Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 32
Brot af því besta 22. mars 2019KYNNINGARBLAÐ
Allt á milli himins og
jarðar í hugbúnaði
CodeLab útbýr sérsniðnar hugbúnaðarlausnir út frá þörfum viðskiptavinarins. „Við
gerum í rauninni allt á milli himins og
jarðar, þ.e. hugbúnaðarlega séð. Við
setjum upp og hönnum vefsíður og
vefverslanir, hönnum snjallsímaöpp,
vefkerfi, hreyfiauglýsingar, erum í
grafískri vinnslu og svo margt fleira.
Það er fullt af fólki þarna úti með
flottar vörur til sölu eða frábærar
hugmyndir um stórsniðug snjallsíma-
öpp í kollinum. Við hjálpum viðskipta-
vinum okkar að koma hugmyndum
sínum og vörum á framfæri til
umheimsins og sjáum til þess að
lausnin sé einföld, falleg og uppfylli
ströngustu kröfur,“ segir Theódór
Magnússon, eigandi CodeLab.
Ferlið frá a-ö
Þegar kemur að því að hanna
hugbúnaðarvöru er ferlið á
eftirfarandi hátt:
Fyrsta skrefið er náttúrulega að
hafa samband við okkur hjá Cod-
eLab. Við greinum ítarlega þarfir
viðskiptavinarins og högum allri
vinnu sem kemur í kjölfarið eftir þeirri
greiningu.
Næst förum við í það að setja fram
hönnun á hugbúnaði, vefsíðu eða
hvað það er sem kúnninn sækist eftir.
Þá er búin til prótótýpa sem er auð-
velt að breyta og bæta þar til fullbúin
hönnun er sett fram.
Þriðja skrefið er forritun, en eft-
ir greiningu og hönnun er hægt
að taka ákvörðun um það hvaða
forritunarmál og kerfi verður notast
við. Áður en hægt er að demba
sér í kóðun þarf alltaf að stilla upp
viðeigandi skipulagstólum svo
hægt sé að þróa kerfið eftir SCRUM
aðferðafræði.
Nú halda flestir að
hugbúnaðarvaran sé tilbúin, en svo
er ekki. Lokaskrefið er alltaf að gera
prófanir og skjölun. Prófanir koma t.d.
í veg fyrir alls kyns vandamál þegar
kerfið stækkar og skjölunin tryggir
að kaupandi fái bæði notenda-
og tæknileiðbeiningar sem lýsa
eiginleikum kerfisins á einfaldan og
auðskiljanlegan hátt.
Breiður hópur viðskiptavina
„Viðskiptavinahópur CodeLab er afar
fjölbreyttur enda bjóðum við uppá
ákaflega breiða þjónustu og erum
með afar færa forritara og hönnuði
á okkar snærum. Okkar mottó er að
við gerum allt. Viðskiptavinur kemur
til okkar með hugmynd eða vandamál
og við búum til langtímalausn sem
hentar kúnnanum. Þess má geta að
við bjóðum upp á verkefnagreiningu
viðskiptavininum að kostnaðarlausu,“
segir Theodór.
Allar nánari upplýsingar má nálg-
ast á vefsíðunni codelab.is. Þar er
einnig hægt að hafa samband við
okkur ef þú vilt fría verkefnagreiningu!
CodeLab ehf. er staðsett að
Katrínartúni 2, 16. hæð, 105 Reykjavík.
Netpóstur: codelab@codelab.is
CODELAB: Theódór Magnússon, eigandi CodeLab.