Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2019, Blaðsíða 2
2 22. mars 2019FRÉTTIR Í slendingar koma við sögu í dularfullu mannshvarfsmáli sem upp kom á Spáni í byrjun ársins. Uppi eru getgátur um að málið tengist andláti ungs Íslendings. Ítrekað hefur verið fjallað um málið í spænskum fjöl- miðlum undanfarnar vikur. Henry Alejandro Marín, tvítugur menntaskólanemi af kólumbískum ættum yfirgaf heimili sitt í La Florida í Alicantehéraði á nýársnótt. Ekkert hefur spurst til hans síðan þá. Einn á Spáni Fram kemur í spænskum miðlum að í lok seinasta árs hafi íslenskur piltur fundist látinn á sófa í íbúð sem er í sama fjölbýlishúsi og þar sem Henry býr. Fram kemur að dánarorsök piltsins hafi verið ofneysla. Umræddur piltur leigði á þeim tíma íbúð með tveimur öðr- um Íslendingum. Annar þeirra flutti til Íslands eftir þetta en hinn varð eftir á Spáni. Henry flutti inn til hans eftir þennan hörmungar- atburð. Andrés Jiménez, bróðir Henry, segir bróður sinn hafa viljað vera til staðar fyrir vin sinn, sem var einn á Spáni að takast á við missinn. Andrés segist jafnframt þekkja íslensku piltana þrjá, þar sem þeir hafi stundum hist yfir bjór. Þeir eru að hans sögn „ósköp venjulegir“. Fram kemur að hinn íslenski meðleigjandi Henry tali litla sem enga spænsku. Segir Andrés að Ís- lendingurinn og Henry hafi eytt miklum tíma saman og hafi Henry verið túlkur fyrir hann þegar þess þurfti. Hvergi hefur kom- ið fram að þessi tvö atvik, dauðs- fall Íslendingsins og hvarf Henry tengist með einhverjum hætti en Andrés telur þetta undarlegt. „Eitt tilfelli er tilviljun en þegar þau eru orðin tvö þá er þetta mjög skrítið,“ segir Andrés. „Það stenst ekki að bróðir minn hafi horfið af yfirborði jarðar.“ Á gamlárskvöld var partý í íbúð þeirra félaga, Henry og Íslendingsins. Samkvæmt frásögnum spænskra miðla kom til átaka á milli þeirra tveggja seint um kvöldið, sem endaði með því að Íslendingurinn réðst á Henry. Henry yfirgaf íbúðina í kjölfarið. „Henry con chicas“ Fram kemur að daginn eft- ir, á nýársdag, hafi móðir Henry orðið áhyggjufull þegar sonur hennar svaraði ekki símanum. Í kjölfarið hafi fjölskyldan spurt um ferðir hans hjá vinum, haft sam- band við sjúkrahús á svæðinu og að lokum tilkynnt hvarf hans til lögreglunnar. Þá kemur fram að fjölskylda Henry hafi farið í íbúðina skömmu eftir hvarfið og þar hafi vinir hans afhent þeim farsíma hans og veski, ásamt úri sem Henry ber á sér öllum stundum. Tekur hann það aðeins af sér í sturtu. Þegar móðir Henry spurði íslenska með leigjandann um ferðir sonar hennar svaraði hann: „Henry con chicas“ („Henry með stelpum“). Fram kemur að Guardia Civil lögreglan hafi yfirheyrt íslenska meðleigjandann, sem og gestina sem staddir voru í íbúðinni á gamlárskvöld. Hefur Íslendingurinn staðfest að til átaka hafi komið á milli þeirra tveggja sem enduðu með því að hann réðst á Henry. Þá kemur fram að samkvæmt vitnisburði Íslendingsins var Henry „ekki í góðu ástandi“ þegar hann yfirgaf íbúðina. Fram kemur að frásagnir þeirra sem staddir voru í íbúðinni þetta kvöld séu misvísandi. Fjölskylda Henry viti því ekki hverju skal trúa. Þau segja þó fráleitt að Henry skuli hafa látið sig hverfa án þess að ræða við nokkurn mann. Það sé útilokað að hann hafi horfið af sjálfsdáðum þar sem hann var hvorki með síma eða peninga á sér. Þá vill Andrés meina að bróðir hans hafi ekki varið sig gegn ofbeldinu af hálfu meðleigjanda síns. „Bróðir minn er einstaklega rólyndur og hann hefur aldrei lent í slagsmálum.“ Nokkrar tilgátur Leitin að Henry hefur nú staðið yfir í rúmlega tíu vikur. Leitin takmarkaðist í fyrstu við Orihuela Costa svæðið en hefur nú teygt anga sína víðar. Veggspjöld af Henry hafa verið hengd upp víða og á samfélagsmiðlum biðja fjölskylda og vinir um hjálp. Málið er enn til rannsóknar hjá þarlendum yfirvöldum en í yfirlýsingu lögreglu segir að verið sé að rannsaka „þó nokkrar tilgátur“. Enn sem komið er hefur enginn verið handtekinn í tengslum við hvarfið. n Á þessum degi, 22. mars 1867 – Borgarnes við Brákarpoll varð löggiltur verslunarstaður. 1882 – Fjölkvæni bannað í Bandaríkjunum. 1888 – Enska deildin í fótbolta var stofnuð. 1948 – Atómstöðin eftir Halldór Lax- ness kom út og seldist upp samdægurs. NÆSTI KAFLI HEFST HJÁ OKKUR KVÍSLARTUNGA, 270 MOSFELLSBÆR 88.500.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Parhús á 2 hæðum 286 M2 7 HRAUNBÆR, 110 REYKJAVÍK 38.500.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Fjölbýli 107,7 M2 4 LÖNGUDÆLAHOLT 22, 801 SELFOSS 28.700.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Sumarhús 92 M2 5 Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / S. 570 4800 www.gimli.is BJÓÐUM UPPÁ FRÍTT SÖLUVERÐMAT Síðustu orðin „Þetta er fyndið“ – Doc Holliday, hetja úr villta vestrinu (1851–1887) Íslendingur tengdur dularfullu mannshvarfsmáli á Spáni Annar Íslendingur lést í sama húsi „Eitt tilfelli er tilviljun en þegar þau eru orðin tvö þá er þetta mjög skrítið Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Henry Alejandro Jiménez. Orihuela Costa á Spáni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.