Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Side 43

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Side 43
Brot af því besta 22. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ Kísilsteinefnið inniheldur hreinan jarðhitakísil Kísilsteinefnið geoSilica inni­heldur hreinan jarðhitakísil sem unninn er úr jarðhita­ vatni Hellisheiðarvirkjunar. Læknis­ fræðilegar rannsóknir hafa leitt í ljós að kísill gegnir mikilvægu hlutverki í mannslíkamanum og er honum nauðsynlegur. Kísill er sérstaklega mikilvægur fyrir heilsu beina enda örvar hann myndun kollagens í líkamanum, en kollagen er helsta uppistaða bandvefjar sem er að finna í beinum, húð, hári, nöglum, liðböndum, sinum og brjóski. Kísill hjálpar einnig kalki að koma sér fyrir í beinvef og er því mikilvægt að taka inn kísil samhliða kalkinntöku til að kalkið nýtist sem best. Inntaka kísilsteinefnis gæti haft fyrirbyggjandi áhrif gegn beinþynningu. Kísilsteinefnið geoSilica styrkir bandvef, styrkir hár og neglur og vegna betri myndunar kollagens getur inntaka kísilsins stuðlað að sléttari og fallegri húð. Fyrirtækið geoSilica Iceland hefur þróað vöruna, framleiðir hana og selur. Þau Fidu Abu Libdeh og Burkni Pálsson, ásamt Ögnum ehf., stofnuðu fyrirtækið árið 2012. Um haustið það ár fékk geoSilica verkefnastyrk Tækniþróunarsjóðs til rannsókna og þróunar á vörunni. Hún kom síðan á markað í desember árið 2014: 100 prósent hágæða náttúrulegt íslenskt kísilsteinefni í vökvaformi, tilbúið til inntöku. Nýjar vörur frá geoSilica slá í gegn geoSilica hefur eflt mjög vöruþróun á síðustu misserum og hafa nýjar vörur frá fyrirtækinu slegið rækilega í gegn. geoSilica kísilsteinefni eru á metsölu­ listanum Top 10 Best Sellers in Silica Mineral Supplements á Amazon US. geoSilica býður nú upp á eftirfarandi vörulínu: n geoSilica kísill ­ Íslenskt kísilsteinefni n geoSilica Renew – Fyrir húð, hár og neglur n geoSilica Recover – Fyrir vöðva og taugar n geoSilica Repair – Fyrir liði og bein Nánari upplýsingar um vörurnar og virkni þeirra er að finna á vefsíðunni geosilica.is. Þar er einnig að finna merkilegar reynslusögur margra Íslendinga sem hafa notað vörurn­ ar frá geoSilica með undraverðum árangri. Við látum eina fljóta hér með: Ásdís Geirsdóttir „Nokkrum mánuðum eftir að ég átti yngri dóttur mína í nóvember 2014 fór að bera á miklu hárlosi hjá mér. Ásamt því var ég mjög slæm í húðinni og neglurn­ ar á mér brotnuðu endalaust. Mér var þá bent á kísilsteinefnið frá geoSilica. Það er 100% náttúrulegt steinefni sem er þróað og framleitt á Íslandi úr jarð­ hitavatni frá Hellisheiðarvirkjun. Kísilsteinefnið kemur í vökvaformi og ætlast er til að maður taki inn 1 msk. (10 ml) á hverjum degi. Það sem mér fannst líka virkilega gott við kísilinn er að hann inniheldur engin aukaefni – aðeins kísil og vatn – og er einnig bragðlaus. Ég ákvað að prófa enda orðin frekar langþreytt á þessu ástandi og búin að prófa bæði sjampó fyrir hárlos, ýmis krem og naglaherði. Ein flaska dugði mér í einn mánuði og eftir um 2 vikur var ég farin að sjá verulegan mun á húðinni, hárinu og nöglum. Ég ákvað því að taka aðra góða törn og keypti flöskur næstu tvo mánuðina og árangurinn lét ekki á sér standa! Ég náði svo að sannfæra manninn minn um að prófa kísilinn líka. Hann er með psoriasis en kísillinn hefur reynst fólki með psoriasis einstaklega vel. Hann sá einnig mikinn mun á húðinni sinni og margir blettir sem hann var með urðu þynnri og minnkuðu til muna. Síðan þá höfum við nokkrum sinnum tekið tarnir með kísilinn frá geoSilica og alltaf sé ég jafn mikinn mun á mér og þá sérstaklega á húðinni og nöglunum. Auk þess finnst mér þetta minnka slen og stirðleika sem oft hellist yfir marga yfir vetrartímann.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.