Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Qupperneq 33
Brot af því besta 22. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ ICEPHONE KRINGLUNNI Markmiðið er hröð og jákvæð þjónustuupplifun Fyrirtækið Icephone opnaði árið 2015 og býður upp á hraða þjónustu í símaviðgerðum á öllum símum, símafylgihluti og eldri uppgerða síma. Einnig býður fyrir- tækið upp á tölvu- og iPadviðgerðir. „Hjá Icephone er þetta spurning um að veita góða, hraða og ekki síst gegnsæja þjónustu. Okkar markmið er að viðskiptavinurinn gangi héðan út ánægður og hefur það gengið eftir alveg síðan við opnuðum, af umsögnum á Facebook og Google að dæma,“ segir Halldór S. Steinssen, framkvæmdastjóri Icephone. Slagorðið er 90 mínútna viðgerðir Snjallsímar eru viðkvæmir og al- gengt að þeir lendi í vatnsskaða eða höggskemmdum. Hvorutveggja er yfirleitt utan ábyrgðar framleið- anda. „Við fáum talsvert af slíkum tilfellum til okkar, auk þess sem við sjáum mikið af símum sem eru með slappa rafhlöðu. Margir sjá fyrir sér að vera símalausir í marga daga, jafnvel vikur þegar kemur að því að fara með símann í viðgerð. Það er allt í símanum hjá fólki í dag, vinirnir, vinnan og samfélagsmiðlarnir þannig að viðskiptavinurinn má alls ekki við því að missa tækið í marga daga. Við fórum því af stað með slagorðið 90 mínútna viðgerðir, þannig að fólk getur jafnvel sinnt erindum sínum í Kringlunni á meðan við gerum við símann. 90 mínútna viðgerðir þarf þó að panta fyrirfram. En ef við fáum til dæmis iPhone, sem þarf skjáviðgerð, inn fyrri part dags, þá erum við oftast að klára viðgerð á tækinu sama dag. Við erum mest að gera við iPhone og Samsung, enda eru það algengustu símarnir á markaðinum. Okkar markmið er að vera sneggri en hinir og reyna að klára viðgerð samdægurs eða daginn eftir.“ Ekkert skoðunargjald hjá Icephone „Við höfum tekið eftir því að viðskipta- vinir eru oft stressaðir yfir hvað viðgerð kostar. Kosturinn við okkar starfsemi er að við tökum ekkert skoðunargjald. Við tökum einfaldega við símanum, greinum hann fyrir viðskiptavininn og höfum síðan samband og segjum honum hvað sé að tækinu og hvað viðgerð muni kosta. Þá getur viðskiptavinurinn ákveðið hvort hann vill láta gera við símann eða ekki. Íhlutir eru þó oft dýrir og skjáir eru dýrir. Við notum original Samsung-íhluti, en það er meira framboð af íhlutum frá þriðja aðila í iPhone. Við erum með ágætis reynslu af okkar birgjum þannig að við treystum okkur til að bjóða sex mánaða ábyrgð á þeim íhlutum sem við notum,“ segir Halldór. Umhverfisvænn kostur „Einnig bjóðum við viðskiptavin- um, sem koma til okkar með nýlega Samsung eða iPhone-síma í skoðun vegna rafhlöðuvandamála, brotins skjás eða annarra vandamála sem getur verið kostnaðarsamt að gera við, að kaupa af þeim símana. Þá gerum við símana upp og seljum aftur. Þetta er umhverfisvænn kostur fyrir þá sem vilja kaupa notaða síma á lækkuðu verði, en hentar líka þeim sem vilja frekar kaupa sér nýjan síma en að láta gera við gamla símann. Við erum mörg hver svolítið gíruð í að vera alltaf með nýjustu týpuna þó að ekkert sé að eldri símanum, en með þessu höldum við símanum lengur í notkun. Uppgerðu símunum fylgir 6 mánaða ábyrgð.“ Ýmsir símafylgihlutir til sölu Icephone selur einnig fylgihluti fyrir síma. „Við seljum hulstur, skjáfilmur, hleðslutæki, fyrirframgreidd símakort, vatnshelda poka, höggvarnarsnúrur og margt fleira. Auk þess erum við með Popsocket, sem er mjög vinsælt í dag, en það er sett aftan á símann til að halda betur á honum eða tylla honum á borð,“ segir Halldór. Nánari upplýsingar má finna á icephone.is Icephone er staðsett í Kringlunni á bíóganginum og verkstæðið er á þriðju hæð Sími: 546-5444 Opnunartími er frá kl. 10–18 alla daga nema sunnudaga Facebooksíða: IcePhone Viðgerðir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.