Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 28
Allt fyrir dýrin 22. mars 2019KYNNINGARBLAÐ
Chris Christensen vörur fyrir
heilbrigðan og fallegan feld
Heildsöluna 4 loppur stofn-aði Svana Runólfsdóttir árið 2014 og kom Hallgerður Kata
Óðinsdóttir síðar að rekstrinum.
Verslunin einblínir á snyrtivörur
og aðrar feldvörur fyrir gæludýr.
Tveimur árum síðar opnuðu þær
vef verslun með vörunum. Í dag er
hægt að nálgast vörurnar í ýmsum
sérverslunum fyrir gæludýr og á
vefsíðunni 4loppur.is. „Ég er sjálf mikil
áhugamanneskja um feldhirðu hunda.
Ég var með sýningahunda og hafði
lengi leitað að góðum vörum fyrir þá.
Því miður fannst mér oft vanta réttar
vörur. Einnig fannst mér vanta upp á
þekkingu starfsfólks sérverslana sem
seldu feldhirðuvörur. Það var ekki
fyrr en ég komst í tæri við frábær-
ar amerískar hárumhirðuvörur fyrir
hunda, ketti, hesta og aðra loðna vini,
sem ég fann loks það sem ég hafði
verið að leita að,“ segir Svana.
Ýkt góðar vörur
Chris Christensen vörurnar koma frá
Texas. „Það er satt sem þeir segja
um Texas, þar er allt mjög ýkt, og þeir
hjá Chris Christensen leggja mjög
ýkta áherslu á að framleiða bestu
mögulegu vörur sem völ er á. Okkur
þykir líka mikill kostur að þeir prófa
ekki vörurnar á dýrunum fyrr en
búið er að prófa þær á mannfólki.“
Vörurnar frá Chris Christensen eru
vandaðar og góðar vörur sem skila
frábærum árangri til langs tíma.
Réttar vörur fyrir allan feld
Þegar kemur að sýningadýrum er
sérstaklega mikilvægt að nota réttar
vörur. Hundar eru t.d. með fjórar
feldtegundir sem eru mismunandi
eftir hundategundum og vörurnar
frá Chris Christensen uppfylla þarfir
allra þessa feldgerða og meira til.
Sýningahundar geta því uppfyllt öll
keppnisskilyrði um útlit og heilbrigði
feldsins. Sama gildir um sýningaketti
og -hesta. Það þarf að velja réttar
vörur til þess að fá rétta útkomu og
rétt feldástand sem hentar dýrinu
og tegundinni. „Vörurnar frá Chris
Christensen eru notaðar í sýningum
víðast hvar í heiminum og eru þær
afar vel liðnar innan sýningageirans.
Fjöldi sýningahunda og katta, sem
vörurnar hafa verið notaðar á, hafa til
að mynda hlotið verðlaun í keppnum.“
Ekki gott að nota rangar vörur
Útlit feldsins er auðvitað ekki það
eina sem skiptir máli. „Við finnum það
sjálf á eigin hársverði að þegar við
notum hárvörur svo sem hársjampó
eða næringu sem er ekki hönnuð fyrir
okkar hárgerð, þá getur það haft
miður góðar afleiðingar í för með
sér. Það sama gildir um feld hunda,
katta, hesta, kanína og annarra dýra.
Ef notað er rangt sjampó getur það
orðið til þess að hundinn fer að klæja
í húðina, hann fær flösu eða annars
konar húðvandamál. Hunda getur líka
klæjað ef feldurinn er ekki vel skolaður
og þrifinn eftir sjóböð. Þetta eru vinir
okkar og auðvitað viljum við að þeim
líði vel í feldinum og húðinni. Auk þess
sem við klöppum þeim og margir
sofa með dýrið uppi í rúmi hjá sér. Þá
er það mikill kostur að feldurinn sé
heilbrigður og þægilegur viðkomu, en
ekki allur klepraður og feitur.“
Breitt vöruúrval fyrir mismunandi
feldi og árstíðir
Einnig skiptir máli hvaða vara er
notuð á feldinn út frá því hvaða árstíð
er. Á veturna getur hársvörðurinn
þurrkast upp og því þarf mildara
sjampó og mýkri næringu. Á sumrin
getur sólin upplitað feldinn auk þess
sem dýrin geta líka brunnið í sólar-
geislunum. „Þá eigum við feldnæringu
með sólarvörn. Einnig er til sjampó
sem skerpir á hvítum feldi og önnur
sjampó sem skerpa aðra liti feldsins.
Við leggjum upp með að bjóða upp
á breitt úrval fyrir öll dýr með feld.
Við viljum selja rétta vöru sem hentar
hverju dýri fyrir sig. Við byggjum
upp vöruúrvalið jafnt og þétt því
við leggjum áherslu á að prófa allar
vörur sem við seljum. Gæðin skipta
okkur öllu máli og við viljum geta
leiðbeint og mælt með réttum vörum
fyrir rétt dýr.“
Gæði trompa magn!
„Chris Christensen vörurnar eru
hágæða feldhirðuvörur. Raunin er sú
að vörurnar eru alls ekki dýrar ef litið
er á notagildið. Suma sjampóbrúsa
má blanda saman við magn af vatni
sem er allt að fimmtíu sinnum meira
en magn brúsans segir til um. 1 dl af
sjampói verður þá 51 dl af nothæfri
feldvöru. Það er því ljóst að úr einum
brúsa fæst a.m.k. 50 sinnum meira
magn af vöru heldur en magn brús-
ans segir til um.“
Sölustaðir Chris Christensen feld-
hirðuvara: Dekurdýr, Dýraríkið,
Landstólpi á Egilsstöðum,
Hundasnyrtistofan Hundaheppni,
Dýralæknaþjónusta Suðurlands,
Dýralæknaþjónusta Eyjafjarðar á
Akureyri og 4loppur.is
Fylgstu með á Facebook: 4Loppur
Sími: 695-8581
Netpóstur: loppur@outlook.com
4 LOPPUR: