir meira en þúsund orð „Við tökum nánast daglega myndir af hundunum og köttunum í leik og birtum á Facebook-síðu hótelsins. Við byrjuðum á þessu af rælni en fengum svo góð viðbrögð frá viðskiptavinum að við höfum haldið þessu áfram. Sumir hafa meira að segja rukkað okkur um myndir ef við erum ekki nógu snögg að birta þær. Fólki þykir gott að sjá dýrin sín þegar það getur ekki verið hjá þeim. Ein mynd segir líka meira en þúsund orð og þarna sér fólk að dýrinu líður vel,“ segir Kristín. Nánari upplýsingar má nálgast á hundaogkattahotelsudurnesja.com Facebook: Hunda- og kattahótel Suðurnesja. Klettatröð 6a, Reykjanesbær Netpóstur: hundaogkattahotel@gmail.com Bókanir í síma 777-3828 eða í gegnum messenger á Facebook. Stíur fyrir hunda Kattarbúr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.