Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 43
Brot af því besta 22. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ
Kísilsteinefnið
inniheldur hreinan
jarðhitakísil
Kísilsteinefnið geoSilica inniheldur hreinan jarðhitakísil sem unninn er úr jarðhita
vatni Hellisheiðarvirkjunar. Læknis
fræðilegar rannsóknir hafa leitt í ljós
að kísill gegnir mikilvægu hlutverki
í mannslíkamanum og er honum
nauðsynlegur. Kísill er sérstaklega
mikilvægur fyrir heilsu beina enda
örvar hann myndun kollagens í
líkamanum, en kollagen er helsta
uppistaða bandvefjar sem er að
finna í beinum, húð, hári, nöglum,
liðböndum, sinum og brjóski.
Kísill hjálpar einnig kalki að koma
sér fyrir í beinvef og er því mikilvægt
að taka inn kísil samhliða kalkinntöku
til að kalkið nýtist sem best. Inntaka
kísilsteinefnis gæti haft fyrirbyggjandi
áhrif gegn beinþynningu.
Kísilsteinefnið geoSilica styrkir
bandvef, styrkir hár og neglur og
vegna betri myndunar kollagens
getur inntaka kísilsins stuðlað að
sléttari og fallegri húð.
Fyrirtækið geoSilica Iceland hefur
þróað vöruna, framleiðir hana og
selur. Þau Fidu Abu Libdeh og Burkni
Pálsson, ásamt Ögnum ehf., stofnuðu
fyrirtækið árið 2012. Um haustið
það ár fékk geoSilica verkefnastyrk
Tækniþróunarsjóðs til rannsókna og
þróunar á vörunni. Hún kom síðan á
markað í desember árið 2014: 100
prósent hágæða náttúrulegt íslenskt
kísilsteinefni í vökvaformi, tilbúið til
inntöku.
Nýjar vörur frá geoSilica slá í gegn
geoSilica hefur eflt mjög vöruþróun á
síðustu misserum og hafa nýjar vörur
frá fyrirtækinu slegið rækilega í gegn.
geoSilica kísilsteinefni eru á metsölu
listanum Top 10 Best Sellers in Silica
Mineral Supplements á Amazon US.
geoSilica býður nú upp á
eftirfarandi vörulínu:
n geoSilica kísill
Íslenskt kísilsteinefni
n geoSilica Renew
– Fyrir húð, hár og neglur
n geoSilica Recover
– Fyrir vöðva og taugar
n geoSilica Repair
– Fyrir liði og bein
Nánari upplýsingar um vörurnar og
virkni þeirra er að finna á vefsíðunni
geosilica.is. Þar er einnig að finna
merkilegar reynslusögur margra
Íslendinga sem hafa notað vörurn
ar frá geoSilica með undraverðum
árangri. Við látum eina fljóta hér með:
Ásdís Geirsdóttir
„Nokkrum mánuðum eftir að ég átti yngri dóttur mína
í nóvember 2014 fór að bera á miklu hárlosi hjá mér.
Ásamt því var ég mjög slæm í húðinni og neglurn
ar á mér brotnuðu endalaust. Mér var þá bent á
kísilsteinefnið frá geoSilica. Það er 100% náttúrulegt
steinefni sem er þróað og framleitt á Íslandi úr jarð
hitavatni frá Hellisheiðarvirkjun. Kísilsteinefnið kemur í
vökvaformi og ætlast er til að maður taki inn 1 msk. (10
ml) á hverjum degi. Það sem mér fannst líka virkilega
gott við kísilinn er að hann inniheldur engin aukaefni –
aðeins kísil og vatn – og er einnig bragðlaus. Ég ákvað
að prófa enda orðin frekar langþreytt á þessu ástandi
og búin að prófa bæði sjampó fyrir hárlos, ýmis krem
og naglaherði. Ein flaska dugði mér í einn mánuði og
eftir um 2 vikur var ég farin að sjá verulegan mun á
húðinni, hárinu og nöglum. Ég ákvað því að taka aðra
góða törn og keypti flöskur næstu tvo mánuðina og
árangurinn lét ekki á sér standa!
Ég náði svo að sannfæra manninn minn um að
prófa kísilinn líka. Hann er með psoriasis en kísillinn
hefur reynst fólki með psoriasis einstaklega vel. Hann
sá einnig mikinn mun á húðinni sinni og margir blettir
sem hann var með urðu þynnri og minnkuðu til muna.
Síðan þá höfum við nokkrum sinnum tekið tarnir
með kísilinn frá geoSilica og alltaf sé ég jafn mikinn
mun á mér og þá sérstaklega á húðinni og nöglunum.
Auk þess finnst mér þetta minnka slen og stirðleika sem
oft hellist yfir marga yfir vetrartímann.“