Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 2
2 22. mars 2019FRÉTTIR
Í
slendingar koma við sögu í
dularfullu mannshvarfsmáli
sem upp kom á Spáni í byrjun
ársins. Uppi eru getgátur um
að málið tengist andláti ungs
Íslendings. Ítrekað hefur verið
fjallað um málið í spænskum fjöl-
miðlum undanfarnar vikur.
Henry Alejandro Marín,
tvítugur menntaskólanemi af
kólumbískum ættum yfirgaf
heimili sitt í La Florida í
Alicantehéraði á nýársnótt. Ekkert
hefur spurst til hans síðan þá.
Einn á Spáni
Fram kemur í spænskum miðlum
að í lok seinasta árs hafi íslenskur
piltur fundist látinn á sófa í íbúð
sem er í sama fjölbýlishúsi og
þar sem Henry býr. Fram kemur
að dánarorsök piltsins hafi verið
ofneysla. Umræddur piltur leigði á
þeim tíma íbúð með tveimur öðr-
um Íslendingum. Annar þeirra
flutti til Íslands eftir þetta en hinn
varð eftir á Spáni. Henry flutti inn
til hans eftir þennan hörmungar-
atburð.
Andrés Jiménez, bróðir Henry,
segir bróður sinn hafa viljað
vera til staðar fyrir vin sinn, sem
var einn á Spáni að takast á við
missinn. Andrés segist jafnframt
þekkja íslensku piltana þrjá, þar
sem þeir hafi stundum hist yfir
bjór. Þeir eru að hans sögn „ósköp
venjulegir“.
Fram kemur að hinn íslenski
meðleigjandi Henry tali litla sem
enga spænsku. Segir Andrés að Ís-
lendingurinn og Henry hafi eytt
miklum tíma saman og hafi Henry
verið túlkur fyrir hann þegar
þess þurfti. Hvergi hefur kom-
ið fram að þessi tvö atvik, dauðs-
fall Íslendingsins og hvarf Henry
tengist með
einhverjum
hætti en
Andrés
telur þetta
undarlegt.
„Eitt tilfelli
er tilviljun en
þegar þau eru
orðin tvö þá
er þetta mjög
skrítið,“ segir
Andrés. „Það
stenst ekki að
bróðir minn
hafi horfið af yfirborði jarðar.“
Á gamlárskvöld var partý
í íbúð þeirra félaga, Henry
og Íslendingsins. Samkvæmt
frásögnum spænskra miðla kom
til átaka á milli þeirra tveggja seint
um kvöldið, sem endaði með því
að Íslendingurinn réðst á Henry.
Henry yfirgaf íbúðina í kjölfarið.
„Henry con chicas“
Fram kemur að daginn eft-
ir, á nýársdag, hafi móðir Henry
orðið áhyggjufull þegar sonur
hennar svaraði ekki símanum. Í
kjölfarið hafi fjölskyldan spurt um
ferðir hans hjá vinum, haft sam-
band við sjúkrahús á svæðinu og
að lokum tilkynnt hvarf hans til
lögreglunnar.
Þá kemur fram að fjölskylda
Henry hafi farið í íbúðina skömmu
eftir hvarfið og þar hafi vinir hans
afhent þeim farsíma hans og
veski, ásamt úri sem Henry ber á
sér öllum stundum. Tekur hann
það aðeins af sér í sturtu. Þegar
móðir Henry spurði íslenska
með leigjandann um ferðir sonar
hennar svaraði hann: „Henry con
chicas“ („Henry með stelpum“).
Fram kemur að Guardia
Civil lögreglan hafi yfirheyrt
íslenska meðleigjandann, sem
og gestina sem staddir voru í
íbúðinni á gamlárskvöld. Hefur
Íslendingurinn staðfest að til
átaka hafi komið á milli þeirra
tveggja sem enduðu með því að
hann réðst á Henry. Þá kemur
fram að samkvæmt vitnisburði
Íslendingsins var Henry „ekki í
góðu ástandi“ þegar hann yfirgaf
íbúðina.
Fram kemur að frásagnir þeirra
sem staddir voru í íbúðinni þetta
kvöld séu misvísandi. Fjölskylda
Henry viti því ekki hverju skal
trúa. Þau segja þó fráleitt að Henry
skuli hafa látið sig hverfa án þess
að ræða við nokkurn mann. Það
sé útilokað að hann hafi horfið
af sjálfsdáðum þar sem hann var
hvorki með síma eða peninga á
sér. Þá vill Andrés meina að bróðir
hans hafi ekki varið sig gegn
ofbeldinu af hálfu meðleigjanda
síns. „Bróðir minn er einstaklega
rólyndur og hann hefur aldrei lent í
slagsmálum.“
Nokkrar tilgátur
Leitin að Henry hefur nú staðið
yfir í rúmlega tíu vikur. Leitin
takmarkaðist í fyrstu við Orihuela
Costa svæðið en hefur nú teygt
anga sína víðar. Veggspjöld af
Henry hafa verið hengd upp
víða og á samfélagsmiðlum biðja
fjölskylda og vinir um hjálp.
Málið er enn til rannsóknar
hjá þarlendum yfirvöldum en
í yfirlýsingu lögreglu segir að
verið sé að rannsaka „þó nokkrar
tilgátur“. Enn sem komið er
hefur enginn verið handtekinn í
tengslum við hvarfið. n
Á þessum degi,
22. mars
1867 – Borgarnes við Brákarpoll varð
löggiltur verslunarstaður.
1882 – Fjölkvæni bannað í
Bandaríkjunum.
1888 – Enska deildin í fótbolta var
stofnuð.
1948 – Atómstöðin eftir Halldór Lax-
ness kom út og seldist upp samdægurs.
NÆSTI KAFLI HEFST HJÁ OKKUR
KVÍSLARTUNGA, 270 MOSFELLSBÆR
88.500.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Parhús á 2 hæðum
286 M2
7
HRAUNBÆR, 110 REYKJAVÍK
38.500.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Fjölbýli
107,7 M2
4
LÖNGUDÆLAHOLT 22, 801 SELFOSS
28.700.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Sumarhús
92 M2
5
Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / S. 570 4800 www.gimli.is BJÓÐUM UPPÁ FRÍTT SÖLUVERÐMAT
Síðustu orðin
„Þetta er fyndið“
– Doc Holliday, hetja úr villta
vestrinu (1851–1887)
Íslendingur tengdur dularfullu
mannshvarfsmáli á Spáni
Annar Íslendingur lést í sama húsi
„Eitt tilfelli er tilviljun
en þegar þau eru orðin
tvö þá er þetta mjög skrítið
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Henry
Alejandro
Jiménez.
Orihuela Costa á Spáni.